18.7.2009 | 17:58
4 mörk í röð....
...úr föstum leikatriðum sem Keflvíkingar fá á sig og voru heppnir að fá ekki á sig fleiri. Markvörður þeirra er sá besti í deildinni, svei mér þá, eða er það slök vörn sem gefur honum þetta look? ..Nei ég er á því að hann sé sá besti, allavega miðað við það sem að ég hef séð í sumar
![]() |
Jafntefli hjá FH og Keflavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Pepsi-deildin | Facebook
Athugasemdir
Hvur djö..er ÍBV-Fram á mánudag...textavarpið sagði í dag...jæja...
Halldór Jóhannsson, 18.7.2009 kl. 18:30
Já já þeir bláu að koma frá frá Tékklndi
Gísli Foster Hjartarson, 18.7.2009 kl. 18:41
Fór á leikinn, algjörlega frábær leikur við frábærar aðstæður. Við (Keflvíkingar) vorum reyndar heppnir að fá ekki nokkur mörk á okkur í fyrri hálfleik en svona er þetta bara. Og Jóhanne Valgeirsson gerir það ekki endasleppt í dómgæslunni, eins og hann er annars góður dómari, þá sleppti hann augljósri vítaspyrnu á FH. Ég held að allir sem sáu leikinn séu mér sammála í því. En við börðumst nógu mikið í þessu til að ná 1 stigi úr þessum leik og getum verið þakklátir fyrir það. Fótboltinn er ekki alltaf sanngjarn.
Gísli Sigurðsson, 18.7.2009 kl. 19:04
Já nafni miðað við spyrnuna sem að Fimleikafélagið fékk þá áttuð þið Suðurnesjamenn klárlega að fá víti -hreint og klárt,gott ef ekki tvær því knötturinn fór líka klárlega í höndina á Söderlund (var örugglega hann) inni í teig - en ég treysti mér ekki til að meta í hvaða aðstöðu dómarinn var í í það skiptið.
Gísli Foster Hjartarson, 18.7.2009 kl. 20:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.