Þetta er sérstakt!!!

Sagt er að þetta sé verstu bankamenn í heimi!!!! Hvað meina menn? Er ekki flest þetta fólk að vinna þarna ennþá? Hvaða skilaboð eru það? Verðum við sem sagt í tómu tjóni áfram? Nú heyra menn sö0gur af allskyns afskriftum hér og þar til handa þeim er mestu hafa klúðrað en aðrir eiga ða standa við sitt - hvaða bull er það? Hefði ekki verið nær að moka hraustlega út úr þessari bankaveröld - og reyna að byrja bara frá grunni - ef þetta er raunin?


mbl.is Verstu bankamenn heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Ég bara skil þetta ekki,er þetta ekki Mafía?

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 25.10.2009 kl. 13:32

2 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Jú, það er rétt.  Það eru ennþá þessir verstu bankamenn í heimi sem  eru að stjórna bönkunum og það má búast við að spilling og vanhæfni komi til með að einkenna þeirra störf hér eftir sem hingað til.

Guðmundur Pétursson, 25.10.2009 kl. 18:33

3 Smámynd: Lúðvík Lúðvíksson

Tók þetta án leyfis frá Cillu Ragnarsdóttur , er þetta ekki að segja okkur allt og getur verið að þetta séu síðustu púslin í hrun spilinu að vera með hrunstjórana alstaðar?

 Cilla Ragnarsdóttir: Samspilling hvað?

Athugið hverja ríkisstjórnin hefur valið sér til fulltingis:

Ingvi Örn Kristinsson er aðstoðarmaður Félagsmálaráðherra Árna Páls Árnasonar, en hann var framkvæmdastjóri Verðbréfasviðs Landsbankans. Einnig starfar hann sem ráðgjafi Forsætisráðherra.

Benedikt Stefánsson var í Greiningardeild Landsbankans og er núna aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar Efnahags- og Viðskiptaráðherra.

Björn Rúnar er skrifstofustjóri í Viðskiptaráðuneytinu. Hann var forstöðumaður í Greiningardeild Landsbankans

Edda Rós er núna fulltrúi Íslands í AGS í gegnum Samfylkinguna. Hún var forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans

Arnar Guðmundsson var í Greiningardeild Landsbankans. Hann er núna aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur Iðnaðarráðherra.

Með svo marga bankamenn í farteskinu, og einnig hafandi í huga að fyrir kosningar kom í ljós að Samfó var sá flokkur sem hafði fengið næstmest í gjafafé frá bönkunum og eigendum þeirra; er ekki þá einfaldlega ljóst hverra hagsmuna stjórnendur Samfó, eru að leitast til með að vera?

Áhugavert einnig, að allir þessir aðstoðarmenn, eru fyrrum starfsmenn Björgólfsfeðga.

Gæti þetta hafa eitthvað með málið að gera?:

Meðfylgjandi er yfirlit styrkja til Samfylkingarinnar frá lögaðilum árið 2006 sem voru hærri en 500 þúsund

* Actavis hf. 3.000.000
* Baugur Group hf. 3.000.000
* Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga 1.000.000
* Eimskipafélag Íslands 1.000.000
* Exista ehf. 3.000.000
* Eykt ehf. 1.000.000
* FL-Group hf. 3.000.000
* Glitnir 3.500.000
* Kaupþing 5.000.000
* Ker hf. 3.000.000
* Landsbanki Íslands 4.000.000
* Milestone 1.500.000
* Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis 1.000.000
* Straumur Burðarás fjárfestingabanki 1.500.000
* Teymi ehf. 1.500.000
* Samtals yfir 500.000 36.000.000

Neyðarstjórn óskast strax -!
  
Ég orðlaus yfir hræsninni sem Ríkisstjórn Ísland sýnir þjóð sinni !

Lúðvík Lúðvíksson, 25.10.2009 kl. 22:06

4 Smámynd: corvus corax

Það var nú ekki við öðru að búast en að samfylkingin styddi af alefli við glæpahyskið og héldi því að kjötkötlunum. Þannig að strangt tekið hefur Jóhanna ekki brugðist þar sem búast mátti við að hún viðhéldi spillingunni eftir getu. Hins vegar hefur Steingrímur J. brugðist gjörsamlega þeim gildum sem hann gaf sig út fyrir að virða fyrir kosningar. Það er hann sem verndar glæpahyskið sem fjármálaráðherra og virðist ekki ætla að taka á glæpaliðinu og fleygja því út.

corvus corax, 26.10.2009 kl. 09:13

5 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Veit ekki hvað ykkur finnst en mér finnst umfjöllunin um nákvæmlega þessar tengingar ekki vera sterk afhverju er fjölmiðlar ekki búnir að lista þetta almennielga upp og hjóla í þetta af krafti, nöfnin þarna eru bara toppurinn á ísjakanum hvernig haldið þið að tengingarnar séu þarna hægri vinstri - þetta snýst ekki um pólitík (frá bæjardyrum almennings) heldur um að þarna sé heiðarlegt fólk sem stýrir bönkunum. - pólitíkin er til vansa þarna eins og víðar. 

Gísli Foster Hjartarson, 27.10.2009 kl. 12:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband