Til hamingju - magnað afrek

Frábært afrek hjá Vilborgu Örnu. Það er ekki eins og þetta sé að skjótast á nammibarinn eftir einni áfyllingu eða svo. Þetta er þokkalegt að eyða 60 dögum í að skrönglast þetta ein og óstutt yfir auðnina að markmiðinu sem hana hafði dreymt um. Þetta hefur pottþétt tekið vel á og það hefur þurft góða einbeitningu til þess að halda sínu striki. Kannski að það hafi hjálpað að hafa þjóðina á bakinu að fylgjast með!!!!  ...hjartanlega til hamingju með magnað afrek.
mbl.is Kartöflur með beikoni á pólnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vart alþjóðlegt......

...ef það er bara á Ísafirði. En gott framtak - vona að sem flestir notfæri sér það sem í boði verður. Hvað með önnur skíðasvæði? Taka þau ekki þátt?
mbl.is Alþjóðlegur snjódagur haldinn hátíðlegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt í hvaða farvegi málið er

Þetta er nú orðið ljóta grínið. - jæja en maður verður víst að sætta sig við það. En það verð ég nú samt að segja að það að hægja á viðræðunum er nú ekkert grín á við þessa bloggfærslu hérna. Alveg óborganlegt hvað sumir láta hafa eftir sér. 

Ég verð að segja að þegar maður les færslur eins og þessa sem ég set hér hlekk á að þá veltir maður því fyrir sér hvort menn séu nokkuð að missa sig í bullinu? ESB að gleypa Ísland - hahaha -

Auðvitað á að klára viðræðurnar og sjá hvað verður á borðinu. Jón Valur veit ekkert um það ekki frekar en ég. En ég þori að skoða í pakkann því ég lifi í þeirri von að hann gæti fært Íslenskum heimilum kjarabót og það til langframa, sem og fyrirtækjum þessa lands. Það eru mikil tækifæri innan ESB þegar menn eru lausir við þá tollamúra sem nú standa í vegi fyrir fullt af hlutum. Ég sat í 15 manna hópi um daginn. fólk úr flestum flokkum og þar vildu 12 klára viðræðurnar og fá að skoða hvað í boði væri. ef þessir væru þjóðin þá væru 80% fylgjandi því að klára og fá að sjá hvað í boði verður. Ef ég tek bara þá sem koma við í prentsmiðjunni og ræða þessi mál þá erum við sennilega að tala um að talan sé nær 65% sem vill klára við'ræðurnar.

Ég skil ekki þessi hræðslu manna og sorgæegast þykir mér þegar það eru hægri menn sem láta svona ég sem hélt að við vildum frjálsa samkeppni og slíkt en það virðist því miður ekki vera.  Sérstakt líka að sjá að menn virðast t.d. ekki gera sér grein fyrir stærð Samherja innan ESB. Við eigum kannski að slíta viðræðum við ESB og fara fram á að Samherji og önnur fyrirtæki sem eiga stöðvar erlendis loki þeim og einbeiti sér að því að vera bara á klakanum!!!! - mér þætti gaman að sjá það. 

 


mbl.is Dauði viðræðnanna stórlega ýktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

....næst síðasti leikur Arsenal!

.......í FA Cup þetta árið og hann endaði með sigri.

Þá er það á hreinu það verða Arsenal menn sem koma í heimsókn á Amex Stadium í Brighton aðra helgi og etja kappi við mína menn. Það verður gaman og ég hef fulla trú á að mávarnir hefji sig til flugs og driti yfir peyjana hans Arsene Wenger! Svo verðum við í hattinum þegar dregið verður í næstu umferð.


mbl.is Wilshere skaut Arsenal áfram í bikarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjalla-Eyvindur og Halla!

Veit ekki með ykkur en þetta var það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá fyrirsögnina á greininni!!!

En það er gott að það eru ekki þau sem eru í haldi heldur eitthvað lið sem virðist stefna á að vera mun skæðara í samfélaginu en Fjalla-Eyvindur og Halla og aðrir íslenskir útlagar voru á sínum tíma. - vel gert hjá lögreglunni, er ánægður með hana, nú sem áður.


mbl.is Útlagar í haldi lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki málið þá er það bara næsti leikur!!!

Vissum alltaf að þetta yrði erfitt - þó ég hafi nú spáð jafntefli. Danir með feikiöflugt lið og það er ekki eins og okkur hafi alltaf gengið vel með þá. Segi eins og Snorri Steinn tökum það jákvæða úr þessum leik og tökum með okkur í næsta leik. Sigur í næsta leik er skilyrði eftir þann leik getum við farið að teikna upp framhaldið, ekki fyrr. ....áfram Ísland nú sem áður
mbl.is Snorri Steinn: Vorum rassskelltir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann er mættur á netið gott fólk

...og hann má skoða hérna.  Gjörið þið svo vel. Nú er bara að njóta

 Áfram Ísland

 


Sá hlær best sem...... hvað segir þú?

Wilbek veit hvað hann syngur. Hann hefur margsýnt það sem þjálfari. Nú er það í höndunum á okkar strákum að hrófla aðeins við því og taka af hans mönnum stig eða tvö - það yrði vel ásættanlegt svo ekki sé meira sagt.

Ætla að leyfa mér að spá 23-23 en þú?


mbl.is Wilbek: Góður varnarleikur hjá Íslendingum á HM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Berja á honum og hinum!!!

Þetta er nú ekki flókið dæmi varðandi leikinn í kvöld. Það þarf að berja hraustlega á Lindberg og félögum og láta þá finna fyrir því og vel það. Þá eigum við séns, annars ekki. Ég treysti strákunum til að gera sér grein fyrir því og leggja sig 100% fram og rúmlega það. Við fáum allavega stig úr leiknum ef ekki meira.
mbl.is Hans Óttar Lindberg: Svolítið sérstakir leikir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að taka þetta upp hér á landi?

Sinn er siður í hverju landi var einhvern tíma sagt ef minnið er ekki að svíkja mig, eins stjórnvöld eru að gera!!!  Skemmtilega hugmynd alveg hreint þessi pæling um buxnalausadaginn. Eina sem ég sé að þessari frétt að ég hefði haldið að það hefði verið þúsundir sem tóku þátt í buxnalausadeginum en ekki hundruð. Mexíkóborg er sennilega einhver stærsta borg í heimi og miðað við þessar myndir þá hef ég trú á að fleiri en nokkur hundruð hafi tekið þátt - ja nema að þetta hafi bara átt við eina litla lestarstöð í litlu úthverfi!!!!

Mætti alveg spá í að taka þetta upp hér á landi - að sumarlagi þá - og sjá hvaða viðbrögð menn fá. Það hljóta að vera einhverjir þarna úti sem eru til í að skipuleggja þetta!!!


mbl.is Allir buxnalausir í lestunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki skyldusigur en.....

...vilji menn vera málmetandi í þessu móti verða menn að klára leiki eins og þennan. Auðvitað gerðu strákarnir það. Jú jú erfið fæðing, en þær eru það oft eins og allir vita en það er fyrir mestu að allt fari vel að lokum og það gerðist í kvöld. Baunarnir á morgun, það verður erfiðara en erfitt og jafntefli yrði vel ásættanlegt ef þið spyrjið mig. .........Áfram Ísland
mbl.is Sigur gegn Makedóníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkir leikir!

Magnaðir leikir í karlaflokki þarna. Mig langaði reyndar að sjá Snæfell mæta lærisveinum Teits Örlygssonar úr Garðabæ í úrlstialeik en nú er ljóst að svo verður ekki - því miður. verð bara að vona að mínir menn taki þá í undanúrlsitum og svo annað hvort suður með sjó liðið í úrslitaleiknum sjálfum. - Go Snæfell
mbl.is Keflavík og Grindavík mætast í undanúrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rugl er þetta Össur minn!!!!!

Er bara algjörlega ósammála því að það sé verið að setja þessar viðræður íeinhvern hægagang. Þetta mál er þjóðinni of mikilvægt til þess að það sé verið að setja þetta í einhvern hægagang. Það á bara að sigla þessu máli áfram eins og verið hefur gert. Svo eiga menn að draga net úr sjó og slá tún og engi og sjá hver niðurstaðan verður sem kemur upp úr kjörkössunum eftir að þjóðin hefur greitt um samninginn atkvæði.

 

Áhugasamir geta skoðað þetta - og jafnvel fundið eitthvað áhugavert fyrir sig þarna, já eða einhverja sem að þeir þekkja.


mbl.is „Ég elska alla“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.