Til hamingju Ísland....

..nú skuldum við mest!!!!

Langar að þakka núverandi stjórnvöldum, en þó sérstaklega þeim sem fóru með ferðina þegar bankarnir voru gefnir til vina þeirra fyrir einstakt góðverk í þágu þjóðar og almannaheillar í landinu.


mbl.is Icesave-frumvarp samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Gísli,

Ég hef aldrei kennt Sjálfstæðisflokknum sjálfum um hvernig fór með hrunið, heldur þeim einstaklingum innan hans sem fannst það góð hugmynd að selja vinum sínum bankana. Hugmyndafræði flokksins aftur á móti, að einkavæða bankakerfið, er eitthvað sem ég hef alltaf stutt þó.

En í dag sagði ég mig úr flokknum.

Í dag gerði allur flokkurinn sig samsekann, því auðvitað hefðium við, stuðningsmennirnir, átt að beita mun meiri pressu á þingmennina en við gerðum... og því fór sem fór.

En það sem er enn athyglisverðara, er að núna eru bæði Samfylkingin og VG samsek líka. Í raun er Samfylkingin mesti sökudólgurinn í þessu máli, fylking sem hefur barið ísland til dauða.

Ég vona svo sannarlega að í framtíðinni þá verði réttað yfir þessu fólki sem landráðsfólk.

Kveðja,

Gulli

Gulli (IP-tala skráð) 28.8.2009 kl. 12:29

2 identicon

Sammála Gulli.

Sorgardagur og gjörsamlega ófyrirgefanlegt að sitja hjá í svona máli.  Óskiljanlegt!  Árni Johnsen á hrós skilið, einnig Birgir Armannsson.

Eg vissi það að þetta yrði samþykkt, bjóst þó við að Sjálfstæðismenn, Borgarahreyfingin og Framsókn myndu setja mikla pressu á forsetann með því að segja NEI.  Breið samstaða er því miður um málið.

Baldur (IP-tala skráð) 28.8.2009 kl. 12:35

3 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Er alveg sammála þé Gulli - ætti kannski að drífa mig í því að segja mig úr flokknum og mikið innilega er ég sammála ykkur að nú eru 4 stærstu flokkarnir orðnir sekir þannig séð.

Gísli Foster Hjartarson, 28.8.2009 kl. 12:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband