Ekki slæmt val

Til hamingju Heiðar Helguson. Þetta er ekki slæmt val hjá íþróttafréttariturum. Árið í ár ekkert risa íþróttaár. Heiðar hefur staðið sig vel í ENglandi og nýtur náttúrulega líka góðs af því að hann er tuðrusparkari - sem menn telja alltaf vinnsælustu íþróttagreinina. Hélt reyndar personulega að Kári Steinn Karlsson yrði ofar, hef annars lítið út á þetta að setja svo sem. Er mjög sáttur við að Heiðar vann þetta.

Langar í staðinn að benda á áhugaverða grein sem ég komst yfir í dag og tengist valinu. Finnst þetta áhugaverð pæling sem Leifur Geir Hafsteinsson setur þarna fram. - birti þetta án leyfis frá honum

Eftir Leif Geir Hafsteinsson, eiganda og yfirþjálfara CrossFit Sport.

Frá því að Anníe Mist Þórisdóttir sigraði Heimsleika CrossFit í ágúst 2011, hefur talsverð umræða farið fram um það, hvort hún komi til greina í kjöri á íþróttamanni ársins. Allmargir hafa haldið því fram að Anníe væri ekki kjörgeng, þar sem íþróttin CrossFit heyrir ekki undir ÍSÍ. Því miður virðast íþróttafréttamenn hafa farið eftir þessum röddum og sniðgengið Anníe í kjörinu, að því er virðist ranglega.

Í reglugerð um kjör íþróttamanns ársins, sem birtar eru í heild sinni neðst í þessum pistli, segir m.a.:

Í 1. grein: "Samtök íþróttafréttamanna (SÍ) kjósa ár hvert íþróttamann ársins sem skarað hefur framúr."

Í 2. grein: "Við val á íþróttamanni ársins skulu atkvæðisbærir félgar inna SÍ taka tillit til árangurs á árinu sem kjörið á við um. Einnig skal tillit tekið til reglusemi og ástundunar, prúðmennsku og framfara"

Í 4. grein: "Aðeins íþróttamenn sem tilheyra sérsambandi innan ÍSÍ koma til greina í kjörinu. Ef íþróttamaður utan ÍSÍ fær atkvæði er sá atkvæðaseðill ógildur."

Skoðum þetta lið fyrir lið.

Varðandi 1. grein.

Það hvort íþróttaafrek Anníe skaraði framúr á árinu er auðvitað matsatriði, og í sjálfu sér ekki efni þessa greinarkorns. Hins vegaru eru greinilega ýmsir á þeirri skoðun að svo sé, í ljósi þess að hún var t.d. valin íþróttamaður ársins á ýmsum miðlum, svo sem af lesendum visir.is og hlustendum Bylgjunnar, á www.sport.is og líklega víðar. Það má því færa allgóð rök fyrir því að hún hefði átt góða möguleika á að hljóta eitt af 10 efstu sætunum, og jafnvel að sigra, sérstaklega þar sem óvenju fáir einstaklingar í öðrum og hefðbundnari íþróttagreinum unnu til afreka á heimsmælikvarða.

Varðandi 2. grein

Fyrir utan að sigra heimsmeistaramót í sinni íþróttagrein, er Anníe til fyrirmyndar í reglusemi, ástundun, prúðmennsku, og hún hefur sýnt jafnar og stöðugar framfarir á þeim stutta tíma sem hún hefur einbeitt sér að CrossFit. Það undirstrikar reglusemi hennar að hún fór í tvö lyfjapróf á árinu 2011, annað framkvæmt af lyfjanefnd ÍSÍ eftir sigur hennar á CrossFit leikum EAS Þrekmótaraðarinnar í maí 2011. Í hvorugt skiptið fundust nein merki um ólöglega lyfjanotkun.

Varðandi 4. grein

Hún tilheyrir sérsambandi innan ÍSÍ, Lyftingasambandi Íslands, og var valin lyftingakona ársins 2011 eftir að hafa sett þrjú Íslandsmet og orðið Íslandsmeistari í 69 kg þyngdarflokki kvenna.

Samantekt

Eins og sést, uppfyllir Anníe Mist öll þau skilyrði sem þarf til að koma til greina í kjöri á Íþróttamanni ársins 2011. Það kemur líka skýrt fram að það er ekkert í reglugerðinni um kjör á íþróttamanni ársins sem krefst þess að íþróttaafrekið sem verðlaunað er fyrir sé í íþrótt sem heyri undir ÍSÍ. Þessi leiði misskiliningur virðist því miður hafa kostað Anníe Mist möguleikann á að verða kjörin Íþróttamaður ársins 2011.

Leifur Geir Hafsteinsson, PhD.

Eigandi og yfirþjálfari CrossFit Sport

leifurgeir@crossfitsport.is

REGLUGERÐ UM KJÖR ÍÞRÓTTAMANNS ÁRSINS

1. Samtök íþróttafréttamanna (SÍ) kjósa ár hvert íþróttamann ársins sem skarað hefur framúr. Hlýtur sá titilinn ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS.

2. Við val á íþróttamanni ársins skulu atkvæðisbærir félgar inna SÍ taka tillit til árangurs á árinu sem kjörið á við um. Einnig skal tillit tekið til reglusemi og ástundunar, prúðmennsku og framfara.

3. Kjörið fer fram í desembermánuði ár hvert, atkvæðisrétt hafa meðlimir í Samtökum íþróttafréttamanna samkvæmt lögum félagsins.

4. Kosningin fer þannig fram að félagar SÍ fá þar til gerðan atkvæðaseðil. Á hann rita þeir nöfn tíu bestu íþróttamanna ársins að sínu mati. Sá sem settur er í fyrsta sætið hlýtur 20 stig. Sá sem settur er í annað sæti hlýtur 15 stig. Sá sem settur er í þriðja sæti hlýtur 10 stig. Sá sem settur er í fjórða sæti hlýtur 7 stig, sá í fimmta 6 og þannig koll af kolli. Verði tveir eða fleiri íþróttamenn jafnir að stigum í efsta sæti verður sá íþróttamaður ársins sem oftast hefur verið settur í fyrsta sæti. Verði enn jafnt skal talið hvor er oftar í 1. og 2. sæti. Ef enn er jafnt er talið hvor er oftar í 1. 2. og 3. sæti og svo framvegis niður listann þar til niðurstaða fæst. Ef þetta dugar ekki skal almennur félagsfundur ákveða hver verður íþróttamaður ársins. Aðeins íþróttamenn sem tilheyra sérsambandi innan ÍSÍ koma til greina í kjörinu. Ef íþróttamaður utan ÍSÍ fær atkvæði er sá atkvæðaseðill ógildur.

5. Atkvæðaseðlum skal skila í lokuðu umslagi til stjórnar ekki síðar en 15. desember ár hvert. Tveir fulltrúar stjórnar og fulltrúi frá skrifstofu Sýslumannsins í Reykjavík skulu telja atkvæðin við fyrstu hentugleika. Niðurstöðu talningar skal haldið leyndri. Hóf þar sem úrslitin eru tilkynnt skal síðan haldið á milli jóla og nýárs, eða sem fyrst eftir áramót. Í hófið skulu auk annarra vera boðnir tíu efstu íþróttamenn á listanum yfir íþróttamann ársins.

6. Sé íþróttamaður ársins ekki viðstaddur hlýtur hann verðlaun sín við fyrsta hentuga tækifæri.

7. Stjórn SÍ ákveður að öðru leyti hvernig framkvæmdinni er háttað, og sker úr um vafaatriði sem upp kunna að koma.

Samþykkt á aðalfundi 20. apríl 1994, breytingar á 4. grein voru samþykktar á aðalfundi 21. febrúar 2007. Breytingar á 3. grein voru samþykktar á aðalfundi 22. apríl 2009.

Aðgengilegt á:

http://sportpress.is/logfelagsins.htm


mbl.is Heiðar íþróttamaður ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Skrítið að sjá ekki Önnu Úrsölu ofar þessa miklu baráttukonu.......en kanski munaði bara örfáum stigum...og hægt að jagast endalaust um röðina....en enn skrítnara að fótbolta.net síðan er með kosningarétt...eða frekar ENN skrítnara ÞÁ að td körfuboltinn,handboltinn,og fl hafi ekki atkvæðisrétt....

Til hamingju Heiðar....

Halldór Jóhannsson, 5.1.2012 kl. 21:56

2 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég taldi rétt að velja aðra hvora knattspyrnukonuna og þá frekar Söru Björk, sem vann sænsku deildina með Malmö og kvennalandsliðið hefur verið að ná frábærum árangri, á sama tíma og karlaliðið er á botninum. Nema auðvitað unglingalandsliðið (Kolbeinn.)

Hefði líka viljað sjá Aron ofar, meistara með Kiel í sterkustu handboltadeild heimsins og mikilvægan hlekk í landsliðinu.

Theódór Norðkvist, 5.1.2012 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.