Færsluflokkur: Pepsi-deildin

...við berjum hann bara!!!

...er alveg hættur að skilja þetta. Þarna kemur Stjáni inn á það að leikmenn Þórs sé grófir og gangi fram í leikjum sínum með óíþróttamannslegum hætti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég heyri þetta í sumar og ég heyrði af því ávinning um daginn að menn hefðu gengið ansi hart fram gegn KR-ingum um daginn en verið verndaðir á einhvern hátt af dómurum leiksins. Var það sama upp á teninginum í gær? Spyr sá sem ekki veit.  Ég veit ekki með ykkur en ég hélt að í efstu deild karla, Pepsi-deildinni, væri það fimi með knöttinn sem réði ríkjum en ekki einhver bolabrögð þegar boltinn er jafnvel víðs fjarri - Hlakka til sjá Þórsarana koma til Eyja seinna í sumar, þ.e.a.s. ef að það má kalla þessa veðurhörmung sumar.

Áfram ÍBV alltaf allsstaðar 


mbl.is Skulum ekki telja upp alla sem voru lamdir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta getur ekki verið í lagi

Ekki finnst mér nú mikið vit í þessu. Menn hljóta að geta fundið aðrar leiðir til að skoða leikmenn. Ég veit ekki en kannski er það svona sem einhverjir vilja hafa þetta og í raun og veru líta á Reykjavíkurmótið bara sem eitthvert djók.
mbl.is „Bara ef það hentar mér“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt loft úr okkar stelpum?

Ekki voru þetta skemmtileg úrslit ofan í tapið gegn USA. Maður er bara svekktur á ða lesa svona, enda ekki vaninn að sjá svona skelli hjá stelpunum í tveimur leikjum í röð. EN treysti á ða þær hressist fyrir síðasta leikinn í riðlinum. Áfram Ísland
mbl.is Slæmur skellur gegn Svíum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

....nýr leikmaður í hús?

.....ætli við séum komnir með markmann fyrir sumarið, hér á skerinu í suðri?  Gæti nú verið gaman að hafa þennan mann á milli stanganna svona til að hressa upp á deildina.  Hlakka til að sjá hver útkoman verður. Hlakka líka til sumarsins, knattspyrnulega held að þetta verði fínt tímabil, en eitt árið.
mbl.is David James: Langar að spila hér í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innkaupastjóri eða þjálfari!!!

Kannski ekki óeðlileg spurning. Veit samt ekki hvort félagi Maggi er ánægður með að ég setji þetta svona upp. Hann verður þá bara fúll Smile  En svona lítur þetta oft út  þegar horft er á þetta af hliðarlínunni.  Mðaur veltir því stundum fyrir sér hvort þjáflunin sem slík er orðin aukabúgrein í íslenska boltanum og hefur þurft að víkja fyrir innkaupatækni þess er kallaður er þjálfari. Athugið að þetta er ekkert séreinkenni á Val eða Magga, langur vegur frá þetta viðgengst víðar. En sem dæmi má í raun benda á að með öllum þessum innkaupum þá lítur þetta út eins og Valsliðið, hópurinn, í fyrra hafi verið alveg ömurlegt.   ....svo er bara að sjá hvað gerist í sumar.

En það verður nú að segjast eins og er að kaupin á Bjarna Ólafi eru nú bestu innkaupin sem hinn nýji "innkaupastjóri" hefur gert síðan hann tók til starfa, að mínu mati. 


mbl.is Að hluta til mér að kenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...á leið í ÍBV

Það skyldi þó ekki vera að þessi uppsögn á samningi Guðjóns Péturs leiði til þess að hann gangi til liðs við Eyjamenn.
mbl.is Samningi Guðjóns við Valsmenn rift
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki gott!!!

Ekki það að mér sé neitt sérstaklega uppsigað við neinn þarna í stjórn KSÍ en þá finnst mér að í svona samtökum eigi að eiga sér einhver mannabreyting hverju sinni. Einn til 2 aðilar að detta ut og aðrir að koma inn. Það á að vera hámarksseta í stjórn. og eftir það áttu að þurfa að víkja allavega eitt kjörtímabil en getur svo gefið kost á þér aftur. Nærð þá væntanlega inn aftur ef að áhugi þeirra er sitja þingið á aðkomu þinni að stjórn sambandsins er fyrir hendi. Finnst þetta nauðsynlegt til að halda ákveðnu flæði og ferskleika á starfi sambandsins. Þetta á að sjálfsögðu líka við um formannssætið líka. Hitt getur haft þau áhrif að þetta verið svona eins konar sjálfseignarstofnun einstakra aðila. Það er ekki gott og hreyfingin á fullt af góðu og frambærilegu fólki sem vel getur staðið í fremstu víglínu fyrir sambandið.
mbl.is Öll stjórnin tilbúin áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður fengur!

Andri gæti orðið góður fengur fyrir KR verði hann heill á komandi sumrum. Sprækur strákur með mikla reynslu, vinnusemin og festan í lagi en vantar örlítið meiri aga í leik sínum en kannski að þjálfarateymið í vesturbænum takist að aga hann.

Lýst ágætlega á þetta hjá honum, fyrst að hann fór - er Guðs lifandi feginn að hann fór ekki í t.d. Val - en hann hefur gott af því að skipta um umhverfi og takast á við nýja hluti - óska honum alls hins besta en ekki liðnu hans. - hahaha


mbl.is Andri Ólafsson til KR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikill missir

Tetta er mikill missir hjá okkur Eyjamönnum. Besti varnarmadur deildarinnar horfinn á braut. Jú jú víst tòtti manni hann of gódur fyrir tessa blessudu Pepsi-deild og tvì hægt ad gledjast yfir tvì á margan hátt ad hann fór af landi brott. Hann hefdi ekki passad ì treyju annars ìslensks lids svo mikid er vìst!!! En okkur ber ad sjálfsögdu ad takka fyrir framlag hans til ÍBV sídustu ár - tad hefur verid mikid og gott. Hann fèll lika svo ljómandi vel inn í samfèlagid á skerinu í sudri. Takk fyrir okkur Rasmus gangi tèr vel í ad glíma vid ný verkefni.
mbl.is Fyrirliði ÍBV samdi við Ull/Kisa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandamál og ekki!!!!

Er nú ekki viss um að þetta sé alslæmt. Þótt úgandamennirnir hafi staðið sig vel hjá okkur í gegnum tíðina þá hafa þessu stundum fylgt ákveðin vandamál sem oft hafa komið upp á síðustu stundu. Vandræði og tímaplan t.d. í kringum landsleikjaferðir og slíkt. Það er hlutir sem gott er að vera laus við. Þetta er náttúrulega samt skarð sem verður að fylla. Mikilvæg staða markmannsstaðan. Menn leysa þetta.
mbl.is Tansaníumenn yfirbuðu ÍBV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband