.....þá byrjar það

Þetta eru fréttirnar sem að manni leiðast - stríðsfréttir. Dauðsföll, óbreyttir borgarar, skotið á eigin liðsmenn, pyntingar, nauðganir og þar fram eftir götunum. Allt það versta í mannskepnunni brýst of t út í svona átökum og svo koma upp á svona áföll eins og þarna er rætt um og þá veit enginn neitt og allir fría sig ábyrgð - og því engin ástæða til að biðjast afsökunnar!!!!. NATO er þarna sem eftirlits aðili og stuðningur við uppreisnarmenn, er berjast fyrir því sem þeir kalla aukið lýðræði. Það er dýrt að berjast fyrir lýðræði og frelsi - sem svo aftur menn hafa ýmsar skoðanir á!  Við munum öll eftir myndbandinu sem Wikileaks láku á netið á sínum tima - hreint og klárt dæmi um þann viðbjóð er viðgengst í þessum bardögum - og oft á alla kanta - Vona að svona fréttir verði ekki margar í viðbót af þessumátökum.


mbl.is Biðjast ekki afsökunar á árás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herra Seðlabanki

Skondið hvernig manni fannst einhvern veginn Jóhannes Nordal einhvern veginn bara vera Seðlabankinn þegar maður var yngri. Það var einhver svona tign yfir nafninu á honum og maður bar virðingu fyrir því, og Seðlabankinn var eitthvað sem að maður leit á sem svona traust og óhagganlegt. Leiðinlegt hvað orðsporið hefur skaðast í hugum manns.  En þetta er vel til fundið að stofna menningarsjóð til heiðurs þessum manni.
mbl.is Stofna menningarsjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasveinarnir!!

Hefur einhver heyrt eitthvað af jólasveinunum nýlega? Já eða foreldrum þeirra? Ég velti því fyrir mér hvort að sé liðið sem myndi koma okkur upp úr þessum öldudal og yfir í eitthvað skárra, en sennilega er það bara fjarlægur draumur því mér er sagt að samkvæmt áreiðanlegum heimildum þá séu sögurnar af Leppalúða, Grýlu og jólasveinunum bara þjóðsögur og ekkert hæft í því að þau búi til fjalla!!!!
mbl.is Ár hinna glötuðu tækifæra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskir dómstólar

Ég velti fyrir að í allri þessari Icesave umræðu er alltaf látið líta út eins og enginn þori að sækja mál sem reka á fyrir íslenskum dómstólum! Eru hér einhver sérlög sem menn dæma eftir? Eða er verið að segja að dómskerfið okkar sé okkur hliðhollt og víki kannski af leið til að tryggja okkur sigur?

 Langaði bara að velta þessu upp svona því að meira að segja formaður lögmannafélagsins talar með þessum tón.


mbl.is Icesave verði að gíróseðlum á mánudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins sigur!

Efti rnokkur töp í röð þá kom að því sigur og það á útivelli gegn skógarúlfunum. Aðalliðið spilaði lítið sem ekkert þannig séð en samt hafðist þetta. Nash orðinn stoðsendingahæstur af öllum í NBA með 11.4 stoðsendingar að meðaltali í leik en Rondo hjá Boston er með 11.3. Nash gæti þó misst sæti sitt á toppnum því það er búið ða minnka við leiktímann hjá honum. Aron Brooks tók hlutverk hans hálfan leikinn í nótt og spilaði vel 19 stig og 6 stosðendingar. Pólska sleggjan - Marcim Gortat - tók 16 fráköst og skoraði 20 stig. Grant Hill með 19 stig á 19 mínútum og Hakim Warrick með 17 stig af bekknum. New Orleans og Dallas á útivelli næstu tveir leikir og svo skógarúlfarnir og San Antonio á heimavelli og sumarfrí.
mbl.is Þriðja tap Lakers í röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eðlilegt?

Auðvitað er það svo að margir eru svekktir yfir þessum  hremmingum sem herjað hafa á Landeyjahöfn og siglingar þaðan. Ég er reyndar einn af þeim sem ferðast sjaldan og hef því ekki gefið mér mikinn tíma í að svekkja mig á þessu, ja allavega ekki fram úr hófi! En mikið skil ég vel það fólk sem mikið er á ferðinni milli lands og Eyja að það skuli svekkja sig á þessu. Þetta hefur ekki gengið eins og við vonuðumst til - það vita allir. En auðvitað eiga að gilda strangar reglur um farþegaflutninga, hvort heldur er á svona hafsvæði eða annars staðar, en það táknar samt ekki að það eigi að vera eitthvert einkaleyfi endilega á þessum siglingum. Menn eiga bara að taka saman hvaða skilyrði þarf að uppfylla og svo geta menn reynt að keppast við að uppfylla þau. Alveg er ég viss um að t.d. Víking Tours og Ribsafari myndu skoða það vel hvort þau sæju sér fært að uppfylla þau skilyrði. Öryggi er lykilatriði held að við séum öll sammála um það.
mbl.is Herjólfur og Sæfari mega sigla til Landeyja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afar sérstakt!

Það verð ég að segja að mér finnst þetta afar sérstakt. Geta atvinnurekendur og aðrir forkólfar ekki unnt fólki því að taka sjálfstæða ákvörðun? Já eða nei - þetta verður hver og einn að finna hjá sjálfum sér, menn geta ekki þvingað svona fram. SA hafi verið að heimta hitt og þetta í kvótamálunum fyrir sína menn og svo þetta núna hvað verður næst? Jújú eflaust eru þessar kosningar mikilvægar, SA telur afar mikilvægt ef að þau eiga að ná spyrnu af botninum og í átt að betra lífi fyrir "alla" að þetta verði samþykkt, og sumir forkólfarnir taka sama pól í hæðina. En það á ekki að þvinga fólk til að taka svona ákvarðanir það getur sprungið í andlitið á manni svo mikið er víst.

Verkalýðsforkólfar, margir hverjir,  og atvinnurekendur mega ekki gleyma að það er ekki eins og þeir séu í fyrsta sæti hjá fólkinu í landinu, ekki frekar en pólitíkusarnir.


mbl.is Gengur gegn lýðræðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En eitt tapið

Já þetta ætlar að enda verr en mann grunaði þetta tímabil svo mikið er víst. Hlutfallið komið í 37-40. Í nótt voru menn komnir 22 stigum undir en náðu að vinna sig aftur inn í leikinn og á síðustu 2 mínútunum var munurinn í fjórgang 2 stig og við með boltann en menn klúðruðu - ekki gott. Nash með 16 stoðsendingar, Vince Carter með 23 stig, hitti úr 9 af 22 skotum - hefði mátt gera betur. 5 leikmenn með 10 stig eða meira. Framundan eru þrír útileikir í viðbót gegn Minnesota, New Orleans og Dallas.
mbl.is Langþráður sigur Utah Jazz í LA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjum mæta Madrid og Schalke?

á er bara að velta sér upp úr því hverjum þessi lið mæta í undanúrslitum. Ég ætla að leyfa mér að segja að Madríd mæti Barca og Schalke mæti United. Árangur Schalke frábær í keppninni og ég er ekki einu sinni viss um að þó að þeir reyndu þá tækist þeim ekki að koma Inter áfram!!!!
mbl.is Real Madrid og Schalke í góðum málum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íþróttapólitík!!!

Það er greinilegt að þarna gengur eitthvað mikið á. Þó svo að Hreiðar Örn hafi sagt af sér þá held ég að það hljóti að vera að það þurfi að taka á einhverjum málum þarna. Einhverjar hljóta ástæðurnar að vera og ekki verða átök innan félags af ástæðu lausu. Vona að menn nái að leysa úr því sem leysa þarf - ekki er hægt að láta íþróttafélag hanga í lausu lofti. Félagið hlýtur alltaf að vera stærra en nokkrar persónur.

Vona að það ágæta fólk sem vill fyrir félagið starfa leysi þessi mál sín á milli og félagið hljóti ekki frekari skaða.


mbl.is Nýkjörinn formaður sagði af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætlar Hlynur.....

....að skipta á íslenska titlinum og taka þann sænska í staðinn. Það yrði nú ekki amalegt. Það verður forvitnilegt að sjá hvað drekarnir frá Sundsvall gera. Skyldu þeir ná í úrslitaeinvígið, sé ekki af hverju það ætti ekki að gerast. Áfram Sundsvall Dragons
mbl.is Hlynur og Jakob í undanúrslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt - spenna alla leið

Er hægt að biðja um eitthvað meira? Það eru akkúrat svona einvígi sem gera þetta svo skemmtilegt. Ekki treysti ég mér til að spá hvort liðið hefur þetta þó svo sannarlega eigi líkurnar að vera með Frostaskjólspiltum þar sem þeir verða á heimavelli, það á að veita þeim meðbyr. EN það tryggir ekki neitt.  Svo er spurning hvort að svona einvígi hjálpar Stjörnumönnum eða ekki því það getur orðið spennufall í svona hléi - vona bara að þeir Stjörnupiltar séu ekki orðnir saddir og verði alveg dýrvitlausir í úrslitarimmunni. hef nefnilega þá trú að þeir geti skákað bæði KR og Keflavík ef út í það er farið. Vonandi verður það bara líka spenna alla leið.


mbl.is Aftur vann Keflavík eftir framlengingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kæri Guðmundur Óskar

Þetta er þín keppni drengur!!! Er viss um að þú verðir okkur skerskeggjum til sóma og takir verðlaunasæti. Hlakka til að heyra þig takast á við þetta frábæra lag og það með íslenskum texta eins og vera ber í þessari keppni. Go for it!!!!

 


mbl.is FÍV: Rok í Eyjum í 90% tilvika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband