Kosningin kærð?

.....vegna framkvæmdagalla?

Í kosningalögum stendur:

 81. gr.
Þá er kjósandi hefur tekið við kjörseðlinum fer kjósandi með hann inn í kjörklefann, þar sem kjósandinn má einn vera, og að borði því er þar stendur. Á borðinu skulu vera ekki færri en tvö venjuleg dökk ritblý er kjörstjórn lætur í té og sér um að jafnan séu nægilega vel ydd.

....í kjörklefanum hjá mér var aðeins einn blýantur!!!  Er ekkert viss um að það hafi áhrif á úrslitin en klárlega ekki samkvæmt lögum, og ég hef heyrt fleiri tala um þetta.


mbl.is Kjörfundi lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Þegar þú minnist á þetta...

Haraldur Rafn Ingvason, 9.4.2011 kl. 22:53

2 identicon

Hei! Það var bara eitt ritblý í mínum klefa, og illa yddað!!! Guði sé lof fyrir Hæstarétt!!!

Hjörtur B Hjartarson (IP-tala skráð) 9.4.2011 kl. 23:26

3 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

ert ekki að grínast??????

Guðmundur Júlíusson, 9.4.2011 kl. 23:38

4 identicon

Það var bara einn blýantur í mínum klefa en ég hélt það væri bara vegna kreppunnar.En tvímælalaust að kæra þessar kosningar.

Aðalbjörg (IP-tala skráð) 9.4.2011 kl. 23:45

5 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Guðmundur er ég vanur að grínast? þetta er klárlega brot á kosningalögum þó ég sé alveg viss um að þetta hafi ekki áhrif á útkomu kosninganna.

Gísli Foster Hjartarson, 9.4.2011 kl. 23:52

6 identicon

Og þar að auki var hann illa yddaður:)

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 10.4.2011 kl. 00:39

7 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Það var einn hjá mér......en notaður í báða enda...Steingrímur öðrum megin og svo Lilja Móa hinn endinn...
Bestu kveðjur...

Halldór Jóhannsson, 10.4.2011 kl. 03:22

8 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Góður Halldór  En ég sé að það er greinilega ekki farið eftir lögum í þessum kosningum. Verður en og aftur að taka framkvæmd kosninga fyrir hjá Hæstarétti?

Gísli Foster Hjartarson, 10.4.2011 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband