Hver eru háu launin?

Hver eru þessi háu laun sem Lilja veltir sér upp úr? Eru það öll háu launin eða bara ákveðnar stéttir? Á bara að berja á bankamönnum? Eða á kannski líka að berja á launum forstjóra einkafyrirtækja, sjómönnum sem gera það gott og svo framvegis. Hvar vill Lilja draga línurnar. Ekki það að ég sé fylgismaður ofurlauna stefnunnar er bara að velta því fyrir mér hvert við stefnum og hvort þessi mál taki einhvern tíma enda? Já eða hvort við stefnum yfirhöfuð eitthvert, eða er samfélagið kannski en bara rekald sem berst með tískustraumum hverju sinni?


mbl.is Vilja standa vörð um háu launin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helvíti!

Það verð ég að segja að ég hef áhyggjur af áhöfn og verkefni skipsins. Svo mikið hefur nú verið dýpkað á svæðinu endalaust eð menn hljóta að fara að verða komnir til helvítis!!!! Verða kannski komnir í kaffi með skrattanum seinni partinn í dag og hræddur er ég um að þá fyrst verði ófært í blessaða höfnina!!!
mbl.is Hugsanlega hægt að dýpka í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Daddi diskó, Biggi Sveins og Kristó

Þessi heilaga þrenning hittist í dag til að ræða þetta met Steve Stevens og horfa á siðustu mínúturnar á breiðtjaldi í Höllinni hér í Eyjum. Ekki er talið líklegt að þeir félagar reyni við þetta met hjá Steve en líklegt er talið að þeir ætli að reyna að fá Ragga Sjonna til liðs við sig og endurvekja diskómenninguna í Eyjum. Já or reyndar ekki bara í Eyjum heldur á suðurlandinu öllu. Stefnt er að opnunarkvöldi átaksins í maí og hafa menn þegar sett sig í samband við Sigga Hlö!!!!!

Nú er um að gera fyrir fólk að dusta rykið af diskógöllunum og gera sig klárt í að taka gömlu góðu sporin!!!


mbl.is Diskódansaði í 131 klukkustund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brátt mæta menn Brighton!!!!

Já góðir hálsar og kát lestrar-augu þá stefnir allt í það að mávarnir á suðurströnd Englands, Brighton and Hove Albion Football Club, fari upp um deild og verði mættir til leiks gegn félögum Ívar og Hemma næsta vetur - mikið hlakka ég til ef af því verður. Mávarnir núna búnir að vinna 8 af síðustu 9 leikjum og fátt sem virðist geta stöðvað þá á leið sinni upp. eru með 7 stiga forskot á liðið í 2 sæti og eiga 3 leiki inni á þá. Leikir á heimavelli í vikunni gegn Notts County og Swindon en þau eru bæði í neðri hlutanum landi menn sigri í þessum tveimur leikjum má segja að maður geti byrjað að finna til spari brosið, en það er einhvern veginn svona Grin
mbl.is Góðir útisigrar Íslendingaliðanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsagt mál!

Ekkert nema elskuleg heitin að verða við þessari bón þeirra. En á móti kemur að þeir leggi sín vopn til hliðar og virði almenn réttindi borgaranna. Auðvitað vilja allir að ekki þurfi að vera að standa í einhverjum stríðsrekstri þarna, nóg er nú um það rugl nú þegar í heiminum.

Hvet menn til að setjast niður og leysa þetta á farsælan hátt - veit að það verður erfitt en trúi því að menn hlusti á mig. Er meira að segja til í að mæta á fund hjá mönnum og taka þátt í þessum umleitunum!!!!


mbl.is Krefjast fundar í öryggisráði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eru Ejamenn?

Ég veit að þetta voru mínir menn og ég er þess viss að þjálfari HK Tómas Ingi Tómasson hélt með sínu gamla liði, ÍBV, í leiknum!!!!  En gott að menn eru að hrista af sér slenið frá síðustu leikjum. Liðið þarf að vera á tánum eftir 6 vikur þegar blásið verður til leiks á Íslandsmótinu.  

klukkan 14:02 stóð

Ejamenn sterkari en HK

 

Tryggvi Guðmundsson skoraði fyrir ÍBV í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

ÍBV lagði HK 4:1 í Lengjubikar karla í knattspyrnu í Kórnum í dag, en staðan í leikhléi var 2:0 fyri rEyjamenn.

Ian Jeffs reið á vaðið með marki á 40. mínútu, Tryggvi Guðmundsson náði síðan að setja hann á síðustu mínútu fyrri hálfleik. Brynjar Gauti Guðjónsson kom ÍBV í 3:0 með marki á 55. mínútu en Hólmbert Friðjónsson minnkaði muninn á 71. mínútu leiksins. Guðmundur Þórarinsson átti síðan lokaorðið með marki á 78. mínútu.


mbl.is Ejamenn sterkari en HK
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar Steinn á leið til ÍBV

Flogið hefur fyrir í umræðunni hér í Eyjum í síðustu daga að þessi piltur, Gunnar Steinn,  sé á leið til ÍBV fyrir næsta keppnistímabil. Vissulega yrði það mikill fengur fyrir okkar unga lið að sá pilt í okkar raðir en rétt er að benda fólki á að líkurnar eru taldar vera um 1% að hann komi til ÍBV, þannig að þið skuluð ekki missa ykkur strax í því að sjá hann í huganum í ÍBV búning!!!! - en það hefur sjaldnast skaðað að láta sig dreyma!
mbl.is Gunnar Steinn í stuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kraftur í kauða

Kári búinn að vera fínn hjá sínum mönnum eftir áramót og er ekki að gera neitt þessa dagana sýnist manni annað en að tryggja sig bara áfram í sessi innan liðsins. Hið besta mál og bara gaman að fylgjast með honum úr fjarlægð. Talaði um fyrir nokkru að hann myndi gera að meðaltali 5 mörk í leik út tímabilið, ætli hann sé ekki í svona 4 núna - svo ég bið hann um að stíga aðeins upp það sem eftir er af móti Smile
mbl.is Kári með 4 mörk gegn Balingen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins, loksins

Sigur eftir 4 tapleiki í röð. Svo sem ekki neitt sérstakt að vinna Golden State en það telur alveg jafn mikið og hver annar sigur. Channing Frye komin aftur eftir að hafa farið úr axlarlið fyrir nokkru. Frekar jafnt skor hjá mínum mönnum. Prins póló gaurinn Gortat með 18 stig og svo 3 leikmenn með 17, Grant Hill, Nash og Frye. LA CLippers á sunnudaginn - í beinni á NBA TV um kvöldmatarleytið ef ég man rétt. Best að reyna að muna eftir því. Menn munu svo sennilegast fvelja áfram í LA því það er leikur gegn Lakers á þriðjudaginn.
mbl.is Tók leikhlé eftir 42 sekúndur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumkunarverð þjóð

Það verð ég að segja að ef þetta er rétt þá kemur hér en og aftur í ljós hversu aumkunarverð þessi blessaða þjóð er. Líf fjölda manns lagt í rúst í boði ríkisins. Við erum ekki að tala um eitthvert eitt eða tvö ár í vinnu við erum að tala um líf einstaklinganna, sumir hafa jafnvek horfið á brott fyrir eigin hendi eftir að hafa ekki þolað það er þeim hafði verið gert. Til að kóróna þetta þá er okkur sagt núna að hafa bæturnar lægri en hjá þeim er tóku málið út. Hverslags viðbjóður er þetta. Hvað er í kollinum á þessu liði?

Gleymum ekki að það voru lögfróðir menn og konur og sérfræðingar sem tóku málið út - hvað var það fólk að hugsa? Eiga þetta ekki að vera sérfræðingar í þessum málum? Er þetta fólk ekki að segja með þessu að þetta hafi í raun ekki verið neitt neitt?

Svo skulum við snúa teningnum við og horfa á annan vinkil. Þá var fjöldi manns sem missti sig í fjármálabulli og skuldar milljóna tugi og jafnvel milljarða og í staðinn fyrir að loka á það lið þá fær það afskriftir hjá vinum og kunningjum í bankakerfinu - og allir brosa - aumkunarvert - Ekki gleyma því líka að sumt þetta bankahark hefur lagst illa á sálina á fólki sem aðeins fór eftir ráðleggingum þeirra er í bönkunum störfuðu, en fóru jafnvel með rangt mál til að fá bónusinn sinn. Bankamaðurinn fær svo jafnvel afskriftir en ekki kúnninn - þetta er rotið samfélag - vægast sagt.

.....spurningin er í raun þessi: Hvar endar þetta?


mbl.is Nefndarmenn fá meira en þolendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítið annað um þetta að segja en.....

Sighvatur Jóns varð ekki neinum til tjóns þegar hann flakaði sundskýluna hans Ragga Rakara seint um kvöld heima hjá Braga, sem er ekki lengur á fluginu.  Óli Venna var að kenna Friffa, sem er ekki lengur í Eyjabúð, að spila innibandí eins og Gunnar Heiðar, sem er ekki lengur í ÍBV eins og fluga á vegg og reif í sitt skegg með badmintonspaðanum hans Óskars í Áhaldaleigunni.   Huginn Helga hoppaði hæð sína og fór að blása því hann vildi ekki mása og sagði að Óskar prentari væri pjása þannig að aðrir hlæji sig hása.  Pása.  ...................  
Maggi Braga var með kraga í nokkra "daga og nætur" eftir Geir Reynis, sem tók hælkrók á Gulla Grettis sem var eitthvað að sýsla hjá Sýsla án þess að tala við Gilla sem finnst ekki gott silfur gulli betra, nema síður sé.  Fóru þeir allir að spila bobb saman, því það er svo gaman fyrir alla, nema Stebba Óla, sem féll í bobb-skóla því hann var alltaf að hjóla milli nýárs og jóla.
Mari fékk sér bollastell og sagði bara "go-to-hell" við Berg bakara sem þoldi ekki Hvata flakara né Ragga rakara og hengdi bakara fyrir smið, fékk sér svið, og snéri sér við og hitt þar fyrir Gauja Rögg, sem var fyrir og með bögg þó hann hafi ekki fengið sér lögg, já ekki einu sinni smá dögg.  Fór því bakarinn uppá Klif, fékk sér verkjalyf og hringdi í Sif, þó ekki Friðleifsdóttur, þar sem hann var sóttur á þyrlu og sendur heim til Hóla þar sem hann fékk að máta kjóla af honum Óla fyrrverandi hafnarverði.


mbl.is American Idol græðir mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upp skal haldið!

Það er greinilegt að Selfyssingar ætla sér strax aftur í hóp þeirra bestu, enda engin ástæða til annars. Liðið er ungt og efnilegt og hefur alla burði til þess að fara beint upp aftur á þá til lengri dvalar en eins árs. Vonandi reynist Joseph Tillen þeim góður fengur. Þá svo að mig persónulega hlakka meira til þess að fylgjast með ÍBV í sumar heldur en þeim Selfyssingum þá er nú staða mála þannig að maður á félaga sem eru að þjálfa í blessaðri deildinni þarna og því verður extra gaman að fylgjast með og því get ég lofað að síminn verður notaður þegar við á á meðan mótið verður í gangi.
mbl.is Tillen til Selfyssinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veisla framundan

Þetta lítur vel út og það er klárt að víða verður bjór í krús og snakk á borði þegar viðureignirnar fara fram. Áhugavert, og verður örugglega skemmtilegt, að sjá Chelsea mæta Man U. var nú að vona að sá möguleiki yrði í stöðunni að Barcelona og Madrid gætu mæst í úrslitum en það þýðir ekkert að æsa sig yfir því það verður ekki. - Ætla svona í gamni að spá í hverjir fara áfram

 

Drátturinn í 8-liða úrslitunum:

Real Madrid - Tottenham
Chelsea - Manchester United
Barcelona - Shakhtar
Inter - Schalke

Leikirnir í átta liða úrslitunum fara fram 5/6. apríl og 12/13. apríl.

Leikirnir í undanúrslitum yrðu þá:

Man Utd - Schalke
Real Madrid - Barcelona

Hefur þú aðra skoðun á þessu?

 


mbl.is Chelsea mætir Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband