16.5.2007 | 07:23
Bravó bravó
..Er það ekki, er ekki kominn tími til að taka til hendinni í vinnunni! Hvað hafa menn verið að gera hingað til? Sé ekki betur en að þarna sé um að ræða störf sem lögreglan á að sinna af ýtrsutu kostgæfni allt árið um kring - Til hvrs þurfa menn að tilkynna að þeir ætli að sinna skyldustörfum sínum?
Sé í anda eftirfarandi tilkynningar:
Starfsfólk í frystihúsum landsins ætlar sér að flaka fisk af meiri kostgæfni á næstunni heldur en hingað til - Læknar við Sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum hafa ákveðið að hlúa að öllum sjúklingum sem þangað koma - Starfsfólk í Krónunni í Vestmannaeyjum hefur ákveðið að gefa öllum til baka sem eiga svo sannarlega rétt á slíku, og hjálpa til við að setja vörur í poka.
Þurfa menn ekki alltaf að sinna vinnunni sinni svo að allt fari ekki til andskotans!
Lögreglan í höfuðborginni lætur mikið á sér bera | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.