Fengur í okkar fang!

Þarna bætist í leikmannaflóru ÍBV ungur og efnilegur strákur sem eflaust á etir að styrkja okkar annars ágæta hóp. Það verður gaman að sjá hvernig þessum pilti gengur að aðlagast umhverfinu hér í Eyjum og berjast fyrir sæti sínu. Þetta er án nokkurs vafa högg fyrir hið spræka lið Víkings í Ólafsvík en það er þar eins og hér að maður kemur í manns stað. Um leið og ég býð Brynjar Gauta velkomin til liðs við ÍBV óska ég þess að Ólsurum gangi vel í fyrstu deildinni á næsta sumri. Þeir sýndu það í sumar sem leið að þeir geta svo sannarlega bitið frá sér.
mbl.is Fyrirliði Víkinga til ÍBV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

22 3ja stiga körfur!!!

 Það var flug ásólarliðum í nótt í Staples Center. Menn settu niður 22 3ja stiga körfur, metið er 23 sem Orlando setti gegn Sacramento í janúar 2009, í 40 skotum. Jason Richradson með 34 stig og 8 fráköst. Nash með 21 stig og 13 stoðsendingar. Channing Frye kom heitur inn af bekknum og gerði 20 stig og tók 6 fráköst og tyrkinn Hedo Turkoglu gerði 17 stig.

Þetta var fyrsti sigur Suns í Staples center 17 janúar 2008 og nú er sigurhlutfallið 5-4 sem er ánægjulegt.  Grunar að frændi minn Gísli Gunnar Geirsson hringir ekki í dag og félagi Björn Einarsson suður með sjó verður hljóður fram undir hádegi.


mbl.is Lakers tapaði á heimavelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigurgangan heldur áfram

Það er flug á liði Snæfells þessa dagana og það lítur út fyrir að liðið sé að komast í gott jafnvægi. Ég sagði um daginn að það yrði gaman að sjá hver staðan yrði á liðinu um áramót og ég held mig við það. Það verður gaman að sjá stöðuna í deildinni þá. Ekki bara hjá mínu liði heldur að sjá hvaða heildarsvipur verður á deildinni.

Áfram Snæfell


mbl.is Tindastóll áfram á sigurbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Keypti bæjarfulltrúa!

Þetta þykir mér mikill kostnaður við að koma að einum bæjarfulltrúa, 4,6 milljónir. hvað fengu þeir mörg atkvæði? Hvað ætli hafa verið mikil kostnaður per atkvæði?
mbl.is Kosningabaráttan dýrust hjá Samfylkingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sofna á verðinum!

Sérstakt er það þetta greinarkorn sem fylgir með pistlinum. Mistök sem hljóta að verða löguð.

Arsenal komst í dag uppfyrir Manchester United og í annað sætið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með því að sigra Everton, 2:1, á Goodison Park í Liverpool.

Arsenal er þá komið með 26 stig en Manchester United er með 25 stig í öðru sætinu. Chelsea er efst með 28 stig og tekur á móti Sunderland klukkan 16.10. Everton er í 13. sæti með 15 stig.


mbl.is Arsenal komst í annað sætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þunglyndi!

Það ætla ég að vona að Liverpool aðdáendur falli ekki í eitthvað þunglyndi þó að þessi leikur hafi tapast. Leiðin er á toppinn er grýtt og því verður ekkert grín að komast þangað. Það er svo hins vegar spurning hvort að lið sem tapar 2-0 fyrir Stoke City kemst nokkuð á toppinn!!!!! Vona fyrir hönd Liverpool aðdáenda að þetta hafi verið síðasta tapið í svolítin tíma. Á nefnilega nokkra vini sem verða vart viðræðu hæfir ef Liverpool fer að hiksta en frekar.
mbl.is Flottur sigur Stoke á Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blásið til sóknar!

Það er aldeilis að Jón Óli blæs í herlúðra það er klárt að hann ætlar að blása til sóknar í deildinni næsta sumar. Suður-Afríku stelpurnar sem voru í sumar fara heim en þessar fjórar koma í staðinn og eru miklu öflugri en þær er fóru. Nú er bara spurningin hvort allar okkar stelpur verði áfram eða hvort við missum eitthvað af okkar stelpum. Hef ekki heyrt að nein sé að hætta og á í raun bágt með að trúa því að svo sé. Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvort Jón Óli ætlar að styrkja liðið en frekar.
mbl.is ÍBV fær mikinn liðsstyrk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórmerkur dagur ef rétt er

Það verður að segjast eins og er að það er aldeilis sérdeilis stórmerkilegt ef að menn láta hana lausa og ég tala nú ekki um án nokkurra skilyrða.  Það er vonandi eitthvað að marka þetta. Þetta er vonandi ekki svona gabb þar sem að um leið og hún tjáir sig um eitthvað þá er hún aftur komin í fangelsi!!!´  ....kannski er þetta dagur þar sem að birtir til í mannréttindamálum þeirra í Búrma.


mbl.is Suu Kyi látin laus „án skilyrða"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umsjónarmaður yngstu eyju í heimi?

Þetta er nú aldeilis frábært tækifæri metnaðarfullan sérfræðing á sviði náttúru og vísinda. Að hugsa sér að fá að búa í Eyjum. Hugsa um Surtseyjarstofu beint á móti Hressó, sem sagt stutt í ræktina og geta svo skroppið út í Surtsey þegar hentar og fylgst með því sem þar er að gerast en þar er eyja í stöðugri mótun - gerist það mikið betra? Ég bara spyr
mbl.is Leitað að umsjónarmanni með Surtsey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kæru Norðlendingar!

Ef að það ætlar að fara að snjóa svona hjá ykkur næstu misserin vil ég minna ykkur á að nú þegar er hægt að kjósa til stjórnlagaþings hjá sýslumanni og því kannski ráð að gera það þegar færið er gott ef veðurspáin er að hóta einhverju öðru!!!

Frambjóðandi til stjórnlagaþings með númerið 3612 sendir bestu kveðjur norður yfir heiðar, já og bara um allt land, til vina ættingja og stuðningsmanna. Með von um að þið eigið góðan dag í dag sem og aðra daga. 


mbl.is Ekkert fólksbílafæri á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steve Nash dregur Sólina á loft

Stórleikur hjá meistara Nash í nótt 14 stoðsendingar, 28 stig og takið eftir 7 fráköst! Engin 3ja stiga karfa, 13 skot of 18 niður. Hakim Warrick kom líka sterkur inn af bekknum og gerði 18 stig. Þá eru menn komnir í 4-4. Erfiður leikur á mánudag gegn Denver og því er maður ekkert sérstaklega að reikna með að menn komist yfir 50% í þeim leik, en verður maður ekki að vona. Læt fylgja með mynd af Hakim svona til að gleðja hann þegar hann fer á vefinn í morgunsárið.

hakim.jpg


mbl.is Tvöfaldir þrjátíu hjá Kevin Love
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú hefði verið gaman....

....að vera í Reykjavík og get kíkt á þessa nemendaráðstefnu. Það er margt talið upp þarna sem vekur áhuga minn. En svona er þetta maður býr annarsstaðar og dagurinn undirlagður öðru. Kannski verður hægt að nálgast eitthvað af þessu á netinu, veit það einhver?
mbl.is Óhefluð umræðumenning Íslendinga í netheimum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að halda sig á mottunni

Það hefur nú aldrei verið nein sérgrein íslendinga að halda sig á mottunni og sjá hlutina í því ljósi sem umheimurinn sér þá.  Það er nú partur af því sem gerir okkur að Íslendingum hvort menn læra svo af mistökunum er svo allt annað mál.  ...mér sýnist nú ýmislegt benda til þess að nú sé verið að reyna að sanna regluna að það sé erfitt að kenna gömlum hundi að sitja á Íslandi!
mbl.is Döpur Íslandsvæðing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.