Spurning um að ganga skrefinu lengra....

...og leggja bara niður stjórnmálaflokkanna!!!! Wink
mbl.is Ríkið hætti að styrkja stjórnmálaflokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slepp fyrir horn!

Ekkert af þessu á vinsældarlistanum hjá mér. Slepp því billega. Þetta með kartöflurnar er kannski þar sem ég stend á línunni. Þetta er nú samt alltaf svolítið sérstakt þegar maður rennir yfir svona lista. Ef að maður ætti að fara eftir þeim öllum þá myndi maður ekki innbyrða mikið af fæði svona heilt yfir. Sennilega yrði maður ekki langlífur!!!!
mbl.is Sex matvæli sem þú ættir ekki að borða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ná menn að gera betur í ár!!!

Nú er bara að sjá hvort menn bæti þetta í ár. Ölvunarakstur óásættanlegur með öllu. Með gerði þetta nú á sínum tíma þegar maður bjó í Englandi og var ungur og vitlaus. Nú er ég bara vitlaus. ....velti stundum fyrir mér í þessum málum hvort ekki má vera með fyrirbyggjandi aðgerðir. Leyfa mönnum að blása sem koma af pöbbum þar sem íþróttaleikir eru sýndir. já eða fyrir utan félagsheimili hjá hinum og þessum samtökum sem þrífast hér innanbæjar. Held að allir viti að þar fá menn sér stundum 1 öl eða slíkt eða jafnvel fleiri. Af hverju mætir ekki lögreglan óvænt á fund eða í beina útsendingu af kappleik og leyfir fólki að blása áður en það heldur út í bílinn sinn? Svona smá fyrirbyggjandi og til að sýna fólki að lögreglan er aðeins handan við hornið. ....svo má náttúrulega alveg gera þetta á annan hátt og sitja bara fyrir þeim sem hreyfa bílinn sinn á stæði fyrir utan svona staði. Láta þá blása þá, held bara að hitt skili sér í betra orðspori en reyndar minni beinum tekjum í ríkissjóð!!!

.....svo er líka þetta um hvað varð um það að það sé bannað að tala í farsíma meðan maður er á ferð í umferðinni og að keyra - var ekki heimild til að sekta fyrir það!!!


mbl.is 16 stútar undir stýri í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömmi úti á túni!!!!

Er ekki alveg að fatta Ögmund. Jújú eflaust hefur hann viljað draga alla sem sem kosið var um fyrir Landsdóm - get alveg verið sammála því, svo sannarlega. EN að Alþingi hafi ekki staðið sig og látið öll fjögur fyrir Landsdóm, réttlætir í mínum huga ekki að það eigi nú að hörfa frá málshöfðun á Geir. Segir í raun meira um Alþingi en margt annað. Það að Ögmundi finnist skrýtið að aðeins skuli réttað yfir skipstjóranum þykir mér samt sérstakt. ....ég er ekkert viss um að Geir sé sekur en þarna er tækifæri til að fá það á hreint - ekki satt?
Það að Alþingi verði með annað yfirklór til að klóra yfir eigið klúður segir okkur ansi margt. Alþingismenn bera sem sagt enga ábyrgð á einu né neinu sem á sér stað. En samt þora menn ekki með það fyrir dómstóla!!!!

....ætli það verði réttað yfir skipstjóranum sem sigldi skemmtiferðaskipinu í strand? Jú pottþétt og það mun öllum þykja það sjálfsagt enda fór hann ógætilega. Hvað ætli Ögmundur segi um það?


mbl.is Rangt að ákæra Geir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öruggt

Wigan var nú svo sem ekkert að rokka feitt frá þessum leik. Joe Hart þurfti vart að taka fram hanskana fyrir þennan leik. City fjarri því að vera í gír og ég er hræddur um að þeir muni ekki uppskera stig gegn Spurs um næstu helgi ef að þeir spila svona.
mbl.is Dzeko tryggði City nauman sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenska leiðin!!!

Alveg er þetta orðið með eindæmum hér á landi. það virðist aldrei einn né neinn bera ábyrgð á neinu - afar sérstakt. Skondið svo að ef að einhver ber ábyrgð þá er það einhver sem er staddur í neðsta eða næst neðsta þrepi pýramídans - allt þar fyrir ofan er stikkfrí. Svo er fólk hissa á því hvernig komið er fyrir blessaðri þjóðinni. ....hvenær ætli ský dragi frá sólu?
mbl.is Stofnanir deila um salt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

N eitt fallliðið?

Jújú eflaust er gaman að fara til Coventry og spila hjá félaga Hemma - vona að hann spili alla leikina. Það sem hryggir mig er að þetta lið er í fallsæti og það gæti orðið erfitt að rétt liðið af. Sjö stig í öruggt sæti, plús markatala. Það gæti orðið erfitt hjá Sky Blues að ná því  - vona nú samt það besta fyrst að félagi Hemmi er kominn þarna.  ...hlakka til að sjá honum bregða fyrir á Sky að berja vörnina saman. (Coventry reyndar unnu mína menn í Brighton 2-0 heima um daginn - gott að Hemmi var ekki kominn þá - því þá hefði nú sennilega síminn hringt!!!! og einhver hæðnistónn verið á hinum enda línunnar Smile) Hemmi svo sem öllum hnútum kunnugur hjá liðum sem hafa strögglað, þó hingað til hafi það nú alltaf verið lið sem eru að ströggla í Premier League

....koma svo Hemmi 


mbl.is „Tek þrjá mánuði í einu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þarf að moka út!!!

Það þarf að moka út úr stjórnsýslunni. Það hefur ekki verið tekið nógu vel til þar. Fólk hefur það alltof fott þar og megnið af því getur bullað eins og það vill án ábyrgðar - ekki gæfulegt.  Það þarf að taka stjórnsýsluna föstum tökum og koma fólki í skilning um að það geti ekki bara hagað sér eins og það vill og því hentar hverju sinni.
mbl.is Stjórnsýslan þarf að bæta upplýsingagjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryllilegt en .......

...hvað meinar blaðamaður með þessu sem þarna stendur:

Frétt af mbl.is

Fólk finnst um borð í skipi
Erlent | AFP | 15.1.2012 | 7:45

Björgunarmenn segjast í morgun hafa heyrt talað við mann, sem er fastur í klefa í farþegaskipi, sem marar í hálfu kafi undan vesturströnd Ítalíu. Enn hefur ekki takist að bjarga manninum út úr skipinu.

Segjast í morgun hafa heyrt talað við!!!!!! Í Guðanna bænum lagið þetta.

 


mbl.is Fólk finnst um borð í skipi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að toppa á réttum tíma!!!

Flottur sigur hjá Skagamönnum - gaman að sjá að það er líf í þeim gulu og glöðu. Fimleikafélagið væntanelga enn bara í teygjuæfingum á mjúkri dýnu á þessum árstíma!!!! Spurning hvort að bæði þessi lið toppi á réttum tíma í sumar?  ....samt gaman þegar þetta fer af stað, maður fær smá fiðring í tærnar. Söknuðurinn í sumar verður að það verður ekkert norðanlið í efstu deild - því miður en annað hvort Akureyrarliðið kemst vonandi upp í haust.

Verður forvitnilegt að sjá hvernig endar hjá mínum mönnum gegn Grindavík.


mbl.is Skagamenn léku FH grátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drífa sig!

Tá er bara ad auka kvótann, tví fyrr tví betra. Tessi frétt kætir potttètt ansi marga n á í raun ad kæta alla bædi konur og karla. Tad verdur líf og fjör tessa vertídina, eins og vera ber!
mbl.is Veiðistofn loðnu mælist svipaður og spáð var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nu er nóg komid!

Tap gegn New Jersey er tad versta sem nokkud lid getur bodid studningsmönnum sínum upp á. Tess vegna held èg ekki gladur inn í daginn. Menn verda ad gera betur ef ad madur á ad halda einbeitningu vid ad fylgjast med í vetur - svo einfalt er tad.
mbl.is Þriðji 40 stiga leikur Bryants í röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stadid vid tad sem sagt var!

Siíðasta sumar þegar vid hittumst félagarnir á golfvellinum í Eyjum þá ræddi Ívar um að snúa heim þegar tima hans hja Ipswich væri lokid. Held að við höfum báðir reiknað með að það gerðist ekki svona snöggt. Svo virðist sem góðum ferli sem atvinnumaður sé að ljúka. Allt tekur jú enda um síðir. Nú verða það minningarnar sem ylja manni og búningasafnið frá Torquay til Reading sem minnir mann á góðan feril kappans. ætla ekki að fara hér út í einhverja tfirlitsgrein um ferilinn,geri tað kannski seinna.
mbl.is Ívar Ingimarsson á leið í Hött?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.