Mínir menn....

.....voru að sjálfsögðu ungu ofurhugarnir í Dólgunum. Þrátt fyrir að þeir hafi ekki farið með sigur af hólmi þetta árið þá er ég mjög svo ánægður með frammistöðu þeirra. Það eitt að hljóta náð fyrir dómnefnd og fá að vera á meðal þeirra sem koma fram á úrslitakvöldinu er heiður útaf fyrir sig sem ekki öllum hlotnast. Dólgarnir eru komnir til að vera! Ánægður með Geir frænda minn að fresta bara fermingunni um hálfan mánuð útaf úrslitakvöldinu, það segir sitt. Flott að eiga svona frændur eins og þá þremenninga.
mbl.is Of Monsters and Men vann Músiktilraunir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Til lukku með þína menn...tær snilld að fresta bara fermingu:)

Halldór Jóhannsson, 28.3.2010 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.