Trúi þessu ekki

Fékk fyrirliði Vals tuðarinn Bjarni Ólafur aðeins eins leiks bann fyrir eitthvert fólskulegasta brotið í efstu deild þetta árið - ég á ekki til orð yfir það hvernig menn fá þessa niðurstöðu - þarna var klárlega ásetningur á ferðinni, beint í háls leikmanns - klárlega tveggja leikja bann í mínum huga - en hann nýtur kannski verndar af því að hann er Valsmaður, og allir eru farnir að vorkenna þeim, og hann hefur verið valinn í landsliðið.

Talandi um Valsmenn þá held ég að Valsmenn hljóti að senda Willum Þór skeyti í haust og þakka honum fyrir að hafa haldið liðinu í efstu deild því liðið hefur varla unnið leik eftir að menn boluðu honum út.


mbl.is Tólf úr úrvalsdeild karla í leikbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Góður....við Valsmenn...

Halldór Jóhannsson, 1.9.2009 kl. 22:00

2 identicon

Þetta var nú ekkert fólskubrot, klaufabrot frekar, óheppinn að fá rautt, hefði verðskuldað gult frekar.

Boggi (IP-tala skráð) 1.9.2009 kl. 22:21

3 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Boggi þú segir nokkuð - klár ásetningur, en klaufalegur já,  segi ég og viðbrögð hans sýndu það - tveggja leikja bann hefði ekki verið ósanngjarnt

Gísli Foster Hjartarson, 1.9.2009 kl. 22:48

4 identicon

Hefði verðskuldað gult?!? Þetta var fáránlegt brot og á ekki að sjást í efstu fjórum deildunum hérna!

Peyjinn lék hann bara upp úr skónum en þá á maður að vera þroskaðri en svo að lemja hann fyrir það.

Annars er gott að okkar menn eru ekki í banni gegn Grindavík, sem er að mínu viti mikilvægari en leikurinn við FH.

Bjarni Ben (IP-tala skráð) 1.9.2009 kl. 23:22

5 Smámynd: Grétar Ómarsson

He he. góður Gísli, það er spurning hvort Valsmenn séu farnir að pæla í að ræða við Villum að taka við liðinu aftur, sennilega væri hann ódýrasti kosturinn, því hann var nýbúinn að undirrita þriggja ára samning við félagið þegar þeir spörkuðu honum út.

Einhvernveginn held ég að Villum sé enn á launum hjá félaginu og verði það út samningstímabilið.

Atli er bara að draga þetta lið niður, enda skiptir meira máli hjá honum að vera vel til hafður en að liðinu gangi vel, tók samt eftir því að hann var í ópússuðum lakkskóm í Eyjum, hann verður passa þetta og  muna eftir skóburstanum í næsta útileik, skrítið að enginn skyldi benda honum á þessi hroðalegu mistök.

Grétar Ómarsson, 2.9.2009 kl. 02:06

6 Smámynd: Grétar Ómarsson

Willum átti þetta að vera.......

Grétar Ómarsson, 2.9.2009 kl. 02:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband