Svo er bara að skella sér í prófið aftur

Það er til lítils að rembast við að fá bílpróf til þess eins að sólunda því svona - hálf heimskulegt ekki satt - hvað þessari elsku lá á veit ég ekki en hún getur væntanlega greint frá því sjálf, ekki það að okkur komi það við.  Farðu bara hægar næst ljúfan!
mbl.is Tekin á 199 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég myndi hvorki kalla þessa ógæfustúlku elsku né ljúfu. Hún hefði auðveldlega getað kálað fjölda fólks með þessum vægast sagt heimskulega akstri.  Ég sárvorkenni foreldrum hennar sem væntanlega spyrja sig nú, hvað hafi eiginlega farið svona mikið úrskeiðis í uppeldinu.

Stefán (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 10:33

2 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Já ætli þetta sé ekki hverju orði sannara hjá þér Stefán með foreldrana og vissulega er þetta heimskulegur akstur  vægt til orða tekið - ég var nú bara að reyna að fara um hana aðeins mýkri höndum en hún átti kannski skilið - biðst afsökunnar á því

Gísli Foster Hjartarson, 17.7.2008 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband