Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Einmitt, byrjar þetta

Alveg er ég búinn að bíða eftir þessari umræðu sem nú á að setja af stað um allan þann aðbúnað og annað sem að KSÍ er búið að koma á koppinn í kringum íslenska boltann, held nú að menn eigi að fara sér hægt í að þröngva sumu af þessari "vitleysu" inn á liðin. Menn þurfa næði til að anda og átta sig á hlutunum - er búin að taka þátt í þessari umræðu í mörg ár og það eru alltaf sumir hlutir sem koma mér á óvart og seint virðist sumt af því ætla að lagast, en annað í þessu er mjög gott og lárlega fótboltanum til framdráttar. Menn fóru að mínu mati offari hér í þessu á sínum tíma - til að þoknast UEFA og félög og bæjarfélög voru látin blæða, meðan milljónirnar koma í styrki til KSÍ í gegnum UEFA og FIFA vegna vinsælda fótboltans í heiminum. Það eru þarna hlutir sem að manni finnst oft ekki alveg eiga við og þetta leyfiskerfi er engin heilög kýr í þessu. Afhverju er t.d. ekkileyfiskerfið í Englandi og annað hvort á Spáni eða Ítalíu? - Þar er það þannig að þetta kerfi þurfa menn að uppfylla ef að þeir keppa í Evrópurmótunum, og þar erum við að tala um atvinnumannadeildir.  Vona að menn setjist niður með réttu hugarfari og gari nú ekki að búa til einhver vandræði útaf þessu - það væri synd því það er jú leikur 22 manna með bolta sem er aðalmálið hitt umfangið kemur svo síðar.  Þetta er meira mál en ég kem fyrir í einu bloggi og menn geta kynnt sér leyfiskerfið og hvað það fjallar um á heimasíðu KSÍ eftir þann lestur geta menn mótað sínar skoðanir, ég hef mínar.

Liðin eru ekki í vallarvanda, eftir því sem að ég best veit, heldur umhverfisvanda, keppnisvöllurinn er í lagi en nú byrja menn að setja út á umhverfið og umgjörðina.


mbl.is Nýliðarnir í vallarvanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Naglar...

...þessir gaurar. Vonandi að Matt sé kominn á fullt skrið við þurfum á honm að halda í þessumsíðustu tveimur leikjum sem og næstu tímabil.
mbl.is Fjarlægði járnpinna úr handarbakinu í klefanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki það sem að maður....

....vonaðist eftir.

Við byrjuðum reyndar ágætlega og leikurinn var í góðu jafnvægi þangað til við fengum á okkur klaufalegt mark og eftir það sáum við varla til sólar í skýjuðum Hafnarfirðinum. Hefðum getað verið búnir að setja á þá mark og breyta þannig aðeins hugsuninni og sjálfstraustinu en það gerðist því mðiur ekki. Fimleikafélagið því öruggt með þessi 3 stig og eru nú loksins að verða búnir að klára verkefnið sem að þeir hafa verið að móta í eigin höndunum frá því í maí.  Við aftur á móti þurfum að halda vöku okkar áfram, Fylkir heima næst og þar þurfum við allavega eitt stig - þó að þrjú stig séu nú það sem að maður vill sjá á heimavelli.


mbl.is Vænleg staða FH eftir stórsigur á ÍBV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir..

....fyrir Valsmenn ef rétt er. - Algjör toppgaur Gunnlaugur Jónsson, allavega eru mín kynni af honum þannig.

Held að valsmenn ættu að þakka fyrir að losna við .....snakkarann Atla Eðvalds, ekki einu sinni sigur í 3 síðustu leikjunum mun gera árangur hans viðunandi í sumar og leið og menn kveðja Atla ættu menn að hringja í Willum, já eða senda honum skeyti, og þakka honum fyrir að halda liðinu í deildinni - brottrekstur hans eru held ég stærstu mistök sem gerð hafa verið í Pepsi deildinni og í öllum alvöru liðum væri tekið til í stjórn félagsins líka efti slík mistök, hvað ætli verði gert á Hlíðarenda?

Meira að segja ég Eyjamaðurinn sjálfur hef fengið skilaboð frá stuðningsmönnum Vals, bæði í spjalli og á Facebook um að þeir mæti ekki aftur á völlinn fyr en búið er að taka til í bakherbergjum á Hlíðarenda líka það er ekki nóg að skipta um einhvern þjálfara - hvort þessir aðilar standa við orð sín veit ég ekki en þetta fólk er allavega ekki búið að mæta á nokkra leiki í röð núna og í þessu árferði hafa lið varla efni á að missa áhirfendur frá sér, eða hvað?


mbl.is Gunnlaugur næsti þjálfari Valsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erum betri

Ég fer ekkert ofan af því að ÍBV liðið er betra en rindavíkur liðið og skil því svekkelsi Heimis, rúlluðum þeim upp hérna heimaog samkvæmt fréttaskýringum hefðum við átt að vinna í gær, en þetta er fórboltinn stundumvinnum við líkaleiki sem að manni finnst við ekkert eiga skilið að vinna eins og gegn Fjölni hérna heima og svo framvegis.

Viðerum með fínt lið, þó svo að AJ og Clem séu nú farnir, hefði verið fínt að hafa félagskipta gluggann nokkrumdögum síðar fyrst að það þurfti að kalla þá heim en það kæmi mér á óvart þrátt fyrir manneklu, meiðsl og stærð leikmannahóps, að þeir yrðu á bekknum á morgun þar sem að þeir koma nú ekki á svæðið fyrr en undir miðnætti í kvöld en vissulega yrði það gaman af ef að svo yrði. En ég vona að þeir fái fullt af tækifærum þeir sýndu það alveg í sumar hvers þeir eru megnugir og ekki getum við kvartað undan því að hafa fengið þessar elskur. Víst var það svo með þá að þá langaði að klára mótið með okkur en því miður gat það ekki orðið

Áfram ÍBV alltaf alss staðar.


mbl.is Flottur leikur, svekktur að fá bara eitt stig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sanngjarnt?

svo virðast sumir segja en samt viðurkenna allir að ÍBV hafi verið sterkari aðilinn í leiknum - hefðum kannski átt að hirða stigin þrjú? EN svona er boltinn og kannski eigum við Eyjamenn bara að vera sáttir því liðið okkar bara skipað aulum, samkvæmt sklgreiningu Harðar Magnússonar á stöð2. Í siðustu umferð vorum við aular að klára ekki Val en það bara eitthvað að hjá FH sem gerði bara jafntefli við Þróttara, og pirraði það Hörð mjög og olli hátt í 15 mínútna vangaveltum. Mikið vildi ég að við færum að losna við hann af skjánum, gætum við ekki fengið Gumma Ben 2 til að leysa hann af hólmi maður nennir þá allavega að hlusta og tekur mark á því sem hann segir. - sorry fólks varð bara að koma þessu að er alveg búinn að fá mig fullsaddann á því sem hann lætur hafa eftir sér þessi gaur.

Hvorugt liðið er svo sem alveg sloppið en það eru Fjölnismenn ekki heldur, en ég vil meina að við höfum sýnt karakter í kvöld þegar okkur vantaði2 leikmenn sem hafa verið meðal okkar bestu, ef ekki bestu, leikmanna í sumar - þá er það bara fimleikafélagið næst.


mbl.is Jafnt í Grindavík og Þróttur fallinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigur hjá mínum mönnum

Já já við höfum misst Clem og Ajay en við erum ekki hættir að bíta frá okkur, eina sem getur haft áhrif er það að veðrið verði óhagstætt þarna suður með sjó ;-)

Vonast eftir góðum leik sem að ég vona að við vinnum - áfram ÍBV alltaf alls staðar


mbl.is Tryggir Grindavík eða ÍBV tilverurétt sinn í Pepsi-deildinni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúi þessu ekki

Fékk fyrirliði Vals tuðarinn Bjarni Ólafur aðeins eins leiks bann fyrir eitthvert fólskulegasta brotið í efstu deild þetta árið - ég á ekki til orð yfir það hvernig menn fá þessa niðurstöðu - þarna var klárlega ásetningur á ferðinni, beint í háls leikmanns - klárlega tveggja leikja bann í mínum huga - en hann nýtur kannski verndar af því að hann er Valsmaður, og allir eru farnir að vorkenna þeim, og hann hefur verið valinn í landsliðið.

Talandi um Valsmenn þá held ég að Valsmenn hljóti að senda Willum Þór skeyti í haust og þakka honum fyrir að hafa haldið liðinu í efstu deild því liðið hefur varla unnið leik eftir að menn boluðu honum út.


mbl.is Tólf úr úrvalsdeild karla í leikbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atli Yo á skotskónum!!!

Skyldi minn maður í Frostaskjólinu verða á skotskónum í kvöld? Aldeilis kominn tími á eitt kvikindi frá honum - hef trú á að þetta verði hörkuleikur enda borgarslagur.
mbl.is Enn líf í titilvonum KR-inga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrasta lið landsins stálheppið

Þetta er leikur sem að ég er búinn að bíða eftir, Hlíðarendastórveldið í heimsókn og þeim hefur ekki gengi vel þrátt fyrir að vera dýrasta lið landsins by far. leikurinnn var nokkuð í járnum en ÍBV þó ívið sterkara þegar á heildina er litið og hefði átt skilið að vinna því ekki voru Valsmenn að skapa sér mikið - vítin sem að þeir fengu var vafasöm fyrir þær sakir að vippað var upp í höndina á leikmanni sem hafði hendur með síðu, en svona er þetta.

En það er eitthvað mikið að hjá Val og ótrúlegt að heyra hvernig leikmenn töluðu saman inni á vellinum og ekki bætti þjálfarinn neinu gæfulegu við - ekki heyrt annað eins í sumar - og að vera með miðju sem skapar ekkert og vera svo með einn mest skapandi miðjumann landsins sem hægri bakvörð - er náttúrulega bara grín, er alls ekki hans staða eins og sást í dag en svo átti hann nú t.d. frábæra stundusendingu sem klauf vörnina hjá ÍBV í herðar niður en senterinn gerði sig rangstæðan o ghvað gerðist þá í valsliðinu? fyrirliðinn hundskammaði Jeffs fyrir að gefa ekki yfir á sinn kant og þetta er ekki eina dæmið. Fyrirliði Vals var svo rekinn útaf fyrir brot sem verðskuldar 2 leikja bann og ef dómarinn gefur ekki það til kynna í skýrslu sinni er hann alveg búin að gera í buxurnar því vítin sem hann dæmdi var ódýr


mbl.is ÍBV og Valur skildu jöfn, 1:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband