...að flýja borgina

Alveg er ég viss um að þetta voru einhverjir ofur æstir Eyjamenn sem vildu komast sem fyrst og hraðast burt úr borginni, sem oft er á landsbyggðinni kennd við ótta og myrkur. Þetta er nú ekki gæfulegt og ég ætla að vona að ökumenn hvort heldur þeir eru á leið í eða úr ferjunni hafi hemil á sér hvert svo sem leið þeirra liggur. Þessar hraðakstursmínútur skila ekki miklu í þessum stuttu vegalengdum sem menn eru yfirleitt að fara. Það er betra að fara aðeins hægar og komast í einu lagi á áfangastað heldur en að komast kannski aldrei, eða renna í hlað nokkrum þúsundköllum fátækari.
mbl.is Segjast vera að flýta sér í ferjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðiefni ef rétt er

Þetta eru góð tíðindi ef rétt eru. Aldeilis kominn tími á að losa um hlekkina hjá þessari elsku. Það er svo sem alveg kominn tími á að lýðræðið hefji inngöngu sína í Myanmar/Búrma. Herforingjastjórnin mætti alveg kasta frá sér lyklavöldunum en það verður nú samt að gera á þann að það fari ekki allt fjandans til. Þessi þjóð hefur ekkert gert til að verðskulda þessa meðferð sem hún er að fá.   ...vona að tíð Aung San Suu Kyi í stofufangelsi sé að líða undir lok. Læt fylgja hér með Lag U2 sem að hefur verið tekið reglulega í tónleikaferðum síðustu ár til heiðurs Suu Kyi og til að minna á óréttlátt stofufangelsi hennar sem og annarra sem eru í slíkum fjötrum.

En hvað er þetta með greinarskrifin á mbl.is á stundum. Skelfilegar villur þarna 


mbl.is Suu Kyi verði sleppt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta líkar mér

Veit ekki hvað öðrum finnst en þetta líkar mér. Enda var það á sínum ferðalag mitt og Magga Gylfa til Englands á vegum ÍBV sem varð til þess að Ian Jeffs kom hingað í fyrsta sinn. Þá komu hann og Tom Betts til Eyja og spiluðu með ÍBV við góðan orðstír. Tom betts kom aldrei aftur heldur spilaði eitt tímabil í utandeildinni og er í dag skrifstofuamaður með stóru S-i. Ian David Jeffs hefur hins vegar spilað hér á landi og í Svíþjóð eins og flestir vita en ekki alltaf gengið vel. En hann hefur reynst okkur Eyjamönnum drjúgur þegar hann hefur klæðst hvítabúningnum ef undaskilin er tíðin þegar hann var alltaf að fá rauðuspjöldin. Wink   ...en ég bíð félagann velkominn til baka, nú þarf maður að fara að undirbúa sig undir að hluta á meira Everton bull en gengur og gerist dags daglega!!!!
mbl.is Ian Jeffs á leið til ÍBV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá Villa

Þarna er ég ánægður með Vilhjálm. Koma fram strax leggja línur og skora á aðra. Reikna með að hann sé í símanum núna að hóa liðinu saman. EN þetta gæti orðið ansi erfitt er ég hræddur um. En það er í þessu eins og öðru verður maður ekki að vona það besta og að það takist að þoka málum í réttan farveg án þess að einhverjir verði skyldir eftir í tómu tjóni.

Viss um að þetta verður flott helgi hjá Villa!


mbl.is SA leita eftir samtarfi allra aðila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegur sigur

Frábært að leggja sjálfa Grindjánana. Gríðarlega sterkt lið hjá Grindavík og þeir eru svo sannarlega til alls líklegir í vetur en málið er að svo er einnig um lið Snæfells og því ljóst að úrslitin gátu enda hvoru megin sem var. Snæfell virðist vera að komast á gott flug og það verður spennandi að sjá hver staðan í deildinni verður þegar maður opnar jólakortin. Áfram Snæfell
mbl.is Fyrsta tap Grindvíkinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svör við spurningum Biskupsstofu


Það kom póstur frá Biskupsstofu og þar segir meðal annars:

Biskupsstofa fer þess visamlegast á leit við þig að þú gerir í stuttu máli grein fyrir afstöðu þinni til 62. gr. stjórnarskrárinnar sem hljóðar svo:

„Hin evangeliska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi, og skal ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda. Breyta má þessu með lögum.”

1. Telur þú þörf á að breyta þessari grein? Ef svo er hvernig?
 Sjá svar við spurningu 2
2. Hver er afstaða þín til núverandi sambands ríkis og þjóðkirkju?
 
Mér er það bæði ljúft og skyllt að svara þessum spurningum og hér fylgja svör mín:
 
Því miður hefur kirkjan misstigið sig, ekki kannski kirkjan sjálf en ákveðnir lykilmenn sem starfa innan hennar. Þurfum ekkert að fara út í þá sálma hér. Það er náttúrulega bara eðlilegt að hinn almenna borgara setji hljóðan og jafnvel „bölvi“ kirkjunni eftir allar þær sögur sem í ljós hafa komið.. Kirkjan missti mikið traust hjá mörgum , allt hjá sumum, og mörgum finnst því eiga að aðskilja hana frá ríkinu fyrir fullt og allt. Það er brekka fram undan fyrir kirkjunnar menn segja margir, en aðrir eru þessu ósammála og vilja meina að vatnið hafi bara gárast um stundarsakir. Þið vitnið í 62. gr. stjórnarskrárinnar og hvort það eigi að breyta þeiri grein. Ég vil gera þetta svona og vitna í 79 grein. Stjórnarskrárinnar en þar stendur í seinni hluta greinarinnar:
  Nú samþykkir Alþingi breytingu á kirkjuskipun ríkisins samkvæmt 62. gr., og skal þá leggja það mál undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu, til samþykktar eða synjunar, og skal atkvæðagreiðslan vera leynileg.

Mín hugmynd er nefnilega sú að Alþingi leggi það bara í hendur þjóðarinnar hvað hún vill gera varðandi þetta mál. Þjóðin tekur bara hreina og klára afstöðu hvort hún vill fullan aðskilnað ríkis og kirkju eða ekki, og þá væntanlega í leiðinni dóm á það hvort að hin evangeliska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi . Held að ég sé ekki ósanngjarn með því að leggja þetta til.  Bæði þeir sem vilja aðkilnað ríkis og kirkju og þeir sem vilja það ekki hljóta að hafa trú á lýðræðinu. Því er það mín skoðun að valið sé þjóðarinnar!
Þetta legg ég til, maður sem geng með kross um hálsinn þó ekki sé ég mjög kirkjurækinn maður.
 


...of seint í rassinn gripið!

Þetta er allt búið og gert menn breyta þessu ekki héðan af. Skaðinn er skéður og slæmt til þess að vita að menn hafa boðist til að styðja eitthvað líkt því og þarna átti sér stað, en samt er eins og menn hafi verið pínu hræddir um að þetta læki út að "við" hefðum stutt þetta brölt.
mbl.is Spurðu hvort listinn yrði birtur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta verður spennandi

Þetta er frábært. Þetta er viðureign sem að maður bíður spenntur eftir. Þetta verður svakalegur leikur. Ég spái því að Snæfell hafi þettaenda á heimavelli.


mbl.is Snæfell mætir Njarðvík í bikarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli menn nái tvennunni?

Góður sigur hjá ÍBV stelpunum - til hamingju með það - Liðið greinilega að slípast betur og betur saman og það táknar að þetta er allt í áttina og verður örugglega vel ásættanlegur vetur.  En nú er stóra spurningin hvort ÍBV nær tvennu yfir Haukum í bikarnum í vetur því ÍBV-b mætir íslandsmeistaraliði Hauka í karlaflokki á laugardaginn. Það stefnir reyndar í að það verði eitthvað um forföll hjá ÍBV-b á laugardaginn en ég er samt ekki viss um að það veiki liðið það mikið að Haukarnir eigi sigurinn vísann, en við sjáum til.

Áfram ÍBV


mbl.is ÍBV komið í 8-liða úrslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kominn með það

Sá þetta bréf í innboðinu mínu núna rétt áðan. Nú er að setjast við að svara þessu og birta svo bara Ég var mjög hissa þegar ég sá bréfið en kannski á maður ekki að vera hissa. Það er búið að ganga mikið á í kirkjunar málum. Kannski ekki rétt að segja þetta svona, það er búið að ganga mikið á í kringum kirkjunar rmenn er kannski réttara að segja. En það náttúrulega hefur skaðað ímyndina svakalega. Svörin birtast síðar.


mbl.is Frambjóðendur spurðir um samband ríkis og þjóðkirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fásinna!

Það yrði náttúrulega mikill skellur fyrir Formula 1 kappaksturinn ef minn maður Jarno Trulli segði skilið við keppnina!!!!  Ekki kannski sá sigursælasti sem keppt hefur í Formula 1 en nafnið er flott og til staðatr eru hæfileikar sem ekki á að sóa í aðrar tegundir af kappakstri. Wink

Áfram Trulli


mbl.is Trulli ekki á förum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komnir áfram!!

Það held ég að það sé engin lýgi að við eigum þarna góðan séns á að komast áfram. Það er helst að Hvít-Rússar geti skellt okkur. ÉG er næsta viss um að við vinnum bæði Danska liðið sem og hið Svissneska.  Nú eru strákarnir sumir hverjir að fara að spila með A-liðinu og hægt og rólega slípast þetta til og ef menn vanda síðustu handtökin verður þetta eins og vel smurð vél sem fátt fær stoppað. Þannig að í raun er þetta núna bara spurnign um hvað englendingar gera ef þeir komast áfram upp úr sínum riðli þá erum við kominn með lið á Ólympíuleikana í London!!!!

EN það er nú samt best að missa sig ekki strax það eru nú 7 mánuðir í fyrsta leik!!!


mbl.is Ísland í riðli með Danmörku, H-Rússlandi og Sviss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja hérna.....

thumbnail....það er nú ágætt að þessi elska er horfinn af forseta stóli........langaði greinilega í stríð, ja allavega annan hvern dag en ákvað síðan í staðinn að kalla bara herinn heim frá Íslandi, væntanlega þá á degi sem ekki var verið í stríðshugleiðingum.

Finnst þessi mynd alltaf góð af þessari elsku.


mbl.is Íhugaði að ráðast á Íran og Sýrland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.