Takk fyrir góða þjónustu

Þeir stóðu sig aldeilis sérdeilis vel þessar elskur á Baldri. Heyri ekki betur en hér séu allir himinlifandi með þá þjónustu og þjónustulund sem áhöfnin sýndi á meðan Baldri var í ferðum á milli lands og Eyja.

Takk fyrir okkur.

Langar líka að nota tækifærið og þakka þeim áhafnarmeðlimum sem komu hingað í prentsmiðjuna færandi hendi og færðu prentsmiðjustjóranum gjafir í nafni Snæfells körfuknattleiksdeildar. Minn er en í skýjunum og verð örugglega eitthvað áfram. Vonandi verður flugið á okkar mönnum þokkalegt. -  .........Koma svo


mbl.is Baldur siglir aftur um Breiðafjörð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvinahendur!!!!

Sérstakt í svona baráttu þar sem hver höndin er upp á móti annarri að samt tala menn um óvinahendur!!! Þetta er orðinn einn hrærigrautur og flestir virðast ekkert vita hvort þeir eru að koma eða fara.
mbl.is Gætu fallið í óvinahendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hörmung

Þetta var ljóta hörmungin þessi leikur í dag. Menn úti á túni algjörlega. Svo mætti halda að TG hafi verið að spila sinn síðasta leik ever. Ætlar hann ekki að klára samninginn? Maðurinn búin að brenna af 4 eða 5 vítum frá því hann kom í fyrra löngu búið að taka af honum vítaspyrnunafnbótina og svo er hann allt í einu skyttan í dag!!! Átti að slá metið? Var metið mikilvægara en stigin 3? Skoraði ekki Aron úr víti um daginn? Mátti hann þá ekki halda bara áfram að taka? Hann hefði reyndar ekki geta tekið seinni vítið enda þá farinn af velli. Fannst þetta mjög spes.

Annars vorum við slakir í dag. Hornin t.d. í fyrri hálfleik hrein arfi. Svo kom þeir gulu í seinni Scotty með nettan bolta og Ólafur Örn mætir - 0-1. Eftir það þurfti maður ekki einu sinni að spá í hvert stigin færu. Eigum bara að þakka Guði, já eða Blikum fyrir að missa bara ekki Evrópusætið úr höndunum.

En maður er samt sáttur við að við náðum Evrópusætinu - það fannst mér raunhæft. Maður verður bara svekktur þegar maður horfir upp á slaka eins og í dag og einhvern veginn svona skort á einbeitningu.

Jæja en þetta tímabil er búið - þá er að spá í framhaldið. Heimir hættur. Fer TG? Hvað verður um Jeffsy? Garner? Tonny? Abel? Albert? Er Heimir að taka við Blikum? Já eða fara til KR? - Já það er líflegt framundan.

Eitt er þó víst, það er að jólin koma í desember - því hér er enginn Castró. Jú annað er líka klárt í mínum huga Áfram ÍBV alltaf alls staðar


mbl.is Grindavík áfram í efstu deild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður Íslandsmótsins

Garðar Jóhannsson væri vel að titlinum kominn. Er samt ekki viss um að hann hljóti hann.
mbl.is Garðar markakóngur deildarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumkunarverð þjóð!!!!

Skrýtið Ísland.

Fátækir Íslendingar grýta eggjum í þingheim.Milljónaerfingi kastar sér í fang almúgans. Vafningskonungar og kúlulánsdrottningar hvetja til mótmæla.Sundurspillt fréttakona flytur fréttir kokkaða á sinn hátt. Forsetinn boðar meiri völd sér til handa. Fyrrum hrunverjar komnir á háar stöður aftur á kostnað almúgans. Fyrrum glæpamenn sitja enn á þingi.

Þetta er grátbrosleg þjóð sem er haldin kvalalosta.

höf. R.B.


mbl.is ,,Eggið hæfði mig á vondan stað"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjaftæði

Ég er þess alveg fullviss að það voru fleiri en 5 sem óku ölvaðir í nótt - En 5 náðust þó sem betur fer, já og þetta er aðeins á höfuðborgarsvæðinu.

Frétt af mbl.is

Fimm óku ölvaðir
Innlent | mbl.is | 1.10.2011 | 8:15
Mynd 515960Fimm voru teknir fyrir ölvun við akstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þeirra á meðal voru tvær konur og ók önnur þeirra utan í bifreið í Miðhúsum í Grafarvogi.


mbl.is Fimm óku ölvaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar baulaði beljan!!!

Vona að fólk taki þetta ekki sem niðrandi ummæli um mjólkurkýr landsins. EN það er eins og Bjarni haldi að fólk ætli að mæta þarna bara til að mótmæla ríkisstjórninni. Fattar hann ekki að það er líka verið að mótmæla honum og hans félögum? Það er verið að mótmæla aumingjaskap og aðgerðarleysi síðustu ára og þar er hann ekki undanþeginn frekar en aðrir stjórnmála og embættismenn er tengjast Alþingi og ráðuneytunum.  Jújú auðvitað fær núverandi ríkisstjórn þarna góðan rassskell. En við vitum að vandinn er ekki bara vandi síðustu mánaða heldur ára.

Lifi byltingin!!!


mbl.is Hvetur til friðsamlegra mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...alveg eins og heima!

Er þetta ekki bara en ein staðfestingin á því að við eigum hvergi annarsstaðar heima en í ESB? Yrðum sennilega lang lang lang stærstur þjófahópurinn, ja allavega miðað við höfðatölu!!!!
mbl.is Miklu stolið úr sjóðum ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá eru þeir næstir......

....Ian David Jeffs og Matt Nicholas Paul Garner. Það verður  fljótt og svo sjáum við hverju verður púslað í framhaldi af því.
mbl.is Christiansen samdi við ÍBV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli hann....

....verði í liðinu blessaður? Ekkert sjálfgefið í því.  Mikilvægur leikur fyrir bæði lið á morgun. Grindvíkingar komnir til Eyja og klárir í slaginn Þeir mega ekki tapa. Mega helst ekki gera jafntefli. Verða að vinna. Eyjapeyjum dugar jafntefli til að landa Evrópusæti. Það sama gerist með sigri. Það sama gæti líka gerst með tapi, en það fer eftir því hvernig leikur Breiðabliks og Stjörnunnar fer.

Hann verður spennandi morgundagurinn


mbl.is Tryggvi lætur sporin 18 ekki stöðva sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert lið á séns í......

....ÍBV á þessari leiktíð og hananú - Áfram ÍBV - er samt ánægður að heyra að það sé uppgangur í Kópavoginum.
mbl.is Uppgangur í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkel í þungunarprófi

Get ekki að því gert las þetta á hraði og fékk þetta þá úti: Merkel í þungunarprófi!!!!
mbl.is Merkel í þungu styrkleikaprófi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þarf ekkert að pakka í vörn!

Held að elskurnar að norðan þurfi ekkert að pakka í vörn. Held að þær verði bara í vörn! Potsdam liðið einfaldlega það gott.  Vona samt að þeim gangi rosalega vel, þær eru nefnilega vel að því komnar að vera fulltrúar okkar.
mbl.is „Ætlum ekki að pakka í vörn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband