Lygi !

beatlesekkert annað en ósannindi. Við getum ekki sagt að Bítlarnir verði á Borginni þó að tveir af meðlimum hljómsveitarinnar hafi ákveðið að láta sjá sig á landinu, hvað svo sem er til í því.   Við segjum ekki ef að tveir leikmenn ÍBV liðsins fara í bíó að ÍBV-liðið hafi farið í bíó - Ef að Bono og Larry Mullen sjást saman úti að borða geta menn ekki sagt að U2 hafi verið úti að borða heldur einungis partur af hljómsveitinni.  Þarna eiga menn náttúrulega að segja eitthvað í þá áttina að tveir af Bítlunum verði á landinu eða bara Paul og Ringo á leiðinni til landsins. Við getum ekki sagt að hljómsveitiin verði einhversstaðar þó einhverjir tveir sjáist? Ef að það er hægt þá er bleik brugðið, tala nú ekki um hversu skelkaður ég yrði ef að Bítlarnir kæmu nú allt í einu saman á ný, sem er jafn borin von og að Bítlarnir muni verða á  Borginni. En auðvitað er frétt með svona fyrirsögn eins og þessi líklegri til að fá meiri lesningu Wink

En að sjálfsögðu er það ánægjulegt ef að þessir tveir mætu menn munu heiðra okkur með nærveru sinni núna eftir nokkra daga, ef að satt reynist.


mbl.is Bítlarnir verða á Borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hversu óhugnanlega leiðinlegur getur þú verið!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

ringo (IP-tala skráð) 29.9.2007 kl. 09:10

2 identicon

Eru þeir ekki bítlar? Bítillinn Paul og Bítillinn Ringo?

Getum við ekki sagt að tannlæknar gisti á borginni ef 2 gista? væri það bara hægt ef hver og einn einasti tannlæknir í heimi gisti þar á sama tíma?

Þú ert greinilega ekki skarpasta skrúfan á netinu.

Heiðar (IP-tala skráð) 29.9.2007 kl. 09:33

3 identicon

Heiðar: Þú ert sjálfur eitthvað að misskilja ef þú heldur að "tannlæknar" og "BítlarNIR" sé sambærilegt orðalag. Sambærilegra væri ef þú hefðir sagt "tannlæknarnir". Það er ákveðinn greinir þarna.

 Mogganum til varnar má þó segja það að það eru aðeins tveir Bítlar á lífi og því eru þessir tveir, þessa stundina, einu "Bítlarnir" sem gætu verið að koma.

G. H. (IP-tala skráð) 29.9.2007 kl. 09:45

4 identicon

Tannlæknarnir verða á borginni. (fyrirsögn)

Tveir tannlæknar, Hjalti og Mófreður munu gista borgina meðan ráðstefna tannlækna stendur yfir í Háskólabíói.

....og í lokin, grow up!

Heiðar (IP-tala skráð) 29.9.2007 kl. 09:54

5 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Er þetta ekkil ygi hjá þér líka Heiðar er einhver tannlæknir hérálandi sem heitir Mófreður?

En það er sem ég segi - það er hægt að kveikja áhuga fólks á lesningu með skemmtilegri fyrirsögn, það gerði mbl.is og það gerði ég

Gísli Foster Hjartarson, 29.9.2007 kl. 11:21

6 Smámynd: Jónas Rafnar Ingason

Þeir tveir eru eftirlifandi bæitlar, en það er misísandi að segja að Bítlarnir verði á Borginni! Flestir vita þó að Bítlarnir sem hljómsveit eru löngu, löngu hættir! Og hverjum er ekki sama.

Jónas Rafnar Ingason, 29.9.2007 kl. 13:41

7 identicon

Ég er sammála þér Gísli. Þessi fyrirsögn fékk mig til að kíkja á fréttina því ég var að velta því fyrir mér hvernig þeir ætluðu að TROÐA upp á Borginni eða eitthvað álíka. Var svona að spá hvort um væri að ræða eitthvað Bítla show og fréttamaðurinn hefði valið að orða þetta svona, einmitt til að trekkja lesendur að þessari frétt.

En svo kom í ljós hið augljósa sem var ekki svo augljóst við fyrstu sýn.

Sigrún (IP-tala skráð) 29.9.2007 kl. 21:59

8 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Gott að eyra að einhverjir gátu "misskilið" fyrirsögnina eins og ég, en aðvitað koma Bítlarnir aldrei saman aftur  í sinni vinsælustu útgáfu það er einfaldlega eki hægt, það sama á náttúrulega við um Led Zeppelin. Menn kaupa aukaútgáfuna og reyna að gera gott úr henni - Þeta hefur ekkert að gera með lögin hjá þessum sveitum þau eru sígild.

Gísli Foster Hjartarson, 30.9.2007 kl. 02:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband