Yeah right!!!

Tryggvi segist ætla að spila - já já gott og vel hjá mínum manni. En ég sé bara ekki að hann komist í hópinn eftir góðan sigur ÍBV á Kjalnesingum í bikarnum í gærkvöldi, og góðan leik eftir að hann fór útaf í Keflavík. Held að Tryggvi muni því hvíla og verða hvíldinni feginn Wink     ........en stigin þjú sem í boði verða þau lenda hjá ÍBV
mbl.is Tryggvi ætlar að spila gegn Víkingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hip, hip, húrra

Þetta ætti að róa um stundarsakir þann fjölmenna hóp sem heimtaði hefur landsfund, helst í hádeginu í gær.   Það verða vonandi einhver átök sem fylgja þessu og kannski bjóða einhverjir sig fram í áhrifastöður, þá á ég við eitthvað fólk sem ekki hefur staðið í fremstu röð síðustu ár.
mbl.is Landsfundur í nóvember
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Toppurinn á ísjakanum

Held að það megi nú segja að þetta sé nú aðeins toppurinn á ísjakanum. Hversu mikið hefur ekki verið rætt um mútur og mútuþægni í sambandi við FIFA í gegnum árin. Nánast hver einasti kjaftur sem þarna er hefur verið sakaður um eitthvað misjafnt.
mbl.is Rannsókn hafin á Bin Hammam
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðbjóðurinn lifir!!!

Athyglisvert hvað nauðganir og slíkur viðbjóður virðist oft blómstra í þegar hermenn þurfa að sína mátt sinn gagnvart þeim er minna mega sín og hafa jafnvel ekkert gert af sér.  Ætli það sé svona mikið um heilþvótt í þessum herdeildum, eða velst bara einfaldlega svona sjúkt lið í þessi störf? Það er ekki eins og þetta sé bara í Búrma. Við höfum nú aldeilis fengið að heyra sögur frá öðrum löndum síðustu ár.  Hrikalega er mikið af svona sjúku liði sem virðist ganga laust........og það á fullum launum.
mbl.is Nauðganir stríðsvopn í Búrma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landssöfnun að hefjast!

Til stendur að hefja landssöfnun á vasaklútum til að senda til Noregs, ef þessu væli linnir ekki.

Sérstakt að heyra af svona viðhorfi frá fólki sem virðist klárlega ekki gera sér grein fyrir því hvað í gangi er hér á klakanum. Maður hefði nú haldið að allir Norðmenn gerðu sér grein fyrir þessu. Ekki að ég þurfi að kvarta hér í Eyjum en blessað fólkið í nágrenni við eldsumbrotin. Það á ekki sjö dagana sæla og ég er nokkuð viss um að þetta norska flón, já og jafnvel fleiri, gera sér nákvæmlega enga grein fyrir því er gengur á - því miður.


mbl.is Norðmenn öskureiðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smámunir

Þessi átök í VG eru bara smámunir miðað við það sem fólkið er að berjast við í miðju gosinu  á suður og suður-austurlandinu. Er ansi hræddur um að fólk nenni lítið að velta sér upp úr einhverjum svona pælingum meðan átökin við náttúruöflin og atganginn í Grímsvötnum standa yfir.
mbl.is Talið er að formannsslagur í VG sé hafinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meistari Zamora mættur aftur

Bobby karlinn búinn að vera meiddur lengst af í vetur og því ekki getað spilað þá landsleiki sem fram hafa farið - því miður. Athyglisvert líka að sjá hvaða árangri Fulham hefur náð í vetur þó Bobby hafi verið fjarverandi lengstum. Þeir verða bara sterkari næsta vetur - er viss um það. Já en að landsliðsvalinu. Ég er ánægður með að Capello skuli velja hann, hélt að hann myndi kannski geyma það þangað til í haust. Þegar maður horfir yfir þá framherja sem hann hefur valið að þessu sinni sýnist mér augljóst að Bobby Zamora byrjar inná Smile     .....gamli Brighton búningurinn sem ég fékk frá honum í gegnum Ívar Ingimars verður því kannski aðeins verðmætari - hahaha
mbl.is Zamora valinn í landsliðshópinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífríkið er magnað.....

Alltaf finnast mér þessar fréttir af hinum og þessum viðbótum í dýra- og plönturíkinu jafn magnaðar. Þetta er svo margbreytilegt og flott að það liggur við að maður verði alveg kjaftstopp yfir þessu öllu saman. Er samt nokkuð glaður að allt það nýja sem finnst er ekki í bakgarðinum hjá mér Smile   .....enda væri nú á líka sennilega löngu búið að finna þær tegundir!!!
mbl.is 80% tegunda heims enn óþekkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kætir marga!

Það að Bendtner vilji yfirgefa herbúðir veit ég að gleður nokkuð marga Arsenal menn sem ég þekki. Margir þeirra hafa líkt honum við fíl í postulínsbúð þegar hann er á hreyfingu um græna knattspyrnuvellina. Ekki hef ég skoðun á því en held samt að menn ættu kannski ekki að fagna of snemma því ekki er víst að það komi tilboð í pilt Smile
mbl.is Bendtner vill yfirgefa Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kominn í leitirnar aftur!

Kletturinn er fundinn - var en á sínum stað og sést núna greinilega þegar þéttleiki öskumagns í loftinu hefur minnkað, allavega um stundarsakir.
mbl.is Heimaklettur horfinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki leiðinlegt

Þrjú fantagóð stig svo ekki sé meira sagt. Ekki amalegt að gera svona ferð í Bítlabæinn. Fyrir mér lítur þetta út sem gott framhald af ágætum seinni hálfleik gegn Blikum um síðustu helgi. Ætti að verða bara betra þegar allir verða heilir og komnir í gír. Hef engar áhyggjur þetta verður í góðu lagi í sumar. 

Til hamingju strákar - Bikarinn á miðvikudag, ef ég man rétt, og svo Víkingar heima.


mbl.is Eyjamenn í annað sætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning um vilja?

Sé að leik Þór/KA gegn Grindavík í kvenna sem fram fer í Grindavík er ekki frestað. Ekki heldur Keflavík - ÍBV í karlaboltanum þannig að kannski var þetta bara spurning um vilja - þetta með að fresta leiknum? Hefðu FH-ingar ekki bara geta lagt af stað snemma í morgun og það keyrandi? Hvernig fóru stelpurnar í Þór/KA ?

Er verið að hyggla sumum en öðrum ekki?


mbl.is Leik Þórs og FH frestað um sólarhring
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Luton Town er....

...eitt af þessum liðum sem hefur nú átt mun blómlegri daga. Þó svo að síðustu ár hafi verið lítið annað en vandræði og þó oft meira um það utan vallar en innan. Fjárhagsandræði og önnurleiðindi er til heyra eigendum hafa elt liðið á röndum. Vonandi sér þó fyrir endann á því. Það myndi mér ekki leiðast að sjá þá koma aftur inn í deildarkeppnina að ári. Það sama á örugglega við um þá sem tóku upp á því að halda með liðinu í kringum 1985-1990 þegar liðið var á m.a. þeirra bestu og var með marga sérdeilis góða leikmenn innanborðs. Margir reydnar með liðið sem sitt annað lið en það skiptir ekki öllu. Hér eru góðar minningar frá þessum tíma þegar minn maður var fyrirliði hjá The Hatters, og lagði meira að segja upp fyrsta markið!!!!

 


mbl.is AFC Wimbledon í ensku deildakeppnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.