Ja hérna hér

Ekkert sem er óvart við að sjá Haukum spáð titlinum - það er nú eiginlega bara svona venju samkvæmt ef tekin eru síðustu 10 ár eða þar um bil. Finnst aftur á móti eitthvað bogið við slæma spá hjá Íslandsmeisturum HK. Held að þeir hafi nú meira fram að færa en þarna er gefið í skyn og vona að þeir sýni fram á það.

Annars eru mínir menn íd eildinni fyrir neðan og það verður forvitnilegt að sjá hvernig þeim gengur þar.


mbl.is Haukum spáð sigri - meisturum HK falli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hahahahahaha

Hefur einhver heyrt í Gunnlaugi M. Sigmundssyni í dag? - Ekki ég - ha og ekki heldur í konunni - ja hérna hér!!!
mbl.is Teitur Atlason sýknaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gagn og gaman

Kannski spurning um að menn taki sig til og lesi á ný gagn og gaman og ævintýrið um litlu gulu hænuna. Menn verða náttúruelga að tala af einhverri festu og ábyrgð alveg sama hvað aflokki þeir til heyra.

Kemur þessu máli ekki beint við en er ansi hræddur um að íhaldið í borginni verði endanlega eins og höfuðlaus her ef Hanna Birna hverfur á braut.


mbl.is Taka ekki þátt í innistæðulausum skýjaborgum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brighton er liðið

Þetta er svo einfalt, Brighton er liðið er einfaldega liðið flest hin liðin eru í næsta gæðaflokki fyrir neðan. ....en þetta er langt tímabil og kannski engin ástæða til að stinga af strax!!!!!
mbl.is Góður útisigur hjá Cardiff
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldrei spurning....

stelpurnar klára þennan leik með tveimur mörkum gegn einu. Norsku stelpurnar eru einfaldlega bara ekki nógu góðar til að standast okkar stelpum snúning á þessum tímapunkti. .......ef þetta gengur ekki eftir þá sætti ég mig við jafntefli en tap er ávísun á nýjan þjálfara hjá íslenska liðinu ;)
mbl.is Edda: Tilbúnar í stríðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

..hik er sama og tap

það er löngu kominn tími á að almenningur í landinu, hinar vinnandi stéttir fái hérna gjaldmiðil sem reynist þeim hagstæðari en króanan sem felld hefur verið til að þóknast atvinnulífinu hægri vinstri með tilheyrandi áföllum fyrir heimilin og hinn vinnandi mann. Þurfum sterkari og fastari tengingu við alvörugjaldmiðil - helst gjaldmiðil sem við eigum mikil viðskipit með.
mbl.is Viðskiptakostnaður 5-15 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

..og enn bora menn í nefið!!!

í fréttinni er haft eftir Þórunni Elínu:

Dýpkunarskipið Perlan hefur unnið við dýpkun í Landeyjahöfn í sumar.

Hversu mikið hefur blessuð Perlan verið við dýpkun í höfninni. Hversu marga daga?

Hvaða pælingar eru í gangi varðandi framtíð hafnarinnar? Hún er ekki alveg að klára sig sem 12 mánaða höfn eins og er. Hvernig á að leysa það? Af hverju heyrir maður lítið um það? Ekkert að frétta?

Nú eru menn að huga að nýrri ferju - enda núverandi skip að renna út á tíma - hvernig ferja á það að vera? Ferja sem siglir bara í Landeyjahöfn? Ferja sem á að geta farið bæði í Landeyjahöfn og Þorlákshöfn án þess að gengið sé verulega á þjónustustig við farþega? Ferja sem á að ganga bara í Þorlákshöfn? 2 ferjur kannski sem sigla hvor á móti annarri í Landeyjahöfn?  Hvað á ferjan að taka marga bíla? Nú ætla menn að fara að flytja sorp af eyjunni, ef það á að fara þessa leið og bætast á alla hina gámaflutningana sem eru nú þegar hversu mörgum ferðum á þá ða bæta við? Verða gámaflutningar kannski bara á nóttunni? Það getur verið erfitt að ganga frá endanlegum hugmyndum um nýja ferju ef ekki er vitað hvert hún á að sigla.

Hlakka til að sjá hvaða tromp menn draga fram úr erminni á næstunni.


mbl.is Viðkvæm staða í Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamslaus bræði!!!

Það vantar ekki aðmenn hafa farið mikinn í að missa sig yfir eþssari blessuðu mynd. Hef nú ekki séð hana frekar en margar aðara myndir sem eru umdeildar. Hef reyndar líka séð fullt af myndum sem eru umdeildar. Skondið hvað mikið af þessu er eitthvað sem fer bara inn um annað og út um hitt. Það er stundum eins og fólk geri sér ekki grein fyrir því að þessar myndir eru hugarburður leikstjóra og handritshöfunda/r. Lýsir oft þeirra skoðun en er á engan hátt heilagur sannleikur, frekar en svo margt annað. Samt missir fólk sig yfir bíómynd og vill ganga fram af heimsenda - jörðin hlýtur að vera flöt hjá fólki sem lætur svona - er það ekki? Ýmsielgt annað er sagt og gert sem er miklu verra en þetta - já það er sagt og gert og fólk jafnvel lífla´tið út á það sem fólk segir. Samt virðist fólk ekki missa sig jafn mikið yfir því, jafnvel þó það sé svo að fjöldi manns liggi í valnum.   ...ein bíómynd og.........     hef reyndar ekkert heyrt um hvort þessi mynd sé góð eða slæm, veit það einhver?
mbl.is „Alvarlegasta árásin á íslam“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Ólsarar

Stórt stökk í knattspyrnusögu Víkings frá Óalfsvík að komast úpp á meðal þeirra bestu. Nú má kannski segja að alvaran taki við? Eitt er að kmast upp annað að halda svo sæti sínu þar. En ég hlakka til að sjá hvernig þeim gengur að takast á vði fjörið í Pepsideildinni næsta sumar.

Þið eruð vel að þessu komnir og til hamingju.


mbl.is Ótrúlega góð tilfinning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...vá hvað ég er feginn!!!

Það bara greip mann sælu tilfinning þegar leiknum lauk. Ekki það að maður hafi verið svona rosalega ánægður með stigin 3 heldur það að þessum hörmungar seinnihálfleik skuli lokið. Alveg var hann arfa leiðinlegur og það fyrir allan peninginn. Fyrri hálfleikur allt í lagi og við sanngjarntr 2-0 yfir. Svo vara bara nánast eins og liðið hafi ekki mætt til leiks í þeim seinni.

Gott að fá stigin 3. Nauðsynlegt alveg hreint ef menn ætla að reyna að fá eitthvað út úr þessu tímabili - annað en leiðindi. Hefði ekki verið svona mikið um gestagang fyrir aftan markið í þessum leik þá veit ég ekki hvar ég væri núna. Jújú það er alltaf fínt hjá okkur Guðbirni þar en gestirnir að þessu sinni voru líflegir og umræðurnar ansi skemmtilegar langtímum saman. - það er mun eftirminnilegra en nokkur atvik úr leiknum.

Já til hamingju líka Ólsarar með að vera komnir upp. Man ekki betur en ég hafi sagt eftir einar 3 umferðir að kannski væri þetta bara sumarið þeirra!!!!


mbl.is Grindvíkingar fallnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...nú stólum við á.......

....að Stjörnustrákar standi sig og láta ekki fimleikafélagspiltana fara með öll 3 stigin yfir bæjarmörkin.

Annars hef ég nú mestar áhyggjur af mínum mönnum í ÍBV. Menn verða að vinna grindavík hérna heima til þess að reyna að ná einhverju út úr tímabilinu - allt annað en Evrópusæti er óásættanlegt.
Spái þessu svona

16.00 ÍBV - Grindavík 1-1
17.00 KR - Breiðablik 2-1
17.00 Fylkir - Selfoss 1-1
17.00 Keflavík - Fram 1-0
17.00 ÍA - Valur 2-1
19.15 Stjarnan - FH 2-2


mbl.is FH meistari í kvöld?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...koma svo Ólsarar

Yrði ekki leiðinlegt ef Víkingur Ólafsvík tryggði sig upp um deild í dag. Allataf gaman að sjá eitthvað nýtt gerast. Það er það sem heldur manni við efnið. Fátt leiðinlegra en að hafa alltaf sömu 12-15 liðin í baráttunni. ...vona að þeim takist að komast alla leið að þessu sinni.
mbl.is Ólafsvíkingar í efstu deild í fyrsta skipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...það er ég hræddur um

Góður sigur og aldrei í hættu eins og ég sagði fyrr í vikunni. Nú er bara að ná þeim úrslitum sem til þarf í Noregi - ég sagði að MLV myndi skora sigurmarkið þar, og stend við það. En það er líka gott að liðið getur skilað þessu með hana á bekknum. Hún er meidd og þá verða aðrar að stíga upp - það er merki um góða spilara, svo einfalt er það. ég er í raun hissa á þjálfaranum að vera að setja hana inná. Það var engin þörf á því og svolítið áhættusamt að taka sénsinn á þessu. Hefði gefið henni algjöra hvíld og hleypt henni inn gegn þeim Norsku. Þá hefðum við fengið að sjá norskar hríslur bærast í logni ....en flott hjá ykkur stelpur - til hamingju.
mbl.is Ísland í toppsætið á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband