Klapp klapp

Þessu fagna ég af heilum hug, þetta sýnir stórhug og metnað að leggja fram peninga í svona verkefni. Þessi maður er sífellt að koma manni meira og meira á óvart. Nú geta þessir tuðarar sem kvarta undan skorti á íslensku efni sest á rökstóla og fundið eitthvað að þess hjá karlinum, yrði skelfilegt fyrir þetta lið að þurfa að fara að viðurkenna að eitthvað er að gerast í málunum. Svo er spurning hvort að Palla Magg bretti ekki enn frekar upp ermar og fá fleiri svona karla til að leggja pening í innlenda dagskrárgerð. Ég veit að einhverjir munu segja þetta er nú ekki svo mikið og bla bla bla en allt að hundrað milljónir á ári er svo sannarlega betra að hafa í vasa en fá aldrei og það veit ég að okkar ágæta starfsfólk á RÚV mun geta nýtt þessa peninga til góðra verka.

Hafðu heila þökk Björgólfur Guðmundsson


mbl.is Björgólfur Guðmundsson leggur fram fé til framleiðslu sjónvarpmynda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband