30.7.2014 | 06:19
Hvar er vasaklútur Gauta Þormars?
Afar sérstakur fréttaflutningur. Hélt að mbl.is væri yfir svona dapra fréttamennsku hafinn en svo virðist ekki vera. Þetta eru ekki svo háar tölur per haus þegar uppi er staðið. Hafa menn prófað að taka hótelherbergi í Reykjavík, ja eða annarss staðar, í 3 jafnvel 4 nætur? Hvað kostar það? Oft er þarna um að ræða hús með öllu innbúi fólks og aðgengi að öllum þeim þægindum sem fólk vill hafa í kringum sig. Ísskápar, grill, uppábúin rúm, salernis- og sturtuaðstaða, þægileg rúm og ég veit ekki hvað. Horfið á heildarmyndina.
Veit um hópa sem greiða allt frá 5750 per haus per nótt og upp í nokkuð meira og þarna er miðað við 3-4 nætur. Er ansi hræddur um að svona ódýr gisting finnist ekki í Reykjavík, ja nema í Laugardalnum og þá að þú takir með þér þitt eigið tjald.
Fínt að taka hausinn úr sandinum áður en menn fara að fabúlera um svona hluti. Kannski að pilturinn og félagar tjaldi bara þessa helgina.
En hvað sem öðru líður þó óska ég fólki góðrar skemmtunar um þessa helgi, sem og aðrar, og að allir komist heilu og höldnu í gegnum þessa daga. Alveg sama hvað þið takið ykkur fyrir hendur gott fólk þá segi ég: góða skemmtun
![]() |
Hundruð þúsunda fyrir íbúð í Eyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.7.2014 | 09:56
Hjálp, hjálp hvar er framsókn
Hvað er eiginlega í gangi? Er búið að láta þingmenn og stuðningsmenn framsóknar vita? Þetta er náttúrulega ekki hægt. Skondið að þarna er líka sagt að kjötið standist þeirra kröfur - ok - eru það einhverjar eðalkröfur? Þetta eru jú pylsur sem við erum að tala um. Ekki eins og það sé einhver hágæða vara.
Ég er nú þeirrar skoðunar að menn eigi nú að fara að skoða þetta aðeins með innflutninginn og heimila hann í auknum mæli og hætta þessu ýkta verndarsjónarmiði sem er í gangi hér á landi.
![]() |
Danskt kjöt í SS-pylsum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.7.2014 | 20:35
...við berjum hann bara!!!
...er alveg hættur að skilja þetta. Þarna kemur Stjáni inn á það að leikmenn Þórs sé grófir og gangi fram í leikjum sínum með óíþróttamannslegum hætti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég heyri þetta í sumar og ég heyrði af því ávinning um daginn að menn hefðu gengið ansi hart fram gegn KR-ingum um daginn en verið verndaðir á einhvern hátt af dómurum leiksins. Var það sama upp á teninginum í gær? Spyr sá sem ekki veit. Ég veit ekki með ykkur en ég hélt að í efstu deild karla, Pepsi-deildinni, væri það fimi með knöttinn sem réði ríkjum en ekki einhver bolabrögð þegar boltinn er jafnvel víðs fjarri - Hlakka til sjá Þórsarana koma til Eyja seinna í sumar, þ.e.a.s. ef að það má kalla þessa veðurhörmung sumar.
Áfram ÍBV alltaf allsstaðar
![]() |
Skulum ekki telja upp alla sem voru lamdir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.7.2014 | 08:49
...sjúkur heimur
Hversu sjúkt er þetta orðið allt saman? Er einhver þarna úti sem getur skýrt þetta út fyrir mér? Hélt að þarna væri allt morandi í trúuðu fólki sem vissi að svona hörmungar leystu engan vanda en svo virðist ekki vera. EInhvern veginn tekst fólki alltaf að réttlæta fyrir sjálfum sér einhvern viðbjóð gegn náunganum ef því svo þóknast. Allt common sense fer út um gluggann og eftir stendur berskjaldað hatur í garð næsta manns og réttlætingin felst í því að sjá flísina í auga náungans en ekki bjálkan í eigin auga. - sorglegur á alla kanta þessi viðbjóður.
...að mæta svo til að sitja í stúku til að sjá viðbjóðinn er nú með því fáránlegra sem ég hef heyrt lengi.
![]() |
Fylgjast með árásunum af Sderot-hæð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)