20.10.2011 | 19:05
Ekki alveg sáttur eða.......
Fátt þarna sem kemur á óvart svo sem. Sýnist flestir mjög vel að sinni nafnbót komnir. Finnst samt eins og Þórarinn Ingi hefði átt að ná inn í úrvalslið ársins, með þessu vali. En svona er ég skrýtinn. Hannes Þór svo sannarlega einn af ásum Íslandsmótsins í ár.
Finnst líka frábært að sjá vinkonu mína Elísu Viðarsdóttur þarna inni í kvennaliðinu. Hún er væntanlega líka fyrirliði
Þjálfarar ársins eru náttúrulega bara þeir einu sem komu til greina í þeirri deild. Árangur Rúnars í sumar hreint út sagt frábær. Sama hvert litið er. Þorlákur Már náði náttúrulega ótrúlegum árangri með liðið í deildinni í sumar og afrek Stjörnunnar góður - alltaf gaman þegar eitthvað nýtt lið kemur og landar dollu.
![]() |
Hannes og Gunnhildur leikmenn ársins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Pepsi-deildin | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.