Hvað er búið að afskrifa?

hvað er búið að afskrifa hjá útrásarvíkingum?- getur einhver tekið það saman? Hvað er búið að skrúfa niður hjá hinum og þessum sem ekki tilheyra þessum hópi. Hvað þurfti ríkið að henda mörgummilljoörðum í að halda Sjóvá á floti eftir Wernerbræður og fjölskyldu vafningsBjarna?

Menn verða að finna út hvað er hægt að gera og það hraðar en gerst hefur hingað til. Mikið af þjóðinni hangir á bláþræði.


mbl.is Aðgerðirnar kosta 200 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegur sigur

Glæsilegur sigur og menn eru einu hænuskrefi nær því að komast yfir þröskuldinn og í úrslitakeppnina í Danmörku. Nú bíður maður yfir spenntur eftir seinni leiknum og vonast eftir hagstæðum úrslitum. Mörgum þykir þetta kannski ekki merkilegur sigur en hversu oft hefur A-landslið okkar sigrað Skota? Reynslan sem að menn fá með þessum umspilsleikjum og jafnvel að komast í úrslitakeppnina á eftir að nýtast mönnum vel og vonandi verða A-landsliðinu okkar til framdráttar og hjálpa því að komast úr þeim ógöngum sem það lið er búið að vera í í lengri tíma.

Nú er bara að vona að hvorki A né U-21 tapi leikjum sínum eftir helgi.


mbl.is Eins marks forskot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vaknaður af værum blundi.

Var hann ekki að lýsa yfir fjölmiðlaþögn um daginn blessaður? ...svo kemur hann með glaðning.

Sérstök ummæli eins og oft áður hjá kappanum. Chelsea búið með Man. City og Arsenal, sem bæði eru klárlega á meðal topp 6 liða í styrk þannig að ekki má reikna þar örugg 3 stig, enda tapaði Chelsea gegn City.

En það má karlinn eiga að þegar hann tjáir sig þá er oft hrikalega gaman að hlusta á hann, stundum hristir maður hausinn út í eitt af gleði yfir yfirlýsingum kappans. - Flottur dúddi.


mbl.is Ferguson: Chelsea ætti að vera með fullt hús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er verið að lækka meðalaldurinn?

Já eða eru menn að skera niður kostnað? Ekki ólíklegt að báðir þessir leikmenn hafi verið með nokkuð feita samninga, sérstaklega Auðunn. Það verður gaman að hvaða leikmenn Grindvíkingar munu reyna við hér innanlands fyrir átökin næsta sumar. 2 síðustu sumar hafa valdið þeim miklum vonbrigðum og víst er að liðið má ekki við mun meiri skakkaföllum ef halda á í það að hafa aldrei fallið úr efstu deild.
mbl.is Auðun og Grétar Ólafur hætta með Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sko Hrafn

Hrafn kominn í hóp okkar sem viljum einstaklíngskosningar ekki flokkafár - velkominn í hópinn.
mbl.is Bankarnir áttu að fara í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálfsögðu

Alltaf hefur þetta blessaða sjúkrahús, eins og önnur á landsbyggðinni verið í vörn gagnvart niðurskurði. Oft hefur mann blöskrað. Tala nú ekki um núna, enda erum við hér að ræða um að taka nánast bara tvær hæðir af húsinu og hafa aðeins opið í kjallarann, viskulegt það. .....auðvitað mótmælum við slíku.

Ég held að við skiljum öll að einhver niðurskurðu er nauðsynlegur eftir hörmungarnar sem voru látnar ganga yfir þjóðina, og ekki sér enn fyrir endan á. En stundum getur manni ofboðið. Held að þetta fólk hefði nú átt t.d. að byrja á að skera niður fjárfrmlög til stjórnmálaflokka, þó ekki væri nema til að líta á það sem refsingu fyrir illa unnin störf síðastliðin ár.

Á öðrum nótum bíð ég en eins og fleiri eftir því að menn sérhæfi sig í einhverju á þessu blessaða sjúkrahús. Heilsusjúkrahús, með meðferð offitusjúklingasem sérgrein. Eða sjúkrahús með lokaða deild fyrir siðblinda pólitíkusa, þá myndi jafnvel líka skapast atvinna við að stækka sjúkrahúsið!!!


mbl.is Starfsfólk mótmælir í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta verður forvitnilegt

Það verður gaman að sjá hvernig þetta þróast. BÍ, ekki Bolungarvík með þá,  ekki verið í efstu deild síðan Gísli Magnússon Eyjamaður var þarna þjálfari. Man nú ekki hvaða ár þetta var en það er langt um liðið. En liðið hlýtur að vera búið að setja stefnuna þangað á ný. Þetta verður forvitnilegt. Hlakka til að fylgjast með þróun mála þarna.
mbl.is Erum að fá færasta og sigursælasta þjálfara landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afar sérstakt svo ekki sé meira sagt!

Var að hlusta á fréttirnar á Rás 2 og þar var sagt að Imperial sporðdrekar séu nokkuð vinsæl "gæludýr" hjá söfnurum og áhugamönnum um svona dýr. EN þeir ku vera á válista og í útrýmingarhættu. Samt var farið með þá ásmat tarantúlum og snákum og öllu fargað að Keldum!!! Wink
mbl.is Tarantúlur, sporðdrekar og snákar í farangrinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atvinnuskapandi mótmæli

Það er ljóst að nokkur vinna skapast við tiltektina og reikningurinn fyrir hreinsuninni kemur til mótmælenda. Þrifin virðast ganga vel að utan en spurning með hvernig mun ganga að þrífa og taka til innandyra.

En það sem skilur mest eftir sig er gremja fólks út í þingheim og vinnubrögðin þar. Jújú eflaust hefur ýmislegt lagast en það er bara engan veginn nóg. 

Athyglisvert finnst mér að tónninn í þingheimi virðist aðeins hafa nálgast fólkið fyrir utan en hvort það eru bara orðin tóm á eftir að koma í ljós en ljóst er að menn fá ekki mikinn tíma.


mbl.is Hreinsað til við Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðmannasleikjan

Það er eitt af stærstu vandamálum þjóðarinnar þessi auðmannasleikjuskapur sem í gangi er í bankakerfinu og víðar, t.d. á þingi.

Vanhæft Alþingi


mbl.is „Finnst stjórnin handónýt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fínasti hópur

Sé ekki betur en að þetta sé fínt val hjá Óla. Ég er ángæður með að sjá Helga Val þarna. Svo gleðst ég yfir því að sjá Hemma Hreiðars og Gunnar Heiðar þó þeir hafi ekki verið að spila mikið upp á síðkastið þá er þetta vonandi allt í áttina hjá þeim og Gunnar skoraði nú um helgina. EN auðvitað eru fleiri þarna sem gaman verður að sjá spjara sig.- Þetta er hópurinn sem mun krækja í stig gegn Protúgölum eins og þjálfarinn talaði um eftir leikinn við Dani.
mbl.is Elmar, Gunnar og Hermann í hópnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert, bókstaflega ekkert.....

....sem kemur á óvart þarna.

Þetta er pólitíkus en krafan er nú sú að 4 flokkarnir verði bara lagðir niður.


mbl.is Líta mótmælin öðrum augum nú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú reynir á

Roy Hodgson hefur löngum þótt fínn knattspyrnustjóri þó svo að ekki hafi hann alltaf verið að þjálfa toppliðin. En kannski er það það sem honum farnarst best það er að segja stjórna einvherju minna liði og vinna í að bæta það. Vil nú ekki meina að Liverpool sé orðið eitthvert minna lið í enska boltanum þó að þeir hafi ekki rakað inn dollum síðustu ár. En ég held nú líka ða vandinn hjá Liverpool  sé djúpstæðari en svo að það sé bara hægt að taka þjálfarann af lífi. Held að klúbburinn þurfi að hreinsa út andrúmsloftið allt í gegnum klúbbinn. Held að hin og þessi undirliggjandi vandamál sé að þjaka þennan blessaða klúbb og ekkert lagist fyrr en búið er að lofta vel út og þvo allt með sterkri klórblöndu.
mbl.is Hodgson: Óásættanleg staða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.