30.3.2008 | 16:01
Að vera ábyrgur gjörða sinna
Eins og ég hef nú oft gaman af Hannesi þá sé ég nú ekki ástæðu til þess að efna til söfnunar handa honum á þennan hátt, hefði haldið að menn þyrftu bara að axla ábyrgð eigin skrifa og gjörða en ekki leita eftir ölmusu þegar á bjátar.
Að styðja við bakið á fólki sem á við alvarleg veikindi og getur ekki staðið að kostnaði sjálft skil ég mæta vel en að Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni amar að því er ég best veit ekkert, nema hann hafi náð sér í svona alvarlegt "hægri-syndrom" að hann þurfi að leita sér lækninga gegn því þá er kannski í lagi að verja hann.
Í hreinskilni sagt hélt ég að það væri komin 1.apríl þegar ég las þessa grein
Söfnun fyrir Hannes Hólmstein | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það skeikar nú ekki nema tveimur dögum.
Sigurður M Grétarsson, 30.3.2008 kl. 21:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.