Færsluflokkur: Pepsi-deildin
14.7.2009 | 08:18
Fengur í Hirti
![]() |
Hjörtur á leið frá Þrótti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.7.2009 | 22:31
......1 stig of lítið
Það var okkur dýrkeypt að vera ekki komnir í gír í upphafi leiks, þó svo að við ættum nokkur áhlaup áður en Keflvíkingar skoruðu þá var eins og við værum ekki alveg vaknaðir - 0-2 fyrir Keflavík og Pumasveitin komin á flug, en alveg eins og á móti FH um daginn þá hættu menn ekki og við skoruðum 2 mörk á nánast sama andartakinu í fyrra markinu skoraði Eiður Aron eftir hornspyrnu var mættur ásamt Andra Ólafs á fjærstönginni og svo slæm var völdun Keflvíkinga í því marki að ég er viss um að þeir hefðu getað tjaldað Þjóðhátíðartjaldi á meðan þeir biðu eftir boltanum en suðurnesjamenn voru en að skoða landskikan fyrir framan þá í teignum væntanlega í þeirri vona að hann væri eign HS veitna!!! - svo var það aukaspyrna hinu megin frá á fjær einnig og Andri Ólafs var þar eins og vitinn í Herjólfsdal gnæfði yfir aðra á svæðinu og skallaði í netið. Verð reyndar að minnast á að seinna mark Keflvíkinganna kom eftir skemmtilegt spil hjá þeim - það var vel gert, en samt algjör óþarfi.
Eftir að hafa jafnað 2-2 voru Eyjamenn miklu betri aðilinn og áttu skilið að vinna - Tonny, sem lék einn sinn besta leik í sumar átti frábært skot undir lok fyrri hálfleiks, ef ég man rétt, sem að Lasse varði hreint stórkostlega með því að blaka boltanum yfir. Ætla ekkert að tjá mig sérstaklega um Keflvíkurliðið gaman reyndar eins og alltaf að hitta Jón Örvara Arason Leedsara og Kristján Guðmunds og Puma sveitinni ber að þakka fyrir góða skemmtun í stúkunni - lang skemmtilegasti stuðnigsmannahópurinn sem hingað hefur komið í sumar, by far. Bjarni Hólm vinur minn fær líka hrós fyrir að fagna ekki villt og galið þegar Keflvíkingar skoruðu sín mörk, austfirðingurinn var eki að núa sínum gömlu félögum því um nasir að hans nýja lið skoraði.
Fengur okkar í strákunum frá Crewe er mikill og ég veit ekki hvort allir gera sér grein fyrir því að þeir eru aðeins 19 ára og því en gjaldgengir í 2. flokk. Það er þó nokkuð af ungum strákum í ÍBV-liðinu og þar er bara gaman að eiga þá til - þeir eru ekki allir einhverjar stjörnur en með réttu hugarfari og vinnusemi munu þessir peyjar halda merki ÍBV á lofti á komandi árum, rétt eins og þeir lögðu sig fram við í dag. -Jú og gott ef Garner var ekki kominn í fluggírinn upp og niður vinstri vænginn sem aldrei fyrr.
Brottrekstur Viðars Kjartanssonar pirraði ansi marga og Kristinn Jakobsson fékk að heyra það óþvegið - það kom stunga og varnarmaður og Viðar rákust saman, ekki viljandi held ég, Viðar féll en ekkert var dæmt, hann stendur síðan upp en kastar sér svo á hnén og fóranr höndum - þar sem ég sat gat ég ekki greint hvort hann sagði eitthvað eða ekki, en hann var klárlega svekktur og það má vel líta á þetta sem mótmæli við því að fá ekki dæmt - og það má svo sannarlega gefa gult spjald fyrir að mótmæla því að fá ekkert dæmt og það gerði dómarinn í þessu tilfelli, varla spjaldið hann fyrir leikaraskap því hann aðhafðist ekkert fyrr en leikmaðurinn var búinn að kasta sér á hnén og fórna höndum!!!!! - rétt líka að benda á að dómarinn spjaldið Keflvíking stuttu síðar fyrir að mótmæla því að fá ekki víti!!!! - EN mér fannst við eiga að fá víti í fyrri hálfleik egar knötturinn fór klárlega í hönd Keflvíkings inni í teig en dómarinn sá það greinilega ekki sömu augum og ég og því flautaði hann ekki.
En við áttum skilin 3 stig svo mikið er víst -
![]() |
Eyjamenn fengu dýrmætt stig gegn Keflvíkingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
11.7.2009 | 18:14
Ágæt skemmtun en......
![]() |
Valssigur á KR-velli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 19:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.7.2009 | 15:45
Fimleikafélagið er gott...
.... en það er ekki ósigrandi - það er ekkert lið ósigrandi.
Þolinmæði, agi, skipulag og að spila fótbolta gegn fótbolta hefur alltaf verið farsælast - það er til lítils að koma inn á og ætla að sparka í allt sem hreyfist - það skilar engu gegn góðu fótboltaliði. Verður gaman að sjá hvað trukkurinn Óli Þórðar galdrar fram úr erminni í kvöld hjá sínum mönnum. Spái reyndar 3-1 fyrir FH!!!!!
![]() |
Óli Þórðar: Reynum að hægja á FH-ingunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.7.2009 | 09:04
Samningaviðræður standa yfir
![]() |
Óásættanlegt tilboð frá Halmstad |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.7.2009 | 09:10
Verð að segja það að......
![]() |
Guðmundur í sigti Valsara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.7.2009 | 22:25
Er Atli Eðvalds að taka við Valsliðinu?
Getur einhver svarað því?
Nú sagði Willum ekki upp samkvæmt yfirlýsingunni og því hljóta Valsmenn að þurfa að ráða þjálfara með fulla menntun? Æi nei var búin að gleyma þú getur ráðið hvern sem er því KSÍ mun aðeins aðvara þig en ekki sekta fyrir að gera það - meira grínið hjá þeim þarna í Laugardalnum, en atvinnulaus leikmaður getur ekki fengið leikheimild af því að það stríðir gegn hugmyndafræði þessara háu herra. AUðvitað eiga reglurnar að vera klárar ef að þjálfari segir ekki upp starfinu heldur er látinn fara af félaginu/stjórn eða þá í sameiginlegri ákvörðun (í farsælu samstarfi) þá áekki að vera nein miskun það á að þurfa að ráða mann með fulla menntun í starfið - til hvers að vera að láta menn taka öll þessi námskeið ef svo er hægt að beygja reglurnar svona - skil þetta ekki.
![]() |
Þorgrímur stýrir Val gegn FH |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.7.2009 | 14:35
Farsælt samstarf.....endar á miðju tímabili!!!
Willum hefur gert fína hluti á Hlíðarenda, en ég er ekkert hissa þó ekki sé sátt um liðið þessa stundina, enda liðið af mörgum talið dýrasta lið landsins - svona Real Madrid Íslands - en liðinu ekki vegnað sem skyldi það sem af er.
Verður forvitnilegt að sjá hvað tekur við að Hlíðarenda!
![]() |
Willum hættur sem þjálfari Vals |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.7.2009 | 10:58
Yfirklór
![]() |
„Notað í sérstökum tilvikum“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.6.2009 | 08:58
Regluverk eða ekki...
![]() |
Guðmundur ósáttur við KSÍ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |