12.2.2010 | 13:51
Heyr, heyr
Tek undir þetta með Guðlaugi Þór. Það þarf að rannsaka þetta eftir hrun samfélagi. Það virðist vera beygt svona: ég, um mína , frá mínum, ekkert til handa hinum.
Svo er það hinn handleggurinn. Því meira sem að þú skuldar því auðveldara er að fá að byrja upp á nýtt með hreint borð. Hafirðu verið meðaljón fyrir hrun þá níðumst við á þér og drögum þig ofan í svaðið og finnum engar lausnir.
Þetta á að rannsaka, það á líka að rannsaka hvernig raðað var inn í bankana. Allt þetta hæfileikaríka fólk sem kom okkur í súpuna situr þar en og hrærir í, það er kannski partur af því að það sem nefnt var hér á undan gerist.
![]() |
Rannsaka þarf það sem gerst hefur frá hruni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.