
Finnst þessi hugdetta hjá þeim félögum alveg frábær hugmynd - veit að þetta æði hefur tröllriðið mörgum patrýum og kvöldstundum í heimahúsum, er reyndar ekki með svona við Wii tölvuna hjá mér en sem komið er. Veit að núna eru nokkrir félagar mínir komnir í svona hljómsveit og ég bíð spenntur eftir að fá ða sjá þá koma fram einhversstaðar opinberlega - er viss um að það verður tær snilld, svo ekki sé meira sagt. Hlakka til að sjá hverju framvindur í þessu máli hjá þeim félögum í GameTíVí - langar nú líka að hrósa þeim fe´lögum fyrir skemmtilega þætti nú er ég ekki tölvuleikja fíkill, þó svo að ég hafi gaman af að keppa við dóttur mína í hinum og þessum Wii leikjum öðru hvoru, en oftar en ekki hef ég mjög gaman af þessum þáttum hjá þeim - var ekkert viss um að svona efni virkaði neitt sérstaklega sem sjónvarpsefni sem ég nennti að sitja yfir. Flott hjá ykkur piltar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.