19.5.2012 | 14:56
Frikka vasaklúti snýst hugur!!!
Auðvitað allir skynsamlega lausn á þessu máli eins og öðrum. Held að LÍÚ ætti að byrja á að taka Friðrik J út úr öllum nefndum og banna honum að koma í viðtöl. Þá fer fólk kannski að hlusta eitthvað á það sem LÍÚ hefur fram að setja. Alveg einstaklega óvistvænn í fjölmiðlum þessi elska.
En ef menn ætla að reyna að finn aflöt sem gerir alla sátt þá held ég að allir sem einn verði að gera sér grein fyrir því að þeir þurfa einhvers staðar á leiðinni að gefa eitthvað eftir. Þá held ég að þetta verði ekkert svakalega flókið - þ.e.a.s. ef menn koma að borðinu með það að leiðarljósi að ná sáttum um málið. Vona svo sannarlega að svo verði. Svo er þetta líka spurning um hvort að það eigi að koma of margir af þessu? Minni hópur fyrst sem dregur línuna og síðan fá fleiri að koma að málinu og þá er kannski hægt að færa línuna til hér eða þar.
![]() |
LÍÚ segist vilja samvinnu um lausn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.5.2012 | 08:38
Halló halló
þarna segir:
Þá voru tveir menn kærðir í nótt fyrir brot á lögreglusamþykkt, en þeir köstuðu af sér vatni á styttur Einars Jónssonar fyrir framan stjórnarráðið í Lækjargötu.
Hélt að þessir menn hefðu kastað af sér þvagi!!! Eða voru þeir bara að skvetta af sér vatni sem á þá hafði fallið, já eða verið sprautað á þá?
![]() |
Fíkniefni, hávaði og þvaglát í miðborginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.5.2012 | 08:34
Gott að ekki fór verr x 2
Það e nú gott að þetta fór svona og menn komu taug í bátinn. Ömurlegt alltaf þegar fréttir berast af svona ástandi.
Sérstakt samt klúðrið í fréttinni þarna:
Neta- og dragnótabáturinn Kristbjörg VE-071 er nú á leið til Vestmannaeyja í eftirdragi línubátsins Páls Jónssonar GK7. Landhelgisgæslan aflýsti hættuástandi í Meðallandsbukt, þar sem Kristbjörg var vélarvana, á öðrum tímanum í nótt en þá var taug komin milli skipanna og þau fjarlægðust land.
Kristbjörg varð vélarvana á tíunda tímanum í gærkvöld eftir að eitthvað fór í skrúfuna. Þyrla Landhelgisgæslunnar sem var nýkomin frá Keflavík var send á staðinn auk björgunarskips Slysavarnarfélagsins Landsbjargar frá Vestmannaeyjum og Höfn sem og björgunarsveitum af Suðurlandi sem biðu átekta í landi við Skarðsfjöru.
Skipverjum Kristbjargar tókst að varpa akkerum og stöðva þannig rek skipsins til lands um 1 sjómílu frá landi. Nærliggjandi skip voru í um 25 sjómílna fjarlægð. Það fyrsta á vettvang var línubáturinn Páll Jónsson GK7 sem tók Kristbjörgu á tog og var haldið á dýpri sjó. Þegar ljóst var að það gengi eftir héldu björgunarsveitir, bátar og þyrlan síns heima án þess að til kasta þeirra kæmi og Landhelgisgæslan aflýsti hættuástandi.'
Togarinn Jón Vídalín fór til móts við bátana og tók við Kristbjörgu, sem dreginn var til Vestmannaeyja þaðan sem skipið er gert út.
Hver tók hvern í tog og hver tók við?
Annars er þetta nú hátíð á miðað við bullið sem var í gangi í gærkvöldi þegar mönnum dat í hug að senda út beint frá lendingu þotunnar í Keflavík - það þótti mér með ólíkindum, var sem betur fer með stillt á aðra stöð. - Skilst að þetta af verið eins og menn ætluðu að fara að senda beint út frá íþróttakappleik!!!! - kom sér að allt fór vel.
![]() |
Kristbjörg dregin til Eyja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2012 | 19:45
Hvað er skuldsett heimili?
Hvar ætla menn að teygja línuna um hvað er skuldsett heimili og hvað ekki? Á að fara að dæla peningum í verkefni sem ekki er jafnvel hægt að leysa? Maður heyrir háværar raddir um að nú sé verið að reyna að bjarga fólki sem var komið langt út fyrir eigin mörk í skuldasöfnun jafnvel fyrir hrun og hefði sennielgast farið á hliðina hvort heldur til hruns hefði komið eða ekki!!!! Á að fara að mismuna fólki? Hvað með fólk sem fór tiltölulega skynsamlega fram úr rúminu öll árin fyrir hrun og gerir jafnvel en - á það ekkert að fá? Á bara að setja pening í "skuldsett" heimili - hvernig eiga þau að greiða greiðann til baka?
Hvað verður gert fyrir mitt heimili?
er búið að hugsa þetta tilenda?
Hefur einhver tekið sig saman og skoðað hvað er í gangi í samfélaginu þar sem sífellt er talað um kreppu? Hvernig er með bókanir í útanlandsferðir? Hvað er að gerast núna í innflutningi á bílum? Af hverju er fasteigna verð á uppleið í kreppu? Hefur verið skoðað hvað er að gerast í kortanotkun Íslendinga á hvaða flug er hún komin á ný? .....é veit ekki en miðað við það sem að maður heyrir þá virðist nú þjóðin vera komin á gott flug með ansi margt, og ætlar sér svo sannarlega ekki að koma inn til lendingar strax!!!!!
![]() |
Aðstoða verður skuldsett heimili |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.5.2012 | 16:41
....stríðið byrjað?
![]() |
Heynckes: Drogba er framúrskandi leikari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2012 | 16:21
Fagnaðarefni
Það er fagnaðarefni fyrir ÍBV að fá Erling til að taka við starfi meistara Árna Stefáns sem unnið hefur gott starf hér í Eyjum síðustu ár. Árni hverfur nú frá Eyjum og fer til starfa í höfuðstöðvum HSÍ í Reykjavík þar sem hann fær hið léttvæga hlutvert að vera útbreislustjóri HSÍ. Það held ég að HSÍ hefði ekki getað fengið betri mann til að reyna að bjarga handboltanum á landsvísu. Magnaður karakter Árni og einhver sem leggur sig alltaf 110% í þeim verkefnum sem að hann tekur að sér. Hans verður saknað hérna í Eyjum. En við grátum ekkert lengi á koddann því það að fá Erling heim er ekki amalegt. Erlingur eins og Árni einhver sem leggur sig 110% fram við þau verkefni sem hann tekur að sér. Því vænti ég þess að handboltinn haldi áfram að eflast hér í Eyjum á næstu árum.
Langar að þakka Árna fyrir hans starf og frábær kynni sem hafa bara batnað með árunum, og gera vonandi áfram þó hann, og Unnur, hafi flúið í land!!! Langar líka bjóða Erling og fjölskyldu velkomin heim - fengur af því að fá þau til baka. Vænti mikils af þeim og veit að ég verð ekki fyrir vonbrigðum.
Áfram ÍBV alltaf alls staðar og um alla eilífð
...og svona í framhjáhlaupi þá gladdist ég í morgun þegar ég labbaði í ræktina. Því í gegnum tónlistina heyrði ég einhvern kalla nafn mitt og leit yfir götuna og þar var einn meistarinn í viðbót Guðfinnur Kristmanns staddur ofan í holu þar sem hann var að byrja að leggja grun að nýju húsi!!! Já karlinn er að byggja hér á skerinu, þó þau séu ekki að fara að flytja hingað - ekki strax allavega - þá á að koma sér upp þaki yfir höfuðið á skerinu í suðri - glæsilegt
![]() |
Erlingur ráðinn þjálfari hjá ÍBV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2012 | 13:12
Starfslok eða ekki!
Kolfinna segir samkvæmt þessu viðtali:
Þessi starfslokasamningur er í fyrsta lagi ekki á ábyrgð núverandi meirihluta, hann er algerlega á ábyrgð fyrrverandi bæjarstjórnar. Það hafa ýmsar tölur verið nefndar í þessu sambandi, allt frá 30 og upp í 130 milljónir og við þurfum að fara yfir samninginn.
Sat hún ekki í fyrrverandi bæjarstjórn? Er hún kannski að tala um meirihlutann sem sat á síðasta kjörtímabili? Var samningurinn við fyrrverandi bæjarstjóra, Ása Friðriks, samþykktur af bæjarstjórn í heild eða bara af meirihlutia? Er ekki ósköp þægilegt að segja bara að samningurinn ahfi verið gerður af fyrrverandi bæjarstjórn? þarf ekkert að horfa í tölurnar sem að honum fylgja og ákvæðin? Honum er sem sagt sagt upp fyrst og síðan á að skoða afleiðingarnar!!!! Er ekki allt í lagi þarna í Garðinum? F'olk hlýtur að vilja sjá hlutina unna af meiri festu og ábyrgð - neita að trúa öðru.
![]() |
Pólitík hefur skemmt skólastarfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2012 | 11:34
Owen á leið til Brighton!
![]() |
Owen yfirgefur Manchester United |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.5.2012 | 21:56
Ekki blankir í Garðinum!!!!
Alveg finnst mér svona alveg einstakt. Er rekstur svona bæjarfélags svo hápólitískur að ekki sé hægt að setjast niður með bæjarstjóranum og segja honum fyrir verkum og vinna þetta af heilindum, með hann í vinnu? Þetta lið er ekki blankt ef það kostar 50 kúlur að segja Ása upp og þa' a að greiða það - er 2007 komið aftur í Garðinum? Hverslags samninga eru menn að gera í þessum bransa? Fólk heldur kannski að það sé bara að sýsla með eigin pening þegar svona samningar eru gerðir? Bera pólitíkusar enga ábyrgð, hafa þeir enga sómatilfinningu? Ætli íbúar í Garðinum séu ángæðir með að menn sé ráðnir á svona samningum? Ætli þetta sé svona um allt land?
Þekki Ása ágætlega og er ekkert aðsetja út á hann. Kannast við suma í bæjarstjórn þarna. Er bara að velta því fyrir mér að mér finnst fullmikið í lagt með þessar ráðningar margar hverjar - það er eins og það sé ráðist í þær eins og enginn sé morgundagurinn eða að aðrir möguleikar komi upp. Veit að kæmi þetta upp í Eyjum og þetta væri það sem það myndi kosta bæjarfélagið að skipta um bæjarstjóra að þá myndi ég sleppa mér. Svo er ég þess líka fullviss innst inni að þetta fólk getur vel starfað með Ása út kjörtímabilið og þau öll lagst á eitt að efla hag Garðbúa - það myndi ég telja að væri sterkast. ......kannski er ég bara svona skrýtinn?
![]() |
Bæjarstjórinn í Garði rekinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.5.2012 | 18:15
Kóngurinn kveður.... eða hent út réttara sagt
Mikið af leikmanna floppi verið í gangi hjá Liverpool. Lítill taktur í hjartslætti félagsins síðasta vetur. Ja nema í bikarkeppnunum þegar þeir mættu mínum mönnum í Brighton. Leikmannakaupin voru slök. Leikmannahópurinn ekki sterkur fyrir utan kannski 3-4 spilara. Árangurinn í deildinni í samræmi við það, því miður.
Flottur listi af nöfnum kominn upp. Benitez, Villas-Boas, Martin O'Neil, Capello, og stjóri Wigan Roberto Martinez. Já og Mourinho. ég held að Gus Poyet sé líka líklegur til að verða skoðaður. En ég er ekki í stjórninni og hef ekkert með þetta að gera!!!!
![]() |
Dalglish: Stoltur að skila bikar í hús |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.5.2012 | 17:03
Erfitt hjá Úlfari!!!
![]() |
Úlfar tekur við af Þorláki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2012 | 12:53
Stefnan sett á verðlaunapening
![]() |
Hodgson búinn að velja landsliðshópinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2012 | 09:44
Æi kræst
Hvað eru menn að láta Gunnlaug Sævar tjá sig um málefni Ísfélags Vestmannaeyja? Get ekki að því gert, hef ekki óbeit á manninum, bara enga trú á honum.Var hann ekki lengi í stjórn Lýsi ehf þessi elska. Svo þegar menn voru að vinna í þurrkun hausa og svoleiðis í Eyjum þá lét hann ekki vinna hausana innanbæjar heldur sendi þá til Þorlákshafnar þar sem fyrirtæki hans var að verka hausa - þið fyrirgefið en ég hef ekki mikla trú á mönnum sem sitja í stjórn fyrirtækis í Eyjum og bera svo hag sjálfs síns fram yfir að efla fyrirtæki innanbæjar - sorrý þannig sé ég þetta.
Er þess full viss að þetta skip á eftir að þjóna Eyjunum vel og lengi. Verkefnin verða næg og reksturinn góður, eins og lengi hefur verið hjá Ísfélaginu. Guðbjörg Matt og synir eru ekkert að fara að gefa eftir í þessum rekstri. jújú það er umræða um hitt og þetta- en þetta er bara umræða eins og staðan er og ekkert í hendi. - Engin ástæða til að mála skrattann á vegginn strax.
Þessi ummæli Gunnlaugs Sævars eru honum ekki til framdráttar - svo einfalt er það
![]() |
Nýjasta skipið selt úr landi? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)