7.3.2013 | 09:03
...engin ástæða til að kvarta!
Engin ástæða til þess að æsa sig yfir þessu, og í raun kannski ekki ástæða til að vera að blása þetta upp í frétt einu sinni.
Fólk má ekki gleyma að oft tala Eyjamenn um sig sem sérstakan þjóðflokk þar sem allt er mest og best og því eru einhverjar svona hömlur í samgöngum eitthvað sem fólk æsir sig ekkert yfir og sennilega líkar mörgum hér í Eyjum bara vel við þessa einangrun, ef ég þekki þá rétt, enda að sögn lítið að sækja upp á land!!!!
Vestmannaeyjar einangraðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Að lenda í þessu nokkra daga á ári er eðlilegt þegar maður býr á Eyju. Eins og þú segir, þá er það stundum kostur að búa við þessa einangrun, en þá þarf líka að gæta þess að grunnþjónustan í "lókalinu" sé í lagi s.s. heilsugæsla, lögreglan og Lundinn.
Jón Óskar (IP-tala skráð) 7.3.2013 kl. 13:40
það er málið Jón Óskar - manni finnst í raun ekkert óeðlilegt við að þetta lokist í einhverja daga á ári. Tíðarfarið búið að vera óvenju gott og því óþarfi að missa sig þó það komi tveir dagar. stefnir en í að það verði fært rúmlega 360 daga á þessu ári
Gísli Foster Hjartarson, 8.3.2013 kl. 08:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.