Tvísláin erfið!!!!

Fimleikafélagið kom eitthvað rangt að tvíslánni í kvöld. Því fór sem fór. Frábær sigur hjá Garðbæingum. Til hamingju Atli frændi og félagar. Nú er bara að vona að þið klárið rest nema leikinn gegn Eyjamönnum þann 15. sept. :-)    ....Bið að heilsa vinum mínum sem halda með Fimleikafélaginu, þeir eru margir og búnir að hafa nokkuð hátt síðustu vikur.
mbl.is Stórsigur Stjörnunnar á FH
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...á réttri leið

Glæsilegt, stórglæsilegt. Ekki amalegt að vinna í Víkinni. Enginn Bjarnólfur á bekknum en Tómas Ingi varð þá bara fyrir barðinu á ÍBV-liðinu. Tryggvi í ham og stóð við það sem hann sagði við mig á kvennaleiknum um daginn hann ætlaði að skella inn allavega einu kvikindi - enda núna kominn í bann blessaður karlinn.

Til hamingju strákar og ekkert meira um það að segja. Áfram ÍBV alltaf alllstaðar og um alla eilífð


mbl.is ÍBV á eftir KR eins og skugginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt ...því fyrr því.......

Hér virðast hlutir ekkert vera að lagast og því alveg kominn tími á utanaðkomandi hjálp. Hér er allt en í tómu tjóni og til að skapa þá snilld hafa allir flokkar á Íslandi lagst á eitt - flott þetta lið - út með það Wink
mbl.is Ísland gangi í ESB árið 2013
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður í manns stað

Við eigum einhver slatta af elikmönnum sem vel geta komið inn í hópinn. Gæði kannski ekki alveg þau sömu en það er ekki eins og gæðin hafi verið að skila sér síðustu mánuði í leik liðsins og því kannski fínt tækifæri að gefa einhverjum séns á að koma sér á framfæri svona í síðustu leikjum riðlakeppninnar - við förum allavega ekkert upp úr riðlinum!!!!
mbl.is Nokkur forföll gegn Noregi og Kýpur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fellur ekkert lið....

...eftir þrjá leiki. EN aftur á móti getur það gefið vísbendingu um að veturinn yrði erfiður hjá liðinu. Gæti líka allt eins gefið vísbendingu um eitthvað allt annað!!!!
mbl.is Arsenal í fallsæti eftir leiki dagsins?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mbl.is ætti að skammast sín!

Hvaða rugl áhugmennskublaðamennska er þetta hjá mbl.is? Nota með fréttinni merki Brighton sem ekki hefur verið notað í ansi mörg ár. Eins og það sé ekki nóg þá hefur meira að segja verið annað merki í millitíðinni þ.e.a.s. þetta hér:

 brighton-hove-albion

Þetta er svo nýja merkið sem byrjað var að nota í sumar við flutninginn á nýja leikvanginn:

0,,10433~9369925,00


mbl.is Brighton á toppi 1. deildarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er Liverpool úr leik

Það held ég að vinir mínir sem halda með Liverpool verði svekktir yfir þessu. AÐ mæta Brighton og detta úr leik fyrir þeim er eitthvað sem þeir vilja ekki þurfa að hlusta á frá mér í allan vetur.

Set ég hérna inn syrpur frá liðnum áratugum:


mbl.is Hefja titilvörnina gegn Man.City
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvænt niðurstaða

Það verð ég að segja að þessi niðurstaða kemur mér, já og sennilega öllum tuðrusparksunnendum á óvart! NOT


mbl.is Messi valinn sá besti í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1111 - Eittþúsundeitthundraðogellefu

Merkilegur dagur í dag. Í dag er ég búinn að blogga alla vega einu sinni á dag í Eittþúsundeitthundraðogellefu (1111) daga í röð á mbl blogginu - nokkuð vel að verki staðið þó ég segi sjálfur frá. Mig langar að þakka öllum innlitið allan þennan tíma. Þetta eru orðin nokkur andlit sem hér hafa litið við. Takk fyrir mig. ......það hlýtur að fara að koma slit í keðjuna hjá mér.

Á meðal þeirra pistla sem settir voru inn þennan dag í ágúst 2008 þegar flæðið hófst var þessi pistill:

Bjargar ný ferja byggðarlaginu?

Það verður gaman að sjá hvaða niðurstöðu menn fá úr þessu og hvort að tilboðum þesum verður gengið eður ei, þ.e.a.s. því sem menn telja álitlegast.

Stóra spurningin í mínum huga er hins vegar sú hvort að þessi ferja og höfnin sem byggja á hinu megin við sundið verða til þess að bjarga blessuðu byggðarlaginu úr þeim hremmingum sem að við erum svo sannarlega í. Við erum að mínu mati á ákveðinni endastöð með bæjarlífið og við höfum verið stött á þessari endastöð í þó nokkurn tíma en spurningin er í raun hvenær við förum af stað aftur? Það er ekki nóg að vera á endastöðinni og dokra við nú þurfum við að fara að taka stefnu útaf helvítis endastöðinni og koma okkur aftur á meðal fólks, en það virðist ætla að reynast okkur erfitt en er lífsnauðsynlegt til þess að halda velli í hinu daglega lífi og hleypa frekara lífi í fólk og fyrirtæki hér í bæ og vekja aftur þá trú á byggðarlaginu sem að fólk hafði áður en við lögðum af stað niður brekkuna fyrir einum 15 árum.


mbl.isÞrjú tilboð bárust í nýjan Herjólf

Að kunna að skammast sín

Þetta eru svívirðilegustu rekstrartölur til handa íþróttafélagi sem ég hef séð. Maður myndi nú ekki einu sinni sofna með góðri samvisku vitandi það að menn ætluðu að kvarta undan því að bærinn leggur félaginu til rúmar 155 milljónir.  já og þetta er fyrir utan það framlag sem bæjarfélagið leggur til handa iðkenndum í íþrótta og æskulýðsstarfi.

Held að menn ættu að hugsa sinn gang áður en þeir gagnrýna svona flotta styrki.

Minnir að styrkurinn vegna knattspyrnuvalla  í Vestmannaeyjum (4 vellir + malarvöllur (lítið notaður enda komið sparkhús) sé rúmar 6 milljónir, í Garðabæ eru þær 26,5 milljónir og aðalleikvangurinn er plastvöllur!!! Skilst að það eigi að fara að taka hann um og skipta um plast eða setja alvöru gras - Hver ætli borgi það?


mbl.is Yfirlýsing Garðabæjar vegna Stjörnunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...þá vinnum við

Þetta er nú aldeilis gott fyrir strákana okkar. Mikilvægur hlekkur í hóp norska liðsins Riise karlinn og því gott að losna við hann. Man þegar ég sá hann fyrst á La Manga fyrir mörgum árum, þá stráklingur hjá Monaco. hann vakti athygli okkar sem fylgdumst með þeim U-21 landsliðum sem þarna voru að spila. Fór svo til Liverpool svo í kjölfarið.

Nú komum við á óvart og stelum öllum punktunum.  Vinnum svo í vikunni á eftir og menn sjá eftir því að hafa ekki ráðið Óla Jóh. áfram!!!!!!


mbl.is Riise ekki með gegn Íslandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki slæmt - takk fyrir

Gott að hirða stig í Frostaskjólinu - pressan en á. Tökum pottþétt af þeim 3 stig á Hásteinsvelli, þeir eiga eftir að misstíga sig 2 KR-ingar. Spurningin bara sú hvað Eyjamenn gera á lokasprettinum. Haldi þeir haus þá er titillinn okkar - já takk það slær enginn höndinni á móti slíku .........ekki satt
mbl.is Spear jafnaði í uppbótartíma fyrir ÍBV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hélt líka lengi fram.....

....að vigtin væri að ljúga þegar ég steig á hana. Steig svo aftur nokkru síðar og ég reyndist bara þyngri og þyngri í hvert sinn sem eg steig. Ég neyddist á endanum til að viðurkenna að vigtin hafði rétt fyrir sér.  Það var ekki fyrr en ég tók mig á og lagði mig betur fram að tölurnar urðu lægri........

...kannski að þetta sé svona á öðrum vígstöðvum líka.


mbl.is Ólafur: Tel að við séum betri en listinn segir til um
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.