Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Það held ég að það sé.......

...ekkert leyndarmál að ansi margar knattsoyrnudeildir eru reknar um efni fram og kostnaður miðað við gæði sé alltof hár. Skipitr þar engu hvort lið hafa fallið eða ekki. Það er löngu kominn tími á að kosntaður knattspyrnudeilda í landinu sé tekin til gagngerrar endurskoðunnar. - það er mín skoðun.
mbl.is Grindavík með 25 prósent niðurskurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikill missir

Það er gríðarlegur missir fyrir okkur ef við missum Rass. Frábær spilari, á margan hátt hefur mér þótt óskiljanlegt að hann skyldi vera allan þennan tíma á Íslandi. Klárlega einn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar. Heldur ekki verra að pilturinn féll vel inn í lífið í Eyjum hafði mikið fram að færa og kom einstakelga vel fyrir. Held að ég megi alveg segja að hann hafi verið hvers manns hugljúfi. Eins og ég sagði þá hefur mér fundist piltur einfaldlega of góður til að spilar í íslensku deildinni, vona svo sannarlega að honum vegni vel hvert sem hann fer.

Það verður gaman að sjá hvernig menn leysa þessa stöðu ef kappinn hverfur til nýrra verkefna. En hafi Rasmusheila þökk fyrir allt það góða sem hann gerði fyrir okkur.


mbl.is Christiansen: Kem ekki aftur til ÍBV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtileg nýbreytni

Finnst þetta hið besta mál hjá stjórn Fram. Leikmaðurinn er óánægður og af því vita allir innan félagsins og engin lausn í sjónmáli, hlýtur að vera. Er þá ekki bara hið besta mál að setja manninn á sölulista. gera ðrum ljóst að strákurinn er falur ef menn setja sig í samband við stjórn Fram. Er alveg viss um að við eigum eftir að sjá meira af þessu í framtíðinni. Menn þurfa ekkert að vera í hinum landsfrægu reykfylltu bakherbergjum til að koma höndum yfir Hlyn Atla. Menn setja sig bara í samband við stjórn Fram.
mbl.is Fram auglýsir Hlyn Atla til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérstök yfirlýsing

Til hvers að vera með yfirlýsingu um þetta? Leikmaðurinn fór annað og Blikar greinilega vel sáttir við það fyrst þeir buðu honum ekki einu sinni samning, já virðast ekki hafa nema rétt imprað á þessum möguleikum við leikmanninn, ekkert formlegt.

Til hvers að vera að reyna að blása upp storm í tebolla?

Hann fór í Fylki allt annað er aukaatriði.


mbl.is Breiðablik: Bundum enda á viðræður við Tryggva
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk fyrir mig

Mig langar nú bara að þakka Guðmundi fyrir hans tíma hjá ÍBV. Sprækur strákur með gott hugarfar og hefuir bærtt sig mikið síðan hann kom. Hann féll vel inn í samfélagið, naut virðingar, gaf af sér góðan þokka og bar virðingu fyrir samfélaginu. Það hafa ekki allir sem hingað hafa komið borið gæfu til þess að koma svona fram. Vona að honum gangi vel á nýjum slóðum og hann haldi áfram að bæta sig sem leikmaður. Ég er ekki alveg eins viss um þetta lið, Sarpsborg, en vona að ég hafi rangt fyrir mér.

Takk fyrir mig/okkur ....kannski kemur sá tími að þú snýrð aftur til landsins og þá verðurðu meira en velkominn í hvíta búninginn..


mbl.is Frágengið hjá Guðmundi og Sarpsborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

....andskotans

Það verð ég að segja að ég hefði glaður viljað fá þennan pilta hingað til Eyja. Sprækur strákur sem ég veit að myndi falla vel inn í tíðarandann hér í Eyjum. Fyrirmyndarleikmaður sem hefur verið einn af ásunum í Safaýrarliðinu síðustu ár og ætlar samkvæmt þessu klárlega að vera það áfram. ...ja nema við bara kaupum hann bara af þeim!!!!
mbl.is Almarr samdi við Fram til tveggja ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er til ráða?

Þetta var nú reyndar stórt íþórttasumar á alþjóðlegum vettvangi, það getur haft áhrif.
Frá Eyjasjónarmiði:
Leiktími hérna í Eyjum var oft fáránlegur - leikir á sama tíma og fólk var en í vinnu - gengur það, ferðalög hafa frá Eyjum hafa aukist, meiri þeytingur með tilkomu Landeyjahafnar. Leikirnir hérna voru á þeim tíma að ef aðkomufólk ætlaði að skella sér þá þurfti oft að fá sér frí frá vinnu - gengur það?

Hvernig voru leikdagar og leiktímar í borginni og nágrenni útfrá vinnu og ferðalögum til og frá völlum með tilliti til stuðningsmanna?

Deildin var ekki góð - það telur

Er of dýrt á völlinn? - eru liðin sjálf orðin of dýr miðað við gæði er hliðarspurning við það

Landsbyggðarliðum mun fjölga á næsta tímabili það mun hafa áhrif, hugsa að tölurnar lækki þá jafnvel en frekar


mbl.is Fækkað um 23 þúsund á tveimur árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

20 milljónir

Sarpsborg þarf að punga út fyrir Gumma Tóta ætli þeir að fá hann. Hversu miklu veit ég ekki en hann er ekki gefins, svo mikið er víst
mbl.is Guðmundur æfir með Sarpsborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

....Viðunandi!!!

Kannski ekki það sem stefnt var að hjá Stjörnustelpum en úr því sem komið var. Einni færri í 60 mínútur þá má örugglega vera nokkur sátt um þessi úrslit. Nú er bara að koma á óvart úti og skora snemma. Koma Rússunum úr jafnvægi og sjá hvort það kemur í ljós þegar á leikinn líður að rússarnir hafi mútað dómaratríóinu!!!!!  ...en það er alveg hægt að komast áfram, en aðeins ef maður hefur trú á verkefninu. Hreinlega frábært lið sem bíður þeirra sem vinna þessa rimma - kaffi í Lyon.
mbl.is Tíu Stjörnustelpur héldu út gegn Zorkij
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sprækur sem lækur.....

.....pilturinn. Búinn að spila vel í vörninni hjá okkur allt tímabilið þessi elska. Einn af þessum vanmetnu leikmönnum sem oft gleymist að tala um. Leikmaður með hjartað á réttum stað.
mbl.is Arnór lék handarbrotinn í hálftíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »