Harry Potter Íslands

Sigmundur Davíð verður kannski dag einn hinn íslenski Harry Potter er berst gegn hinum myrku öflum sem komu landinu næstum í gröfina, margt af þessum öflum, eins og Dóri frændi, eu samflokksmenn Sigmundar Harry og því þarf hann ekki að leita langt til að sjá spillinguna í glerkúlunni, hann þarf ekki einu sinni að horfa í glerkúluna til að sjá spillinguna heldur er nóg að horfa í kringum sig í húsakynnum flokksins á myndirnar á veggjunum þar og hlusta á hvað þær hafa að segja. Hann sem ekki má nefna var nú samt ekki samflokksmaður Sigmundar heldur var hann á annarri eiginhagsmunadeild á Hogwart og rak þar eiturnöðrurækt sem nú teygir anga sína í flestar byggðir landsins, því miður á flestum stöðum.   - en þetta var nú smá útúrdúr....eða hvað!

Sigmundur Davíð er ötull talsmaður þess að vera á móti hinum og þessum ráðagerðum ríkisstjórnarinnar sem er á margan hátt ágætt því ekki má kyngja öllu sem yfirvaldið segir, sem er nú reyndar sú aðferð "sem sá er ekki má nefna" og frændi minn fyrrum formaður flokks Sigmundar Potter notuðu til hins ýtrasa þegar þeir fóru með ferðina.  Vandinn í samgélaginu er all nokkur en á meðan hjól atvinnulífsins snúast, þó hægt sé víða,  sé ég ekki ástæðu til að æsa mig um of yfir Icsslave málinu megum ekki gleyma, og ekki Sigmundur Potter heldur, að við fengum mikið af þessu drasli í hausinn út af því að of mikið var um vinar- og hollustugreiða hjá "þeim er ekki má nefna" og frænda mínum, því miður. Gleymum ekki að Landsbankinn var seldur mönnum þoknanlegum íhaldinu og "þeim er ekki má nefna" á eina 15 milljarða en skilur nú eftir sig til handa þjóðarbúinu skuldir sem eru einhver hundruð milljarða (einmitt það sem að við eigum a borga - hver átti að byrgja brunninn?) - en þar kemur að því að ég er sammála Sigmundi Potter þessi mál leysast ekki nema með samstíga átaki allra sem mögulega aðkomu eiga að þessu - en gleymum ekki að það er til lítils fyrir okkur að neita að borga skuldirnar sem landar okkar stofnuðu til og eru að nokkrum hluta með ríkisábyrgð, ekki satt, á meðan við getum ekki einu sinni komið höndum yfir hina svokölluðu glæpamenn ef að við hefðum þá í haldi nú þegar og værum búin að frysta eignir þeirra þá gætum við kannski komið með einhverja mótleiki en á meðan svo er ekki þá er ég hræddur um að við verðum bara að kyngja galdralýsi "þess er ekki má nefna" og Dóra rænda sem búið var að koma fyrir í töskunum sem skyldar voru eftir á skrifstofum ríkisstjórnarinnar síðasta haust. 


mbl.is „Fjarar undan stjórninni"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Loksins, ég var var farinn að halda að Harry Potter væri bara ekki til. En það er bara ekki satt. Puffy maður í yngri kantinum er kominn fram, og hann heitir Harry. Mér er létt Gísli

Finnur Bárðarson, 13.6.2009 kl. 18:17

2 identicon

Hvað eru menn að gera Sigmundur hann veit að Jóhanna er að vinna í þessu og hann á ekki að tala um þessi mál

sveinbjörn (IP-tala skráð) 13.6.2009 kl. 19:30

3 identicon

Já...AUDVITAD eiga thessir flokkar...VG og Samfylkingin ad starfa saman áfram.  Mér vaeri alveg sama thótt BH kaemi inn thar líka.

SPILLINGARFLOKKURINN OG FRAMSÓKNARSPILLINGIN eiga EKKERT ERINDI VID THJÓDINA ANNAD EN AD DRAGA HANA NIDUR Í SVADID ENDANLEGA.

Thessir flokkar eru bestir í VARANLEGRI SÓTTKVÍ.  Vidbjódslegt fólk.  Drulluhalar!

Krummólutextelpepperilló (IP-tala skráð) 13.6.2009 kl. 20:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband