19.7.2008 | 14:22
Einkaviðtal viðTrulli: "Ég mun stíga bensínið í botn"
Fosterinn náði tali af Jarno Trulli ígegnum personuleg tengsl sín við MK eiganda Toyota á Íslandi, og í Eyjum, og var kappinn brattur, hann sagði meða annars:
Hæ gaman að heyra í þér - ertu ekki hress - já auðvitað langar mig á Þjóðhátíð - jújú ég fékk humar pakkann frá Binna í Vinnsló! - ég leyfði mér ða klippa þetta allt úr viðtalinu og ætla hér að birta aðeins það sem skiptir í raun máli.
Varðandi keppnina á morgun sagði hann: "Ég stefni á sigur. Ég á smá inni frá því í dag og ég finnþað á mér að þetta smellur á morgun. Það verður gaman að standa á palli hérna í Hockenheim og glotta framan í Þjóðverjana."
Varðandi tímabilið sagði hann: " Já þetta er klárlega mitt besta tímabil en ég veit að ég er en að bæta mig ogég mun ná lengra, ég stefna á að verða besti ökuþór Toyota frá upphafi - ekki spurning. Vonandi verður árangur minn á morgun til þess að fólk fær aukna trú á mér."
Meira ætla ég ekki að birta að þessu sinni og þakka ég MK fyrir að koma þessu sambandi á en þeir "félagar" voru að fara að fá sér pasta að viðtalinu loknu - verði þeim að góðu.
FORSA TRULLI
Hamilton vinnur ráspólinn í Hockenheim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.