20.1.2010 | 09:00
Face!!!!
Ein frænka mín segir alltaf við mig "face" þegar eitthvað kemur fyrir hjá mér sem er mér ekki í hag. Það á svo sannarlega við hérna. Ég sé þetta ekki öðruvísi en að það sé smá húmor í þessu. Mikil meirihluti allra sem fylgdust með málum hjá West Ham sá í gegnum vinnubrögð Eggert og hló að honum bak við tjöldin og hristi hausinn. Hann heyrði það greinilega ekki og því hafði hann í hyggju að ryðjast fram á völlinn á ný.Ekki sýnist mér að hoonum verði kápan úr því klæðinu.
Held að hann þurfi að gera það hjá öðru vliði en West Ham. Kannski fær hann einhvern tíma tækifæri til þess að binda stóran bindishnút með félagsbindi annars liðs - hver veit.
Get ekki að því gert að mér finnst þetta svolítið íslenskt - kveiktu í - mættu svo til að bjóðast til að stjórna slökkviliðsstarfinu.
Sullivan: Eggert vildi koma aftur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
gott hjá þér nafni víkingarnir gjörsamlega tómir.
gisli (IP-tala skráð) 20.1.2010 kl. 09:18
Ég á hvorki orð né krónu.
Jesús minn (IP-tala skráð) 20.1.2010 kl. 10:28
Eggert sýndi gríðarlega vanhæfni og svaðalegan dómgreindarbrest í starfi sínu þarna, West Ham væru í ekki eins djúpum ef hans hefði ekki notið við.
Jóhannes Birgir Jensson, 20.1.2010 kl. 10:56
Nohh bara verið að vitna í litlu frænku á aðal blogginu, mikið rosalega er ég stolt
Ingibjörg (IP-tala skráð) 22.1.2010 kl. 16:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.