Eyjastelpurnar....

...verða meistarar. Engin pressa svo sem frá mér en hef trú á að þær klári þetta í ár. Vona að Stjörnunni gangi vel sem og norðan stelpum en mér er slétt saman um þær rauðu af Hlíðarenda og grænu úr Kópavoginum er orðinn leiður á þeim liðum í kvennaboltanum Wink
mbl.is Meistararnir með sterkara lið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja hérna hér!!

Veir ekki hvaða leik Óli var að horfa á. Margt ágætt!!!! En það má vera ef það er eins og hann segir að liðið hafi bætt sig frá því í síðasta leik að hann geti glaðst. Ég er allavega glaður að hafa ekki borgað mig inn á þann leik sem áhugamaður um knattspyrnu - þótti nóg um í kvöld. .....þetta er íþróttin þar sem menn grípa stundum til þess að kalla þetta the beautiful game!!! - það átti ekki við í kvöld.
mbl.is Ólafur: Margt ágætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert að frétta!!!

Það var nú ekki hátt risið á þessum leik. Lá við að maður fagnaði ef að liðin náðu fleiri en 3 sendingum innbyrðis!!!! Ef þetta er það sem koma skal í deildinni í sumar, má vel vera að maður sé ekkert að skipuleggja fríið þannig að maður geti séð útileik eða átt á hættu að missa af heimaleik. Þetta var einstaklega litlaust. Eyjamenn þó að mínu mati ívið sterkari. Bæði lið þurfa að firða sig í brók ætli þau ekki að sleikja botninn í sumar. Ekkert var hægt að kvarta undan aðstæðum. flott veður fínasti völlur og leikmenn búnir að æfa síðan í október - samt var boðið upp á leik sem var í svipuðum flokki og þegar maður var að horfa á eina vorleikinn á mölinni í gamla daga!!!!! Vel má vera að einhverjum þyki ég full fúll í þessum skrifum það verður þá bara að hafa það
mbl.is Ekkert mark í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Now we are talking

Þetta líkar mér að lesa. Lífið er komið á flug hérna í Eyjum. Nú er ekki bara fjör við bryggjupollana og í frystihúsunum. Nú er þetta farið að breiða úr sér og ná jafnvel ofar í bæinn - líf og fjör og hingað eru allir velkomnir sem kma með bros á vör. .......komdu með í Eyjar út!!!
mbl.is Aukaferðir á föstudag og sunnudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ónýt lögmannsstofa?

Menn hljóta að höfða mál gegn lögmannsstofunni. Menn geta ekki annað. Trúi því ekki að þeir sem greiða í Stapa Lífeyrissjóð sætti sig við að menn eigi bara að gera ekki neitt gegn lögmannsstofunni - þó hún hafi hingað til staðið sig ágætlega!!!! Ætli hún hafi aflað sjóðnum í heildina fleiri milljarða en þarna töpuðust, að frádregnum kostnaði sem lögmannsstofan hefur tekið fyrir sín störf?
mbl.is Dýr mistök lögmannsstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær náum við þessu?

Er ekki nær að vera að birta verðbólgufréttir af klakanum þar sem að maður býr heldur en hvað er gangi úti í heimi - maður verður bara pirraður á þessu. Hva'ð er að frétta hér erum við þrisvar sinnum hærri en þetta? ...fyrst menn eru að birta þetta væri gaman að fá samanburðartölur
mbl.is Spá 2,3% verðbólgu á evrusvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjartan er hættur

..við að hætta við að hætta við að hætta og mun því spila áfram með bandinu. Hann mún þó að öllum líkindum ekki spila nema á seinni hluta tónleikaferðalagsins. Þetta hefur þó ekki verið staðfest, né skjalfest!
mbl.is Segir Kjartan ekki hættan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær árangur

Það verð ég að segja að þetta finnst mér frábær árangur hjá Maríu. Að lenda í fjórða sæti á svona stóru móti er nú aldeilis flott, auðvitað hefði verið gaman að ná verðalunasæti en þetta er eitthvað sem ekki allir leika eftir. Til hamingju með þetta María, gerir vonandi bara betur næst.

Verður gaman að sjá hvort Auðunn Jónsson veltir ekki einhverjum um koll þegar hann rífur í lóðinn á laugardag.


mbl.is María náði 4. sætinu á EM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlakka til....

Það verður gaman að sjá hvernig hóp kappinn velur. Ekki eins og allir bestu leikmenn í heimi séu með enskt vegabréf - þó væntingarnar séu alltaf miklar hjá ensku. En þetta gæti orðið forvitnilegt val. ......en í raun verður enn forvitnilegra að sjá hvaða árangri menn koma til með að ná í úrslitakeppninni. Þeir ættu að ná í 8-liða úrslit, en hvað svo?
mbl.is Hodgson velur EM-hópinn í næstu viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styrkir fætur!

Já þeir standa styrkum fótum knattspyrnupiltarnir okkar, komnir með ákveðinn stöðugleika! Nú er bara að vona að þeir séu að vera komnir með þann styrk og klókindi sem þarf til að fara að þokast upp á við á listanum. Væri nú gaman að að komast upp á við, þó ekki væri nema rétt upp fyrir 40 sætið í Evrópu. Er viss um að útsýnið þaðan er miklu betra!!!
mbl.is Ísland í 131. sæti á FIFA-listanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt......

Frábært hjá Stjörnustúlkum. Gaman þegar nýtt lið skráir nafn sitt í söguna. Gaman að fá dollunu af Hlíðarenda og yfir í Garðabæinn. Til hamingju Láki og co. Er líka orðinn þreyttur á Valsliðinu þarna í kvennaboltanum, er í raun slétt sama um liðið eftir að drottningin í íslensku tuðrusparki fór þaðan.
mbl.is Stjarnan vann Meistarakeppni KSÍ í fyrsta sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hann ekki að grínast?

Ég man ekki betur en að þeir sjómenn sem ég þekki tali um að sjómannaafslátturinn sé nú ekki það hár að hann ætti að setja þetta allt á hliðina. Í raun bara farið fram á helming eins og er.  Greinilegt á þessu að rekstrargrundvöllur Hvals er ekki sterkur ef þetta er útspil Kristjáns. Ætli Kristján borgi sér of sínum dagpeninga á ferðalögum sínum í nafni fyrirtækisins? Er kannski ekkert verð orðið fyrir þessar hvalafurðir? Er enginn markaður fyrir þetta? Hvað með verð á lýsi? Er ekki verið að selja þetta í erlendum gjaldmiðlum og það eru ár  og dagur síðan krónan var eins lág. Það er eitthvað ekki alveg að virka þarna. 

.....Ferðaþjónustan gleðst sennilega yfir þessu en spurning hvað útgerðir þær er stunda veiðar á uppsjávarfiski t.d. segja.


mbl.is Ekki farið til hvalveiða í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kominn tími til

Fagna því að menn skuli loksins ætla að taka á sig rögg varðandi þetta mál. Búið að vera hörmungar gangur í þessu máli síðustu ár. Það hefur verið vitað í nokkuð mörg ár að þarna er eitt magnaðasta tækifæri Eyjanna til að komast á kortið sem einn heitasti túrista staður landsins en því miður hefur driftin í kringum verkefnið ekki verið sem skyldi. Það er svo sannarlega kominn tími á að spýta í lófana og koma þessu verki á þann stall sem það svo sannarlega á skilið. Hlakka til að sjá hver gangurinn í málinu verður, tala nú ekki um að sjá þetta þegar það verður komið í gagnið.
mbl.is Eldheimar gríðarlegt aðdráttarafl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband