Fífl eru þetta!!!

Við sem erum allra þjóða merkilegust, best, heiðarlegust og vingjarnlegust, svo fátt sé talið til. Kristilegir demókratar í Bæjaralandi eiga að gleðjast fyir áhuga okkar, við erum þjóðin sem framtíð sambandsins snýst um, við erum þjóðin sem mun koma á jafnvægi og stöðugleika í sambandinu umfram það sem verið hefur! - þessir gemlingar skulu sko passa sig ef að við komumst á flug!!!
mbl.is Andsnúnir inngöngu Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Verð bara að segja. Góður !!!!! hahaha já þeir skulu sko passa sig.

Ásta Hafberg (IP-tala skráð) 18.7.2009 kl. 09:46

2 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

CSU er mikilvægur hluti af Kristilegum demókrötum í Þýzkalandi og hafa þannig t.a.m. tvo ráðherra í þýzku ríkisstjórninni. Það hentar Einar auðvitað að gera lítið úr þeim fyrst að það hentar honum pólitískt en það má líka minna á að Kristilegir demókratar í Þýzkalandi sem slíkir hafa sagt að ekki eigi að bæta við fleiri ríkjum í Evrópusambandið í nánustu framtíð.

Hollenzkir stjórnmálaflokkar eru einnig andsnúnir umsókn Íslands nema Icesave-málið verði fyrst leyst og talið er að sama muni eiga við um brezk stjórnvöld.

Það er því miður vafalítið hlegið að okkur á erlendri grund fyrir þessa umsókn.

Hjörtur J. Guðmundsson, 18.7.2009 kl. 10:15

3 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Og Einar, ertu s.s. að segja að Bæjarar séu upp til hópa öfgamenn? CSU hefur haft um og yfir helming atkvæða í Bæjaralandi í áratugi.

Hjörtur J. Guðmundsson, 18.7.2009 kl. 10:40

4 identicon

Enda eru Þjóðverjar almennt frekar leiðinlegir.

Góði gaurinn (IP-tala skráð) 18.7.2009 kl. 11:05

5 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Einar og Hjörtur - ég veit ekki!!! mín kynni af Þjóðverjum hafa upp til hópa verið mjög góð, bjó í Norður Þýskaland um 6 mánaða skeið eitt sinn og dvaldi á sínum tíma mikið í Stuttgart og nágrenni - get ekki kvartað undan neinu. Auðvitað er fólk misjafnt, jafnvel bara eftir fylkjum eða bæjum öfgarnar eru misjafnar - sjáið t.d. muninn á milli margra staða í USA. Þetta eru stórar þjóðir og því eðlilegt að ekki séu allir steyptir í sama mót, meira að segja a Íslandi og ekki erum við stórþjóð - nemaí eigin hugum. Ég man vissulega eftir því hvernig mér ar sagt frá Bæjurum í norður-þýskalandi og hvernig þeir væru. En er þetta ekki alls staðar. Tyrkir voru nú ekki vinsælasta fólkið í norður-Þýskalandi svo sem Einar.

Framtíð Íslands snýst ekki um pólitík heldur skynsemi, hún snýst ekki um eigin hagsmuni heldur þjóðarhagsmuni - svo er bara að sjá hvernig okkur mun ganga.

Eigið þið góða helgi peyjar

Gísli Foster Hjartarson, 18.7.2009 kl. 12:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband