24.11.2009 | 12:08
Ekki einn um að vera ofboðið
Já það verði ég að segja að mörgum var ansi ofboðið að Baldri skyldi ekki hafa verið hennt út íhorn um leið og þessi umræða fór af stað, og hugsið ykkur honum datt það ekki einu sinni íhug sjálfum, hefði hann gert svo og reynist svo saklaus þegar búið er að kryfja málið þá getur karl mætt aftur til vinnu og borið sig hátt. - Þjóðin var nú orðin nokkuð pirruð á að ekki skyldi í það minnst hnippt í Baldur greyið, nú hefur það verið gert, hann stígur upp úr stól sínum og nú bíðum við niðurstöðunnar og getum ekki annað gert. Við hljótum að fá á hreint hvort hann er sekur eða saklaus - get svo sem tekið undir með Karli að þessi eilífi leki í fjölmiðla getur verið pirrandi og málsskemmandi og því er ég nokkuð hissa á þessu bréfi hans - veit ekki hvort þarna er á ferðinni einhver flashþörf eða ekki en þegar maður er með mann í rannsókn er þá ekki rétt að bíða bara áttekta en að vera ekki að riti bréf og reyna að fá aðra sakfelld? Skil boðskapinn en er ekki viss umað hann eigi að koma með á þennan hátt. Við hljótum að fara að sjá fleiri dregna inn á teppið og tekna í gegn.
Hvort Baldur er sekur eða saklaus mun tíminn leiða í ljós, Baldur hlýtur að stóla á Karl og við hin hljótum að ætlast til þess að málsferðin verði heiðarleg og vel unninn svo hið sanna komi í ljós.
![]() |
Lögmanni Baldurs algjörlega ofboðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
hann er á mjög svo gráu svæði þessi Baldur - held við ættum að halda ró okkar og leyfa þessum sérstökum ríkissaksóknara að vinna í friði
saklaus uns sekt er sönnuð segir máltækið
Jón Snæbjörnsson, 24.11.2009 kl. 12:57
Þjóðinni er algjörlega misboðið
að lögmaðurinn skuli taka svona til máls.
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 24.11.2009 kl. 14:27
Kostaði víst ríkissjóð 30 milljónir í starfslokagreiðslur að ´´ fá´´ Baldur til að hætta.
Einar Guðjónsson, 24.11.2009 kl. 15:54
Opið bréf til Karls Axelssonar, lögmanns:
Karl lögmaður, blessaður finndu þér nú starf sem hæfir þínum hæfileikum. Þú gætir t.d. orðið ræstitæknir í Valhöll og sérhæft þig í klósetthreinsunum.
Með kveðju,
Páll
Páll (IP-tala skráð) 24.11.2009 kl. 17:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.