Vonandi góð færsla fyrir Jeffsy

Ætla ekki að segja að þetta komi mér neitt sérstaklega á óvart Það vrðist hafa jarað hratt undan hinum appelsínugulu í Árbænum á þessu ári og á ýmsu virðist hafa gengið og strax í upphafi móts virtist gæta einhvers ójafnvægis í liðinu og umgjörð þess - sýnist þetta bend en frekar til þess að þessar sögusagnir um erfiðleika Fylkis eigi við rök að styðjast.  Personulega held ég nú að Óli Þórðar sé nú ekki sá þjálfari sem myndi nýta Jeffsy á "réttan hátt" hefur alltaf fundist Óli vera meira fyrir kraftaboltann en tæknilega sinnuðu leikmennina sem Jeffsy svo sannarlega er, þó honum sé margt til lista lagt inni á vellinum.  Ég vona að þessi færsla reynist jákvæð fyrir Jeffsy.

En það virðist ekki vera skortur á seðlum á Vodafonesvæðinu og þar á bæ eru menn ekki hætir og maður heyrir orðróm um að fleiri leikmenn séu nefndir til sögunnar, hvað svo sem er til í því, og það klmi mér ekkert á óvart að aðeins sé búið að strika yfir 2 efstu nöfnin á innkaupalistanum..


mbl.is Ian Jeffs til Vals
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband