Kjötið hefur rokselst er það ekki!

enda markaður góður!!! Eins og gengið hefur hingað til að selja, það sem að við borðum varla sjálf, þá veit ég ekki hversu mikill skaðinn er. Já já ég veit að menn tala um að hvalurinn borði svona og svona mikið eða lítið og ég hef alltaf verið hlynntur þessum veiðum en hverju hafa þær skilað okkur síðastliðin 15 ár í þjóðarbúskapinn? Ég bara spyr. Svei mér þá ef að lundapysjuskoðun hefur ekki skilað meiru!!!
mbl.is Gætum þurft að hætta hvalveiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Á Grétarsson

Það sem var veitt í sumar af þessu girnilega hrefnukjöti var uppurið fljótlega í september.

Hverju hafa veiðarnar skilað síðustu 15 árin?  Hvað mörg ár af þessum 15 höfum við veitt hval?  Ég veitt ekki betur en veiðar hafi verið bannaðar flest af þessum 15 árum.

Jón Á Grétarsson, 18.11.2008 kl. 21:45

2 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

það var nú ástæðan fyrir því að ég setti 15 ár og valdi svo lundapysjuskoðun á móti.

Ég er alls ekki á móti þessu en þegar á hólminn er komið hlýtur þetta að snúa um heldarhagsmunina þegar uppi verður staðið  - mun náttúran sjá um að halda stofnum í skefjum eða þurfum við að setja okkur í gírinn til að grysja stofnana

Gísli Foster Hjartarson, 18.11.2008 kl. 21:53

3 Smámynd: Jón Á Grétarsson

Auðvitað þurfum við að meta heildarhagsmunina, en á meðan mæli ég með uppskriftum af http://www.hrefna.is

Jón Á Grétarsson, 18.11.2008 kl. 22:22

4 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

he he he - nota það næst þegar að hrefnukjöt verður í boði á heimilinu. Höfum verið með það í matarboðum hjá okkur og fólki hefur líkað vel. - takk fyrir ábendinguna

Gísli Foster Hjartarson, 18.11.2008 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband