24.7.2008 | 17:03
Nú skal öllu tjaldað!!!
Þetta er nú þekkt aðferð sem menn fara þarna man ekki betur en að t.d. ÍBV hafi reynt þetta að einhverju leyti árið 1986 þegar vel var liðið á mót og menn vildu reyna allt til þess að halda sæti sínu í deildinni. Þarna kemur inn gríðarlega reynsla í liðið, sem væntanlega hverfur svo aftur á braut í haust þegar móti lýkur, en það verður gaman að sjá hvað menn gera og hverjir verða notaðir. Víst er að fá ef nokkur byggðarlög á Íslandi, Reykjavík meðtalinn, hafa alið upp jafnmarga góða leikmenn og Akranes og því ætti að vera hægt að notfæra sér þetta á einn eða annan hátt. Ég bíð spentur eftir því að sjá hvað gerist.
![]() |
Tveir reynsluboltar taka fram skóna með ÍA |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Pepsi-deildin | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.