Gagnkvæm virðing

Það er á hreinu eins og sir Alex segir menn geta ekki vanmetið lið eins og Wigan það hafa þeir sýnt í gegnum tíðina. Það er nú samt ekki eins og leikmenn United þurfi að mæta mjör varkárir til leiks. Lið þeirra er mun sterkara en lið Wigan og það þarf að verða einhvermeiriháttar sofandaháttur í leik United til að þeir tapi stigi í leiknum. 3-0 fyrir United segi ég . Samt gaman að sjá að þjálfarar liðana bera virðingu hvor fyrir öðrum, ekki alltaf sem að sir Alex eyðir orðum í að hrósa þjálfara andstæðingsins.
mbl.is Ferguson: Tökum Wigan mjög alvarlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli kjósendur sem.....

....mæta og kjósa til stjórnlagaþings muni fái svona nautn af því að kjósa? Ætli það geti virkilega gerst að maður veiti einhverjum þessa nautn með því að leyfa aðilanum kjósa mig?   ........ne ætli það.


mbl.is Sósíalísk fullnæging reitir stjórnmálamenn til reiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að byrja á öfugum enda

Sá möguleiki er fyrir hendi hjá komandi stjónlagaþingi að senda niðurstöðu þingsins, sem væntanlega verður fullmótuð ný stjórnarskrá, til afgreiðslu hjá þjóðinni. Þetta finnst mér mikilvægt, Mér finnst að stjórnlagaþing eigi hiklaust að leita til þjóðarinnar með þá stjórnarskrá er þar verður samin. Ég tel að það sé mikilvægt að þingið fái klapp á bakið frá þjóðinni um þá vinnu er þar hefur verið unnin. Samþykki þjóðarinnar ættu að vera sterk skilaboð til Alþingis um að þarna telji þjóðin að komið sé plagg sem hún vill nota. Alþingi ætti því ekki að missa sig í því að bylta innihaldi skjalsins.

Við skulum ekki gleyma að á undan stjórnlagaþinginu hefur starfað 1000 manna þjóðfundur, núna í byrjun nóvember, og hann mun leggja ákveðin skilaboð í á borð stjórnlagaþings. Þar verða komnar ákveðnar grunnhugmyndir fyrir stjórnlagaþing að vinna í og fara yfir.

Hvort sem ég næ kjöri eða ekki þá finnst mér mikilvægt að þjóðin fái að segja hug sinn um starf það er liggur fyrir að afloknum þjóðfundi og stjórnlagaþingi, og það áður en plaggið fer fyrir Alþingi.


Valsmenn komnir með innkaupadeild?

Það er aldeilis að menn ætla að gera atlögu að titlinum næsta sumar að Hlíðarenda. Maður þarf nú að fara að hitta á, eða heyra í , félaga Kristjáni Guðmundssyni og heyra hvað hann er að spá í að gera þarna. Hef fulla trú á Stjána sem þjálfara en kannski frekar spurning um hvaða trú hann hefur á mannskapnum sem er þarna fyrir. Maður á kannski ekki að vera hissa þó einhverjar séu breytingarnar því liðinu hefur ekki gengið vel síðastliðin 2 tímabil þrátt fyrir að vera með ágætis mannskap, kannski a menn nái að kippa því í liðinn sumarið 2011. Vona það fyrir hönd stuðningsmanna Vals.
mbl.is Þriðji Færeyingurinn til Vals
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur staðið sig afburða vel.

Reglulega hef ég kíkt á bloggið hjá Marinó G. Njálssyni og krækt mér í fróðleik um hitt og þetta. Fáir hafa verið eins ötulir við að koma hinum og þessum ábendingum á framfæri varðandi skulda vandræði heimilanna og hugmyndir að lausnum. Oftast hefur þetta verið sett fram á mannamáli þannig að maður hefur ekki klórað sér mikið í hausnum á eftir. Get ekki sagt að ég hafi álitið Marinó skuldlausan mann frekar en okkur hin og því tekið mark á honum á þann hátt sem ég hef viljað hverju sinni. Rétt eins og maður gerir með öll önnur blogg. En get ímyndað mér að það verði högg fyrir samtökin að missa hann úr stjórn, en hef svo sem trú á að hann leggi nú samt ekki árar í bát varðandi baráttumál sín. reikna áfram með góðum pistlum frá honum.
mbl.is Segir sig úr stjórn vegna umfjöllunar Fréttatímans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið besta mál

Þessu hljóta menn nú að kætast yfir, allavega hér Í Eyjum. Nú sér maður fram á að það verði líf og fjör á bryggjunum eftir áramót þegar loðnuveiðarnar komast á flug. .......ekki verður fjörið síðra í landi þegar frysting, hrognataka  og bræðsla verður í fullum gír. Vertíðarhugur sem læðist að manni við svona fréttir.   Já og svo tekur Jón Bjarnason ofan höfuðfatið og bætir við kvótann í lok janúar!!!!
mbl.is Loðnukvóti verði 200 þúsund tonn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1. maí er góður dagur

Það er ég smeykur um að ekki væri verra að byrja mótið þann 1. maí á næsta ári. Sérstaklega ef að ÍBV á heimaleik í fyrstu umferð. Þá getur maður jafnvel fagnað sigri hjá sínum mönnum á afmælisdaginn sinn það yrði ekki leiðinlegt. Treysti því að Birkir Sveinsson standi sig í vinnunni!!!
mbl.is Keppni hefst jafnvel 1. maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ekki lengi nr.......

...110 á heimslistanum ef þetta heldur svona áfram. Hvenær unnum við síðast eiginlega leik? Jú við unnum Færeyjar í mars of Andorra 29. maí. 2 leikir unnir á árinu og 3 jafntefli og 1 tap í æfingaleikjum. Þrír leikir í riðlakeppni EM hafa allir tapast. Markatalan 11-10 okkur í hag!
mbl.is Tap í Tel Aviv þrátt fyrir góðan lokakafla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er rétt

Gott að menn sjá eitthvað jákvætt við stöðuna á landsliðinu þar sem það húkir í sæti eitthundrað og tíu o gvirðist láta fara vel um sig. Mikið væri nú gaman að fara að sjá liðið komast upp fyrir 3ja stafa töluna. Alveg hörmung að hanga svona neðarlega á þessum blessaða lista.  Kannski að leikurinn í kvöld bæti stöðu okkar, verðum við ekki að vona það?
mbl.is Ísland upp um eitt sæti í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frambjóðandi 3612

Gísli Hjartarson  #3612

 Giftur Ingibjörgu Heiðdal Friðriksdóttur

Börn: Vigdís Hind og fóstursonurinn Víðir Heiðdal Nenonen

 Ég er fæddur 1. maí 1967 í Vestmannaeyjum þar sem ég hef alið manninn að mestu síðan. Vann reyndar við þjónustu í höfnunum í Grimsby, Bremerhaven og Cuxhaven 1986-1987 og hafði mjög gaman af. Hér heima hef ég unnið ýmis störf. Var lengi í frystihúsunum hér byrjaði 1980 í Hraðfrystistöðinni, svo í Fiskiðjunni og svo síðast hjá VSV. Hætti síðan þar og tók við starfi framkvæmdastjóra í litlu prentfyrirtæki, prentsmiðjunni Eyrúnu, þar sem ég hef verið í forsvari í um það bil 15 ár. Er á öðru ári sem formaður foreldrafélags Grunnskóla Vestmannaeyja en hef verið í stjórn í 5 ár. Auk þessa hef ég starfað nokkuð fyrir ÍBV. Var t.d. í stjórn knattspyrnudeildar í 5 ár og þrátt fyrir að hafa hætt fyrir 4 árum þá reynir maður að hjálpa til ef eftir því er leitað. Gef út Sjónvarpsvísi hér í Eyjum og hef ritstýrt Þjóðátíðarblaði Vm í 3 af síðustu 4 skiptum.

Hef lengi verið samfélagslega þenkjandi og hef verið nokkuð virkur þátttakandi í umræðunni síðustu ár í gegnum bloggið mitt, fosterinn.blog.is, þaðan sem einhverjir gætu kannast við mig.  Ég hef verið ófeiminn við að láta skoðanir mínar í ljós. Það getur verið erfitt í svona litlu samfélagi, eins og þú þekkir eflaust, en ég hef reynt að temja mér að gera það á málefnalegan hátt en ekki með því að ráðast á persónur, í tuðrusparkinu myndi það heita að fara í boltann en ekki manninn, að vilja alltaf sparka í manninn er samfélagslegt mein. Ég tel mig líka hafa þann kost að efast stundum um eigið ágæti og er því til að hlusta eftir því sem aðrir hafa fram að færa og hlusta eftir þeirra pælingum.

Ég býð mig fram til stjórnlaga þings í þeirri von um að fá að taka þátt í því sem að ég held að hljóti að vera markmiðið og það er að móta stjórnarskrá sem staldri ekki bara við í nútímanum heldur fylgi þjóðinni inn í framtíðina. Það er í mínum huga lykilatriði að sem breiðastur hópur komi að endurskoðun stjórnarskrárinnar því þannig að endurspeglast þjóðarviljinn.

Ég býð fram krafta mína til að taka þátt í þessu verkefni sé áhugi fyrir því. Ég tel að það sé kominn tími á endurskoðun á stjórnarskránni, en ekki það að það þurfi að kollsteypa öllu sem í henni stendur. Mínar hugmyndir varðandi stjórnarskrá snúa t.d. að því að...

...almenn mannréttindi verði í fyrirrúmi.

...þríksipting valdsins, hlutverk og ábyrgð æðstu stjórnenda ríkisins séu hrein og klár

...náttúru auðlindir landsmanna verði í eigu þjóðarinnar.

...heimildir Íslands til þátttöku í alþjóðlegu samstarfi séu skilgreindar.

...boðið verði upp á personukjör.

...beinna lýðræði verði komið á, t.d. með kosningum um ákveðin mál.


Þó mikilvægt sé að skýra stjórnarskránna gerist fátt nema að við breytum hugarfari okkar. Við þurfum að temja okkur meiri sjáflsgagnrýni, aga og virðingu fyrir reglum og umfram allt fyrir hvort öðru. Við erum öll á sama báti og ef allir leggjast á árarnar verður útkoman góð fyrir Ísland.

Nái ég kjöri mun ég mæta til leiks af opnum hug og vinna af heilindum og einset mér um leið að standa undir því trausti sem mér væri sýnt.

Það yrði mér mikill heiður ef þú settir mig í eitt af efstu sætunum hjá þér.

Bestu kveðjur

Gilli Hjartar - 3612

 

Nánari upplýsingar á bloggi og Facebook


Ánægður

Get ekki annað en glaðst yfir því að sjá hver er fyrirliði liðsins. Gott að sjá að karlinn er kominn á fullt skrið. Í raun synd að hann hafi dottið svona úr því hundraðasti landsleikurinn er ekki langt undan hjá kappanum. Annars hefur hópurinn sem að átti að leggja af stað í þennan leik breyst óhóflega mikið en ég vona að það komi ekki að sök. Þetta er svo sem bara æfingaleikur, en  gegn Ísraelsku liði sem að hefur spilað vel upp á síðkastið og því verður þetta alls ekki auðvelt.

Þó svo að ég sé ekki hlynntur því að draga saman undir eina sæng íþróttir og pólitík þá er það þó alveg umræðunnar virði sú ábending sem samtökin Ísland-Palestína nefndu um daginn vegna mannréttindabrota á svæðinu.


mbl.is Byrjunarlið Íslands gegn Ísrael
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki dauður úr.....

Ja þetta eru svo sannarlega tíðindi. Er ekki í nokkrum vafa um að það er nokkur fengur í þessum klára knattspyrnumanni. Reyndar er aldurinn farinn að segja til sín, þó ekki hafi borið mikið á því í sumar. En þó að hann verði ekki með eins ferska fætur kannski næsta sumar þá er reynsla hans dýrmæt og mun hún án nokkurs vafa reynast þeim Safamýrarpiltum drjúg. Auk þess sem ég er viss um að hann mun miðla til sér yngri drengja og kenna þeim einhver trix sem hann hefur lært á löngum ferli.
mbl.is Arnar Gunnlaugsson til Fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið væri nú gaman.....

...ef að lið Akureyrar myndi landa eins og einni dollu í handboltanum í vetur. Kraftmikið lið sem á alveg að geta staðið í slíkum stórræðum í vetur. En þetta er náttúrulega bar undir þeim sjálfum komið. Trúi ekki öðru en að metnaðurinn sé til staðar hjá liðinu, hef allavega engar efasemdir um metnað þjálfarans.
mbl.is Akureyri af öryggi í 8-liða úrslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.