Aldrei hætta - 11 í röð

Það var nú ekki mikil hætta á því að Brighton tapaði þessum leik. EN þetta fer nú að verða nokkuð gott komnir 11 leikir í röð í deildinni án taps - ef bikarinn er tekinn með eru þetta 15 leikir og 1 tap. Er ánægður á meðan þetta heldur. Erum í sjöunda sætinu með jafnmörg stig og Birmingham sem er í 6 sæti en með betri markatölu og á leiki til góða. Verður gaman að sjá hvort menn halda þetta út og komast í umspil.
mbl.is Aron Einar og félagar gerðu jafntefli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svik og prettir á hverju horni!!!!

Þetta er nú ekki gæfulegt allt saman og mikið hefur plottið og spilamennskan verið. Maður getur nú svo sem sagt hvað var maðurinn að pæla með að segja um stöðu bankanna. Sagði hann þetta svona af því að hann hélt að eþtta væri bara innanhúsblað hjá bankanum!!!! Bíddu segir maður þá einhvern annan sannleika ef að blaðið á að fara í meiri dreifingu? Finnst þetta skrýtin hugsun.

Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari spurði Jón út í viðtal Moment, tímarits á vegum Landsbankans, við hann á fyrri helmingi árs 2008, þar sem haft var eftir honum að staða íslensku bankanna væri traust.

Svaraði Jón þá mjög ákveðið að hann hefði talið að um innanhúsrit á vegum Landsbankans væri að ræða og að viðtalið hefði verið tekið áður en hann hafði fyrst vitneskju um að bankinn ætlaði að stofna Icesave-reikningana.

En viðtalinu var slegið upp á forsíðu með tilvitnuninni „Finances of the Icelandic banks bascially sound“, með vísan til viðtalsins við Jón, en það útleggst „Fjárhagslegur grundvöllur íslensku bankanna er traustur“, í lauslegri þýðingu

Maður hallast nú allataf meira og meira á þá skoðun að Jónas Fr. hafi nú bara verið ráðinn inn í FME út á orð þeirra er fóru með ferðina í bönkunum, já og einhverjum pólitískum vinum og hafi ekki á nokkurn hátt verið hæfur til starfans. Rétt eins og mér finnst koma fram í orðum Davíðs í gær um tengslin manna á milli - sem FME sögðu að væru svo engin!!!!!

"Ekki lagastoð fyrir því að stöðva Icesave

Sigríður spurði Jón hvort komið hefði til álita að standa í vegi fyrir stofnun Icesave-reikninga Landsbankans í Hollandi.

Svaraði Jón þá því til að hann hefði rætt það oft við lögfræðinga hjá Fjármálaeftirlitinu, meðal annars forstjórann, Jónas Fr. Jónsson, sem væri líka lögfræðimenntaður, og lögfróða menn víðar og að það „hefði verið eindregin skoðun þeirra sem ég spurði um þetta og ég gerði það oftar en einu að fyrir því væri ekki lagastoð“.

Hitt sé annað mál að hugsanlega hefði mátt beita rannsóknarhagsmunum eða öðrum „orðaleppum í lögunum“ til að segja forystumönnum Landsbankans að þeir mættu ekki hefja söfnun innlána með Icesave-reikningum."

Ef að menn höfðu svona miklar áhyggjur af hverju gerðu menn þá ekki tilraun með að beita rannsóknarhagsmunum eða öðrum orðaleppum?


mbl.is Vildi stöðva Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...ekki svo viss

Þarna segir: Davíð kvaðst hafa ásamt fáeinum öðrum haft vaxandi áhyggjur af því að bankarnir fengju ekki staðist við svo hraðan vöxt. „[Þ]etta var frekar tilfinning en örugg vissa... þessi tilfinning beið skipbrot þegar nýir og nýir ársreikningar sýndu að allt væri í stakasta lagi“.

Er ekki alveg viss um að þetta ásamt fáeinum öðrum hafi haft áhyggjur sé rétt. Fjöldinn allur af fólki hristi hausinn reglulega og sagði þetta gengur ekki upp, þetta fær ekki staðist. Ókei mikið af þessu fólki var kannski ekki í hjörðinni íkringum bankana, eða í innstu hringjum pólitíkurinnar í landinu. - Það var fólk út um allt sem vissi og benti á í spjalli sín á milli og jafnvel víðar á að það sem fer upp kemur aftur niður - en hér var oft hjá þeim sem fengu svigrúmið til að tjá sig viðkvæðið að hin íslenska bóla ætti bara ekki stærðfræðilegan möguleika á að springa!!!! - Yeah right.

En er ángæður að Davíð og einhverjir í kringum hann hafi haft áhyggjur, viðbrögðin voru bara of þunglamaleg og sein til að það tækist að bjarga meiru - því miður


mbl.is Davíð: Fáir höfðu áhyggjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður punktur Víðir

Þetta er svo sannarlega mál sem taka má á. Afar sérstakt að hlusta stundum á t.d. Sky þegar menn fara að tala um að ef að leikmaður hefði látið sig detta þá hefði hann fengið víti og svo framvegis og svo er leikmönnum hrósað fyrir það að standa í lappirnar, rétt eins og það sé ekki normið. - það má svo sannarlega herða róðurinn í baráttunni gegn leikaraskap í boltanum, innanlands sem utan.

Já og varðandi þetta með lesturinn. Ekki láta þér bregða þó greinar þínar séu lesnar reglulega í Englandi Wink


mbl.is Standið í lappirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta nú pottþétt?

Þó þau séu nýbyrjuð saman táknar það kannski ekki að þau séu nýjasta parið!!!! - Ekki satt?
mbl.is Nýjasta parið mætti í 30 ára afmæli Sambíóanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ding Dong - enginn heima

Oft brosir maður við lestur hinna ýmsu frétta og tilkynninga - það gerðist einmitt núna. Finnst alveg vanta þarna í fréttina hvar maður á að geta keypt efnin t.d. Eiga svo umboðs- og heildverslanir að sjá um innflutning? Varla vilja hægri mennirnir að ríkið sé með puttana í þessu. Þetta hlýtur að eiga að flæða bara frítt og frjálst um landið.  Menn hljóta að ætla að koma með nánari útlistun á þessu. Þarf engin aldurstakmörk á þetta?  .....verður forvitnilegt að sjá áframhaldandi umræðu um þetta mál. Hlakka til að sjá stjórnarmenn mæta t.d. í Kastljós og Ísland í dag og útlista þetta nánar.  

....maður veltir því fyrir sér þegar menn koma fram með svona hvort þeir hafi verið á einhverjum efnum þegar ákvörðunin um þessa tilkynningu var tekin. Wink


mbl.is Vilja lögleiða fíkniefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

3 í röð - óstöðvandi!!!

Maður farinn að hafa áhyggjur af þessu, strákarnir í Suns búningunum búnir að vinna 3 leiki
í röð núna eftir Stjörnuleikinn. Hlutfallið komið í 17 - 20 og ef vel
viðrar til körfuskota hjá strákunum það sem eftir lifir móts gæti menn
náð inn í umspil um titil. Það yrði nú saga til næsta bæjar. Nash með 19
stig og 7 stoðsendingar. Pólska sleggjan Gortat en í ham og gerði 14
stig og tók 17 fráköst. Channing Frye með tvöfalda tvennu 11 stig og 10
fráköst. Þriðji sigurleikurinn í röð og athyglisvert að í öllum þessum
leikjum hafa menn á tímibili verið allavega 10 stigum undir. Í nótt voru
það 2 þriggja stiga körfur frá Shannon Brown á mikilvægum kafla sem
tryggðu gott forskot seint í leiknum.
mbl.is Kobe hafði betur gegn LeBron
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er embættið bara grín?

Er maðurinn ekki að grínast? Biður þjóðina um að sýna því skilning ef að hann hverfi á önnur mið áður en að kjörtíambili lýkur!!!! Halló er ekkert að frétta? Bara svona yfirlýsing er nóg til þess að maður kýs hann ekki til áframhaldandi setu!!!! Sorgleg afstaða annað hvort fer maðurinn þarna inn af fullri alvöru og undir því yfirskini að hann ætli að sitja út kjörtímabilið eða sleppir því - svo einfallt er það.
mbl.is Ólafur Ragnar gefur kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki svo viss, ekki svo viss

Kæmi mér ekkert á óvart ef að Redknapp tæki við landsliðinu. Einn skársti kosturinn í stöðunni, þ.e.a.s. ef menn vilja að Englendingur taki starfið að sér. Segi að ef að hann tekur þetta að sér þá mun hann bara taka liðið að sér í sumar og stýra því á EM og halda svo áfram með Tottenham. Hef ekki trú á að hann vilji ganga frá því góða verki sem hann er að finna hjá Spurs ekki strax!!!
mbl.is Ferguson: Síðasti leikur gegn Redknapp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þó fyrr hefði verið!!!

Maður spyr sig, já og jafnvel aðra, hvort að til svona aðgerða hefði ekki bara þurft að koma miklu miklu fyrr!!!! Það er að segja áður en að þjóðin var tekin svona herfilega í görnina!!!!!
mbl.is Bankamenn hleraðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki frétt?

Eru Kínverjarnir gruggugir? Er svona slæmt að þeir eigi í göngunum? Þetta er alveg hinn eðlilegasti hlutur þegar eignarhlutur, í þessu tilfelli í Elkem, skiptir um eigendur. Hvert er inntakið með þessari frétt? Hefðum við séð frétt þessa efnis ef að það hefði t.d. verið sænskt félag sem tók yfir meirihlutann í Elkem? Svíar eiga í göngunum!!!!!
mbl.is Kínverjar eiga í göngunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki gefast upp, alls ekki!!!!

Hafa menn inni á Alþingi kannski velt því fyrir sér að það eru önnur og stærri mál sem vert er að huga að en að vera sífellt að velta sér upp úr þessu með Geir. Þetta mál er í farvegi og mun örugglega leysast farsællega á endanum. Hvað hræðast menn svona svakalega? Það hlýtur að þurfa að hefja yfir allan vafa að hann hafi staðið sig vel. Hann er kjörinn sem fulltrúi þjóðarinnar á þing. Hann er gerður að forsætisráðherra. Þegar menn taka að sér svoleiðis embætti þá eiga menn ekki að hræðast það þó einhver dómstóll skoði verk manns - ja nema að maður hafi eitthvað að fela, sem ég held að sé alls ekki raunin. Það er eins og fólk átti sig ekki á því að með sýknu stendur Geir uppi beinni í baki en nokkru sinni fyrr. .......en gerist það hins vegar ekki þá tapar öll þjóðin.
mbl.is Meirihluti gegn ákæru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýti á störfum lækna!!!

Verða menn ekki að telja þessa þrjósku lækna lýti á þeirra störfum? Er alveg hissa á þessu er kannski hægt að svipta einhverja af þeim réttindum? Er kannski allur réttur þeirra megin?
mbl.is Viðbrögð lýtalækna vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.