3.2.2012 | 14:15
Nákvæmlega svona er þetta
...hinir ríku vilja stela af þeim fátæku, og fá að gera það í friði!!!! Þeir gleðjast því hinir efnuðu þjófar þessa lands fá niðurfelldar skuldir hægri vinstri á meðan legið er á þeim er minna sín og þeir sóttir upp um fjöll og firnindi eftir hverri krónu.
Verst er að fjöldinn allur af fólki virðist vilja sleikja upp þá er stóðu í stafni og í brú, og veifuðu snittum og bjór í allar áttir, á meðan þjóðarskútan strandaði!!! Ætli fólk lifi enn í þeirri von að brauðbitar og bjórslettur lendi á þeirra borði og tungum?
Allt er þetta fólk svo þeirrar skoðunar að þeir er stóðu í stafni og brú hafi ekki gert neitt rangt, en vilja samt ekki að það sé skoðað ofan í kjölinn!!!
- aum er þessi 300 þúsund manna þjóð orðin.
Klofin þjóð í afstöðu til ákæru | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Jebbs og svo mun blessaður íslenski kjósandinn staðfesta í næstu kosningum.
Kveðja að norðan.
Arinbjörn Kúld, 3.2.2012 kl. 18:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.