Skref í rétta átt

Það verð ég að segja að þetta er skref í rétta átt. Gott ef að menn eru að reyna að leita lausna til að takast á við þennan vanda. Hann er hvorki léttur né auðleystur svo mikið er víst. Verðum við því ekki að reyna að gleðjast yfir þessu og vona að þetta hjálpi einhverjum að takast á við þá erfiðleika sem hann/hún/þau eiga við að glíma.

Annars var ég nú í spjalli í dag að velta því upp með fólki hvort siðferðið og samkenndin í fólki væri ekki á háu stigi hér á landi. Hér er fullt af fólki sem á yfirdrifið nóg af seðlum. Fólk sem veit vart aura sinna tal. Fólk sem hafði pening af öðrum í góðærinu og jafnvel er að fá afskriftir og þar fram eftir götunum. Ætli þessu fólki hafi ekki dottið í hug að leggja einhver hundruð þúsunda, já eða jafnvel milljón/ir í batterí eins og fjölskylduhjálpina á þessum erfiðu tímum. Gleymum því ekki að sumt af þessu fólk sem á í gríðarlegum erfiðleikum að hluta til vegna glæfralegrar framgöngu þessa efnaða hóps.

mbl.is Stefnt að hærri fjárhagsaðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samstaða er lykillinn

Vilji menn árángur þá er lykilatriðið að standa, algjört lykilatriði. Niðurskurðurinn getur verið harður, jafnvel blóðugur. Fólk verður því líka að skoða málin sjálfstætt og sjá hvort hægt er að hjálpa frekar til við að takast á við vandanum, þó hann sé ekki heimaskapaður. Líta í kringum sig og sjá hvort það geti verið að einhversstaðar sé í raun hægt að klípa í reksturinn án þess að skerðing á þjónustu verði of mikil, en rekstrarkostnaður minnki samt. Ég veit að það er búið að stíga á stofnunina þarna eins og annarsstaðar á síðust árum, en ef að það er nál í heysátunni þá er þetta stundin til að finna hana.  Í sameiningu og með samstöðuna að vopni finnst nálin það er ég viss um!

mbl.is Samstaða meðal Seyðfirðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæ hó jibbí......

Nú er bara að krossa fingur og vona það besta. Hef fulla trú á að þetta gangi nú allt saman upp hjá þessum elskum...........loksins.  Kannski að maður nái að sigla í L(S)andeyjahöfn fyrir áramót!!

Ef að þetta tekst þá er það hið besta mál. Langar líka að þakka Ögmundi Jónassyni ráðherra fyrir hans festu varðandi mál Landeyjahafnar, eftir að þetta fjörið byrjaði allt saman, er ekki viss um að allir hefðu verið jafn ákveðnir í afstöðu sinni. ....nú ef að fólk vill meina að allir hefðu verið svona ákveðnir þá er það bara hið besta mál.  Annað sem vert er að benda á og það er að margir drógu í efa orð þeirra hjá siglingastofnun að gosefni væru svona mikill áhrifavaldur við höfnina sem raun ber vitni en þeir virðast hafa haft hárrétt fyrir sér. Heitir það ekki að vera fagmaður? eða eru þetta bara góðir giskarar?

Get ekki að því gert en ég hlakka til þegar Gulli kafteinn byrjar að sigla styttri leiðina á ný!

mbl.is Stefnt að siglingu í Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottur kynningarvefur kominn í loftið!

Hingað til hefur svipan.is verið duglegust í því að kynna frambjóðendur fyrir þjóðinni en nú hefur verið skellt inn á kosning.is kynningu á öllum frambjóðendum sem og kjörseðill þar sem hægt er að æfa sig að kjósa. Þetta má finna undir kynning á frambjóðendum

Sniðug og góð síða

Hvet lesendur til að muna eftir að æfa sig að setja 3612 í eitt af efstu sætunum ef ekki það efsta bara, það telur

Fín kynning en verður ESB í stjórnarskránni?

Agalega finnst mér hvimleitt að lesa um frambjóðendur til stjórnlagaþings, og aðra áhugasama,  sem eru að kýta um hvort ganga eigi til liðs við ESB eða ekki og það út frá stjórnarskrárumræðunni.  Já mér finnst bara leiðinlegt að heyra fólk tala um stjórnarskrána og ESB eins og það sé nánast komið samasem merki  þar á milli.  Farið er að flokka fólk eftir því hvort það sé með eða á móti ESB. Hvað á það að þýða? Hef ekki nokkra trú á að ESB verði partur af stjórnarskránni sem sett verður saman. Hef nú meiri trú á stjórnlagaþinginu en að svo verði. Menn verða nú samt að gera ráð fyrir því, að mínu mati, að viðræður við önnur ríki eða ríkjasambönd um nánari tengsl geti átt sér stað í framtíðinni.
 
Það þurfa að vera um það skýrar reglur í stjórnarskránni á hvaða hátt íslensk stjórnvöld geta gengið til viðræðna við önnur lönd/sambönd um sameiningu, samstarf eða samruna, komi til þeirra hluta. Samanber t.d. ESB, já eða t.d. norrænt ríkjasamband í framtíðinni. Reglurnar verða að vera þannig í stjórnarskránni að ekki þurfi að kalla eftir sérstökum lagabreytingum til þess að mega fara út í slíkar viðræður. Meirihluti á Alþingi á að duga, en það þarf jafnframt að vera á hreinu að ef  menn ná samningum í slíkum viðræðum að þá liggur endanlegt ákvörðunarvald hjá þjóðinni og hvergi annars staðar. Það eiga ekki að vera neinar vöflur á því. Þjóðin skal hafa úrlsitavaldið, ekki Alþingi eitt og sér, það finnst mér  lykilatriði.
 
Við hljótum að vilja að stjórnarskráin staldri ekki bara við í nútímanum heldur fylgi þjóðinni inn í framtíðina. Því verður þessi möguleiki að vera fyrir hendi við getum ekki bara skellt í lás. Stjórnarskráin á ekki bara að vera ætluð okkur heldur einnig afkomendum okkar og svo áfram. Því þurfum við að vanda frágang við ákvæði eins og t.d. þetta.
 
Ég lít ekki á það sem mitt hlutverk í þessari stjórnlagaþingsumræðu að segja fólki hvort að ESB sé slæmt eða gott. Hvað þá að flokka fólk eftir því hvort það er Nei- eða Já-sinni. Það er einfaldlega svo í mínum huga að allir kosningabærir aðilar eiga að fá tækifæri til að segja sinn hug í máli sem slíku. Það á að vera stjórnarskrárvarinn réttur hvers og eins. Það hlýtur svo á endanum að vera eðlilegt að meirihlutinn ráði, ekki satt? Hvort ég tilheyri svo meirihlutanum í þessu máli eða öðrum kemur svo bara í ljós.

mbl.is Frambjóðendur kynntir á vefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður ESB í stjórnarskránni?

Fagnaðarefni?

Frábær leikmaður Alfreð og það er óskandi að læknisskoðun fari ekki að stöðva þessa færslu hjá pilti. Vissulega verður söknuður hjá Blikum að sjá bak þessum góða leikmanni, önnur félög gleðjast örugglega að vissu leyti, en það er ég viss um að þeir fá í kassann nokkrar krónur sem munu án nokkurs vafa nýtast félaginu vel í rekstrinum og við það að reyna að búa til fleiri frambærilega spilara til að taka við keflinu þar sem að Alfreð skilur það eftir.

Það er alltaf gaman að sjá þegar leikmenn stíga skrefið héðan að heiman og út í atvinnumennskuna og ég vona svo sannarlega að þessi félagaskipti verði gæfuspor fyrir Alfreð og í leiðinni íslenskan fótbolta.

mbl.is Lokeren kaupir Alfreð Finnbogason
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur einhver...

...heyrt í Benitez í kvöld? Ég sá viðtal við hann áðan þar sem að hann var að verja gjörðir sínar gagnvart ummælum Hodgson sem tók við af honum hjá Liverpool.  Spurning hvað hann segir eftir ófarirnar í kvöld! Ætli hann skammi ekki Mourinho fyrir að hafa ekki skilið eftir nógu sterkt lið!!!!!  Þessa dagana brenna brýra ð baki Benitez og ef svo fer fram sem horfir byrja þær að hverfa fyrir framan hann líka innan skamms og hann fellur í hyldýpið og verður öllum gleymdur, nema kannski nákomnum ættingjum!!!
mbl.is Tottenham skellti meisturunum - Góður útisigur hjá United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á rangri hillu!!!

Huddersfield að gera þokkalega hluti en við skulum bara af því að ég er svo ánægður með lífið þessa dagana skoða stöðuna í deildinni....... jújú mínir menn mávarnir af suðurströndinni komnir með góða forustu, en reyndar eru aðeins búnir 15 leikir. Það breytir því ekki að við höfum unnið 2 síðustu leiki 3-0.  .....það erum sem sagt mávarnir sem eru á réttu hillunni!!!

1.=Brighton156201454211231834
2.=Huddersfield154211264041311826
3.+2 +2Peterborough1550221153141012425
4.+2 +2Charlton15421773231313025
5.+4 +4Southampton154229531397624
6.-3 -3Colchester15251121234085324
7.-3 -3Bournemouth15511208143891123
8.+2 +2Carlisle1542211623297723
9.-1 -1Oldham153401152331012422
10.-3 -3Sheff Wed1532355313126621
11.=MK Dons15530114106817-221
12.=Bristol Rovers15322792421010-221

mbl.is Góður sigur hjá Jóhannesi Karli og félögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta táknar aðeins eitt

Skilaboðin þarna eru skýr. Enska knattspyrnusambandið er einfaldlega sammála hinum innkaupa óða Harry Redknapp. Þess vegna verður ekkert gert í málinu. Hvort það er góðs viti eða ekki ætla ég ekki að dæma um.  

.....svo ef við tökum samsæriskenninguna á þetta þá geti verið að menn vilji hafa hann góðan því hann kemur víst sterklega til greina sem næsti stjóri enska landsliðsins. En hvað gerist varðandi landsliðið er nú oft hálf dularfullt.

mbl.is Redknapp slapp við ákæru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel undir....

.....meðal aldri frambjóðenda. Enda aðeins 43 ára. Gaman að sjá svona úttektir á frambjóðendum. Ekki nóg með það heldur tilheyri ég líka þeim hópi sem búsettur er utan höfuðborgarsvæðisins. 

Nú fer baráttan af fara á fullt, heyrist mér og vonandi verða menn málefnalegir og heiðarlegir í umræðunni.

mbl.is Meðalaldur frambjóðenda 47 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðitíðindi

Þessu fagna ég. Eftir að Arnór kom nálægt þessu liði og tók við kefli bróður síns, Unnars, þá hefur verið gaman að fylgjast með kauða. Hann er einn af þessum heimapeyjum sem eru liði eins og ÍBV svo gríðarlega mikilvægir. Nú eru Anton Bjarna og Arnóra klárir og brátt detta inn tíðindi af nýjum leikmönnum...bíð spenntur.
mbl.is Arnór Eyvar framlengir við ÍBV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harry Redknapp Íslands?

Maður veltir fyrir sér hvað Kristján Guðmundsson og stjórn Vals eru að spá þessa dagana. Það er eins og þeir hafi opnað sérstaka innkaupadeild þetta haustið. Nú er verslað eins og enginn sé morgundagurinn. Hvort þetta er lausnin á frekar slöku gengi síðustu 2ja tímabili skal ég ekki fullyrða hér en það er á hreinu að það verður öllu tjaldað á Hlíðarenda og já og jafnvel meiru.

Maður veltir fyrir sér hvort að maður geti kallað félaga Kristján Harry næst þegar maður hittir hann. EN eins og flestir vita þá er vandfundinn sá stjóri sem þjáist af meira innkaupa æði en blessaður Harry karlinn. Wink

mbl.is Færeyskur landsliðsmaður í Val (myndskeið)
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband