26.7.2009 | 13:46
Ég berst á fáki fráum......
Skil alveg Jón Bjarnason og hans vangavelltur. Við eigum ekki að láta ráðskast með okkur en.....
Þannig að mér finnst það verulegt áhyggjuefni að vera að fara í samningaviðræður við ríkjasamband í þeirri stöðu sem íslenska þjóðin er núna, sagði Jón Bjarnason í samtali við RÚV.
Kær Jón - Er það ekki kannski málið að þjóðin er með buxurnar á hælunum út um víðan völl og liggur vel við flengingu á alþjóðavettvangi af því að hér fóru menn mikin í peninga- og stjórnmálageiranum og töldu sig ósigrandi, betri en það sem býðst annarsstaðar og ég veit ekki hvað! En hafa nú fengið þetta allt í andlitið - og þjóðinni skal blæða!!! Hver er staða Íslands á alþjóðlegan mælikvarða? Ekki verðum við langlíf ein og sér gegn öllum? Auðvitað er þetta eins og einleti í skóla á margan hátt en málið er bara að við verðum núna fyrir eineltinu eftir að hafa látið eins og fífl og reynt að níðast á öðrum fyrst.
Það hefur í mörg ár verið aumt fólk sem fór með ferðina fyrir þjóðina....og ég er ekki viss um að það sé að skána.
Vill fresta umsóknarferli ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.