Lausn handa KR-ingum?

Já þetta hljómar skrýtið en heimalið ber ábyrgð á umgjörð leiksins, og þar með á vissan hátt hegðun áhorfenda!!! - skrýtið en svona er þetta og í raun ekkert athyglisvert við það. Ég er með hugmynd handa KR-ingum vegna þessa leiðinda atviks: Legg til að félagið útiloki stuðningsmenn Keflavíkur frá næsta/u leik/jum liðanna í Frostaskjóli - menn hljóta að geta sett slíkt lið á bann eftir að slíkar uppákomur hafa verið.

Fjárhagslegt tjón fyrir KR-inga? Veit það ekki ef þetta gerist aftur þá fer félagið að fá sektir og jafnvel heimaleikjabann og því legg ég hitt til - ef menn vilja fjárhagslegt tjón þá legg ég til að stuðningsmenn KR einfaldlega sleppi leiknum í Keflavík!!!!! Það held ég að gjaldkeri Keflavíkur myndi tárast ef að það yrði niðurstaðan því fá lið eiga eins öfluga, skemmtilega og fjölmenna stuðningssveit og KR.


mbl.is KR-ingar áminntir vegna flöskukasts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nei Nei, nota sömu meðöl. Koma með flöskur á leikinn og grýta þeim inná.

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 27.6.2009 kl. 09:30

2 identicon

Rafn, það yrði engin lausn, því að aganefndin myndi þá bara setja sektina aftur á KR.

Lýst ágætlega á "boycotts"-hugmynd Fosters, en lýst ekki jafnvel á að meina Keflvíkingum að sækja leikina, það er bara fallið til þess að auka á leiðindi milli félaganna.

KR-ingur (IP-tala skráð) 27.6.2009 kl. 10:09

3 identicon

Sennilega rétt hjá þér, hugmynd Fosters er fín.

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 27.6.2009 kl. 10:16

4 identicon

Þið eruð báðir jafn vitlausir greyin. KR-ingar geta ekki útlokað áhangendur Keflavíkinga eða nokkurra annarra frá sínum leikjum. Þeir hafa einfaldlega ekki leyfi til þess. Auk þess ættu menn að hafa í huga að áhorfendur Keflvíkinga hafa ávallt verið til fyrirmyndar og verið valdir þeir bestu ár eftir ár. Sama má segja um liðið sem hefur verið valið prúðmannlegasta liðið mörg síðustu ár.

Hákon (IP-tala skráð) 27.6.2009 kl. 11:42

5 identicon

Þessar fótboltabullur úr Keflavík eru svo  fyrirmyndar að þeir grýta flöskum í leikmenn inni á velli. Þetta eru nú meiri prúðmennin eða hitt þó heldur.

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 27.6.2009 kl. 12:16

6 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ég styð hugmyndina um boycott... enda aldrei gaman að fara til kef , jafnvel þótt KR vinni.. ;)

Óskar Þorkelsson, 27.6.2009 kl. 13:19

7 identicon

Mér finnst KR mikið lélegri enn þeir voru í gamla daga.Er einhver sammála mér í því þeir unnu síðast árið 2003 fyrir 6.árum síðan

Ulfur Karlsson (IP-tala skráð) 27.6.2009 kl. 14:07

8 identicon

Já Rafn Haraldur Sigurðsson þetta er rétt hjá þér, við Keflvíkingar erum með svo sjúklega smáar hendur að við náðum öll að halda utan um þessa einu flösku sem flaug inn á völlinn..... ofboðslega ertu vel gefinn að fatta þetta!!!

Mér finnst engin ástæða að banna Keflvíkinga í Frostaskjóli né heldur að "boycott-a" leik eða leiki í Keflavík. Drengurinn sem henti flöskunni inn á völlinn hefur opinberlega beðist velvirðingar og harmar gjörðir sínar, Keflvíkingar allsstaðar eru sammála um að þetta má ekki sjást, bæði stjórn og pumasveit hafa fordæmt þessa hegðun. Þó svo að KSÍ áminni KR fyrir litla sem enga gæslu þá vita allir að þó að gæslumenn hafi verið 100 talsins hefði ekki verið hægt að sporna við þessu tiltekna atriði.

Mér finnst bara engin ástæða fyrir KR-inga né Keflvíkinga að vera með leiðindi við hvort annað bara útaf KSÍ og þeirra áminningum!

Pétur (IP-tala skráð) 30.6.2009 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband