2.5.2009 | 19:08
Þarf að vísa henni úr landi?
Svona mál er alltaf erfið, en lög eru lög og þeim ber að framfylgja - ég legg til að á meðan menn reyna að leysa þetta mál hennar Japsý - verði henni vísað af Íslandi ......en þó aðeins til okkar í Eyjum, svo stimpla menn handa henni nýja pappíra og hún heldur aftur til Seyðisfjarðar þar sem henni virðist líða vel - það hlýtur að vera hægt að skoða þetta mál ofan í kjölinn og leysa.
Seyðfirðingar vilja Japsý áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ræt,rétti maðurinn á réttum stað. Eyjarnar eru staðurinn. Sú var nú tíðin að vart var þverfótað fyrir allra þjóða kvikindum. Enda alþjóðasamfélaga númer 1
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 19:22
Hingað eru allir velkomnir, öllum stundum, ef að þú spyrð mig. Ég hef sjálfur staðið í svona pappírsvinnu fyrir nokkra af okkar fótboltastrákum síðsutu ár. Hef reyndar bara góða reynslu af útlendingastofnun og ég trúi ekki öðru en að menn leysi þetta á farsælan hátt - við hjónin eru til í að taka hana inn á okkur á meðan menn leysa málin - konan er að frá Seyðisfirði og því erum við til í að skoða þetta með að hjálpa til - ekki málið
Gísli Foster Hjartarson, 2.5.2009 kl. 19:28
Þú ert nú líka hálf gerður Seyðfirðingur, ekki neita því.. þetta hlýtur að vera leyst á farsælan hátt, trúi ekki öðru..
Birkir (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 22:57
Þú heldur það Birkir .....og að það sé ástæðan fyrir því að ég er alltaf fyrir austan?
Gísli Foster Hjartarson, 3.5.2009 kl. 00:03
Ég held ad íslendingar aettu ad keppast vid ad fá sem flesta útlenginga til thess ad búsetja sig á landinu í theim tilgangi ad baeta kynid. Fólk á ad vera fegid ad einhver vilji búsetja sig á landinu....kannski er haegt ad raekta sidleysis og heimskugenid burt.
Humar og reyktur lax (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 05:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.