Sigur fyrir körfuboltann

Það hefur verið gaman að fylgjast með úrslitakeppninni í körfuboltanum -þvílíkt líf og fjör og frábær stemmning á pöllunum. Ég hélt að ég myndi gefast upp þegar mitt lið Snæfell tapaði fyrir KR í undanúrslitum, en fylgdist engu að síður með áfram og sé ekki eftir því, frábær skemmtun. Stuðningmenn beggja liða eiga heiður skilin fyrir að lyfta upp stemmningunni og þá sérstaklega KR-ingarnir, þetta var oft á tíðum eins og það sem að maður sér frá Suður-Evrópu, nema hvað blysin voru ekki notuð innandyra - við skulum áfram geyma þau úti. 

Ég hélt nú með mínum manni Eyjapeyjanum Frikka Stefáns í úrslitaleikjunum en það dugði skammt. KR - fór með sigur af hólmi með frábærum endaspretti  í þremur leikjum í röð - sennilegast orðið sálrænt í fjórða leik.

Til hamingju KR-ingar

Snæfellingar við tökum þetta næsta vetur - ekki spurning

Körfuboltafólk, já stelpurnar líka,  til hamingju með vel heppnaða úrslitakeppni - þetta var sigur fyrir körfuboltann


mbl.is Einar: „Körfuboltinn hefur færst upp á annað stig”
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband